Heike Di Patti skrifaði:
Wie werden denn die Rückreihen gehäkelt? Wie häkelt man Reihe 4, 5 ?
16.08.2017 - 10:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Di Patti, alle Reihen sind in Diagram bezeichnet, dh die Hin- sowie die Rück-Reihen. Viel Spaß beim häkeln!
28.08.2017 - 11:38Rebecca skrifaði:
I want to make this design but I am not understanding this line from the pattern "Work 171-171-181-186-191-201 chain stitches". How Many chain stitches do I have to work? and can you please the explain how to read it,it would help me understand the rest of the pattern.
16.08.2017 - 07:44DROPS Design svaraði:
Dear Rebeca, each number is for the revelant sizes.171 stitich for size S - 171 stitch for size M - 181 stitch for size L, etc. So if anywhere in the pattern you see several numbers divided by a dash, you have to use the one that is at the place where the letter for your size is at the beginning at the pattern. It can also help if you read through the pattern and circle the appropriate number everytwhere, before you start. I hope this helps, happy crovjeting!
16.08.2017 - 10:29
Karin Pinter skrifaði:
Hej! Jag hittar ingen video på hålmönstret när det börjar. Förstår inte hur jag ska göra med A1 A2 etc. Mvh Karin Pintér
02.08.2017 - 18:01DROPS Design svaraði:
Hejsan! Vi ska så snart som möjligt försöka hinna göra en video som visar hur man börjar hålmönstret.
23.08.2017 - 13:51Marjolein63 skrifaði:
I casted on my stitches, 201 in total. My first row was easy, 4 dc, skip, 4 dc etc etc. But then..... I totally lost it. I don't get the description...so sorry. Is there someone to help me with it? Please ?
21.05.2017 - 22:10Marjolein63 svaraði:
Ive gotttt it ! 😆
22.05.2017 - 00:03Ayame skrifaði:
I'm currently repeating the second set of rows in A.z until the 'piece' measures approx. 25cm. How is it measured exactly? Do I count everything I've done so far or does the repetition of the 2 rows have to equal 25cm?
19.05.2017 - 19:11DROPS Design svaraði:
Hi Ayame, You are measuring the full length of the piece, from where you cast on to where you have worked so far. Kind regards, Deirdre
21.05.2017 - 10:52
Irene Bowker skrifaði:
Would I be able to alter the neck to a V. Would it be possible?
12.05.2017 - 11:27DROPS Design svaraði:
Yes, it would be possible with a bit of calculations of course. You should start it with the number of stitches for the bank and the two sleeves and one more for both front pieces, and increase 1 stitch at both ends of every row, until you reach the number of stitches that should be there for the fronts originally. I hope this helped. Happy crocheting!
12.05.2017 - 13:39
Carina Unander skrifaði:
Det finns inga angivelser i cm på hur stor varje storlek är. Finns det axelmått och bystmått så att det går attbedömma vilken storlek jag behöver och därmed garnåtgång?
26.04.2017 - 22:56DROPS Design svaraði:
Hej. Längst ner på mönstret finns det en måttskiss med alla mått i cm i samtliga storlekar. Mvh DROPS Design
27.04.2017 - 07:59
Vicky Williams skrifaði:
Love this design too as a cardigan. Plenty of interest to make and could imagine wearing it in Spring and Summer!
16.12.2016 - 15:35
Lauren McRoberts skrifaði:
I love this one! Please include!
14.12.2016 - 15:59
Sahara Cardigan#saharacardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-17 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Á við um þegar stykkið er prjónað fram og til baka. Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðlinum skipt út fyrir 3 loftlykkjum. Í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Í hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkjunni skipt út fyrir 1 loftlykkju. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul/fastalykkju. Ekki er aukið út yfir kant að framan. ÚRTAKA: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. A.10 útskýrir hvernig mynstur byrjar og endar þegar heklað er í hring á ermi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður fram og til baka. BERUSTYKKI: Heklið 171-171-181-186-191-201 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino. Heklið næstu umferð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju (= 2 stuðlar), 1 stuðul í hvora af 2 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðul í hverja af 4 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* = 136-136-144-148-152-160 stuðlar. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 12 prjónamerki í stykki þannig: Heklið 21-21-23-24-25-27 stuðlar JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 stuðlar jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 30-30-34-36-38-42 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-10-6-6-8-4 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 21-21-23-24-25-27 stuðlar JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir = 140-156-156-160-168-168 stuðlar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 stuðlar fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-6-7-9 sinnum, aukið síðan út á undan hverju prjónamerki (= 12 stuðlar fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-2-2-0 sinnum = 260-276-300-328-360-384 stuðlar. Stykkið mælist nú ca 17-17-19-19-21-21 cm. Í næstu umferð er heklað þannig: 41-44-48-53-59-63 stuðlar (framstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðla frá fyrri umferð (þá á að nota síðar fyrir ermi), 70-76-84-94-106-114 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-3-1-1-3 stuðla jafnt yfir (bakstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðla frá fyrri umferð (þá á að nota síðar fyrir ermi) og 41-44-48-53-59-63 stuðlar (framstykki) = 169-181-199-217-241-259 stuðlar/loftlykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið síðan fyrstu 2 umferðirnar í A.x þannig: A.1 (= 6 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar á kanti að framan), A.2 alls 25-27-30-33-37-40 sinnum á breidd, A.3, endið með A.4 (= 6 stuðlar/tvíbrugðnir stuðlar á kanti að framan). Heklið 3. umferð í A.x (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 187-199-217-235-259-277 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðirnar í A.y, en A.2 er nú heklað 28-30-33-36-40-43 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 205-217-235-253-277-295 stuðlar. Heklið nú fyrstu 2 umferðir í A.z. Heklið síðan 2 næstu umferðir í A.z þar til stykkið mælist ca 25-28-30-30-33-33 cm – stillið af eftir síðustu 2 umferðirnar. Heklið síðan 2 síðustu umferðir í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) aukið út um 6 stuðla jafnt yfir = 211-223-241-259-283-301 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðir í A.y, en A.2 er nú heklað 32-34-37-40-44-47 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 6-6-12-6-6-12 stuðla jafnt yfir = 217-229-253-265-289-313 stuðlar. Heklið síðan næstu 5 umferðir þannig: A.5 (= kantur að framan), A.6, A.7 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, A.8, endið með A.9 (= kantur að framan). Heklið síðan A.y þannig: A.1 (= 6 stuðlar á kanti að framan), A.2 alls 33-35-39-41-45-49 sinnum á breidd, A.3, endið með A.4 (= 6 stuðla á kanti að framan). Heklið síðan síðustu umferð í A.5-A.9 þannig: A.5 (= kantur að framan), A.6, A.7 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, A.8, endið með A.9 (= kantur að framan). Klippið frá og festið enda. ERMI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður – sjá A.10 hvernig umferðin byrjar og endar. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju við 8 loftlykkjurnar sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi JAFNFRAMT er fækkað um 1-3-1-5-3-1 stuðlar jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, áður en fækkað er um 1 stuðul í hverja og eina af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 61-61-67-67-73-79 st. Heklið síðan fyrstu 2 umferðir í A.x þannig: A.2 alls 9-9-10-10-11-12 sinnum á breidd, endið með A.3. Heklið 3. umferð í A.x (= stuðlaumferð) og fækkið um 6 stuðla jafnt yfir = 55-55-61-61-67-73 stuðlar. Heklið síðan A.y 1 sinni á hæðina, en A.2 er nú heklað 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd. Heklið nú fyrstu 2 umferðir í A.z (A.2/A.3). Endurtakið síðan 2 næstu umferðir í A.z þar til stykkið mælist ca 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir síðustu af þessum 2 umferðum. Heklið síðan 2 síðustu umferðir í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) er fækkað um 6-6-6-6-6-6 stuðla jafnt yfir = 49-49-55-55-61-67 stuðlar. Heklið A.y, en A.2 er nú heklað 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd. Heklið síðan síðustu umferð í A.6 og A.8 þannig: A.6 alls 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.8. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 33-33-33-33-33-33 cm. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál, notið heklunál 4 með Cotton Merino. Byrjið við miðju að framan frá réttu þannig, heklið stuðla í loftlykkjur þar sem stuðlar eru heklaðir (þ.e.a.s. ekki er heklað í loftlykkjur sem hoppað var yfir) = 136-136-144-148-152-160 stuðlar – JAFNFRAMT er fækkað um 27-27-29-33-31-33 stuðla jafnt yfir þessa stuðla = 109-109-115-115-121-127 stuðlar. Heklið síðan síðustu umferð í A.6 og A.8 þannig: Heklið A.6 alls 17-17-18-18-19-20 sinnum á breidd, endið með A.8. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan 2 cm frá kanti í hálsi, aðrar tölur eru settar með ca 8 cm millibili. Tölum er hneppt á milli tveggja stuðla í hægra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #saharacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.