DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sahara

Hekluð peysa með gatamynstri, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Cotton Merino. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-18
DROPS Design: Mynstur cm-063
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g nr 15, sinnepsgulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 stuðlar og 9 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10406.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Á við þegar stykkið er heklað fram og til baka.
Í hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðlinum skipt út fyrir 3 loftlykkjur.

ÚTAUKNING:
Aukið út 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul/fastalykkja.

ÚRTAKA:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. A.6 útskýrir hvernig mynstrið byrjar og endar þegar heklað er í hring.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 156-156-166-171-176-186 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið næstu umferð þannig: 1 stuðull í 4. loftlykkju (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja og eina af 2 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* = 124-124-132-136-140-148 stuðlar (= rétta). Heklið síðan stykkið fram og til baka. Hver umferð er hekluð saman í lok umferðar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Snúið stykkinu.

LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Setjið 12 prjónamerki í stykkið frá röngu þannig: Heklið 15-15-17-18-19-21 stuðlar JAFNFRAMT eru auknir út 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 30-30-34-36-38-42 stuðla JAFNFRAMT er aukið út um 2-10-6-6-8-4 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 16 stuðla, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 stuðla, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 15-15-17-18-19-21 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-5-3-3-4-2 st jafnt yfir = 128-144-144-148-156-156 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Snúið stykkinu. Í næstu umferð frá réttu er aukið út þannig: Aukið út 1 stuðul hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 3-3-4-6-7-9 sinnum, síðan er aukið út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-2-2-0 sinnum = 248-264-288-316-348-372 stuðlar. Stykkið mælist nú nu ca 17-17-19-19-21-21 cm.

Í næstu umferð er heklað þannig: 35-38-42-47-53-57 st (= hálft bakstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðla frá fyrri umferð (á að nota síðar fyrir ermi), 70-76-84-94-106-114 stuðlar JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-3-1-1-3 stuðla jafnt yfir (framstykki), 8 loftlykkjur (handvegur), hoppið yfir 54-56-60-64-68-72 stuðlar frá fyrri umferð (á að nota síðar fyrir ermi) og 35-38-42-47-53-57 stuðlar (= hálft bakstykki) = 157-169-187-205-229-247 stuðlar/loftlykkjur. Stykkið er nú heklað í hring án þess að snúið sé við.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið síðan fyrstu 2 umferðirnar í A.x (A.1/A.2) þannig – sjá A.6 hvernig umferðin byrjar og endar: A.1 alls 25-27-30-33-37-40 sinnum á breidd, endið með A.2. Heklið 3. umferð í A.x (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 175-187-205-223-247-265 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðirnar í A.y, en A.1 er heklað nú 28-30-33-36-40-43 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 18 stuðla jafnt yfir = 193-205-223-241-265-283 stuðlar.

Heklið nú fyrstu 2 umferðirnar í A.z. Endurtakið síðan 2 næstu umferðirnar í A.z þar til stykkið mælist ca 25-28-30-30-33-33 cm – stillið af eftir síðustu af 2 umferðum. Heklið síðan 2 síðustu umferðirnar í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) er aukið út um 6 stuðla jafnt yfir = 199-211-229-247-271-289 stuðlar. Heklið síðan fyrstu 3 umferðirnar í A.y, en A.1 er nú heklað 32-34-37-40-44-47 sinnum á breidd. Heklið 4. umferð í A.y (= stuðlaumferð) og aukið út 6-6-12-6-6-12 st jafnt yfir = 205-217-241-253-277-301 stuðlar.

Heklið síðan næstu 5 umferðirnar þannig: A.3, A.4 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, endið með A.5. Heklið síðan A.y þannig: A.1 alls 33-35-39-41-45-49 sinnum á breidd, endið með A.2. Heklið síðustu umferðina í A.3-A.5 þannig: A.3, A.4 alls 16-17-19-20-22-24 sinnum á breidd, endið með A.5. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður – sjá A.6 hvernig umferðin byrjar og endar. Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju á þeim 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið síðan 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi JAFNFRAMT er fækkað um 1-3-1-5-3-1 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, áður en heklaður er 1 stuðull í hverja og eina af 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 61-61-67-67-73-79 stuðlar.

Heklið síðan fyrstu 2 umferðir í A.x. þannig: A.1 alls 9-9-10-10-11-12 sinnum á breidd, endið með A.2. Heklið 3. umferðir í A.x (= stuðlaumferð) og fækkið um 6 stuðla jafnt yfir = 55-55-61-61-67-73 stuðlar.
Heklið síðan A.y 1 sinni á hæðina, en A.1 er nú heklað 8-8-9-9-10-11 sinnum á breidd.

Heklið nú fyrstu 2 umferðirnar í A.z (A.1/A.2). Endurtakið síðan 2 næstu umferðir í A.z þar til stykkið mælist ca 25-25-25-25-25-25 cm – stillið af eftir síðustu umferð á þessum 2 umferðum. Heklið síðan 2 síðustu umferðirnar í A.z – JAFNFRAMT í síðustu umferð (= stuðlaumferð) er fækkað um 6-6-6-6-6-6 st jafnt yfir = 49-49-55-55-61-67 stuðlar. Heklið síðan A.y, en A.1 er nú heklað 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd. Heklið síðustu umferð í A.3 og A.5 þannig: A.3 alls 7-7-8-8-9-10 sinnum á breidd, endið með A.5. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 33-33-33-33-33-33 cm.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál, notið heklunál 4 og Cotton Merino. Byrjið við miðju að aftan frá réttu, heklið stuðla í loftlykkjurnar þar sem heklaðir voru stuðlar (þ.e.a.s. heklið ekki í loftlykkjurnar sem hoppað var yfir) = 124-124-132-136-140-148 stuðlar – JAFNFRAMT er fækkað um 27-27-29-33-31-33 stuðla jafnt yfir þessa stuðla = 97-97-103-103-109-115 stuðlar. Heklið nú síðustu umferðina í A.3 og A.5 þannig: Heklið A.3 alls 15-15-16-16-17-18 sinnum á breidd, endið með A.5. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2018
HÉÐAN ER NÚ MÆLT! hefur verið bætt við eftir að lykkjur hafa verið settar til hliðar fyrir ermi

Mynstur

symbols = keðjulykkja
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = heklið 1 tvíbrugðin stuðul um fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næsta loftlykkjuboga og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um fyrsta loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um næsta loftlykkjuboga og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af fyrstu 3 tvíbrugðnu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á öllum 3 tvíbrugðnu stuðlum, hoppið yfir næstu 5 lykkjur, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af næstu 2 tvíbrugðnu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næsta tvíbrugðna stuðul og dragið þráðinn í gegnum allar 7 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið í 3 tvíbrugðnu stuðlana lengst inn við loftlykkjubogann þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af fyrstu 2 tvíbrugðnu stuðlum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum tvíbrugðnu stuðlum, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næsta tvíbrugðna stuðul og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = röðin/umferðin hefur nú þegar verið hekluð, byrjið í næstu röð/umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Aditi Hombali wrote:

Can you please help me elaborate the A6 diagram in words. "Continue by working the first 2 rounds in A.x (A.1/A.2) as follows - see A.6 for how the rounds start and finish: A.1 in total 25-27-30-33-37-40 times in width, finish with A.2" I am getting the pattern either 24 or 26 times. Thank you

10.08.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hombali, A.6 shows how to start and end the rounds (1 or 3 or 4 ch at the beg of the round and finish with 1 sl st in the first/3rd/4th ch from beg of round); then repeat A.1 (= 6 sts) a total of 25 times (1st size) then work A.2 (= 7 sts) 1 time = there will be a total of 26 repeats bu the last repeat (= A.2) is worked over a different number of sts than the one repeated around. Happy crocheting!

12.08.2019 - 07:36

country flag Aditi Hombali wrote:

Can you please explain the steps, i am finding it difficult to understand. when i add up all the stitches it sums to 236 instead of 248. Thank you "repeat the increases every row from the right side in total 3-3-4-6-7-9 times, then increase before each marker (= 12 double crochets increased), repeat the increase on every row from the right side in total 4-4-4-2-2-0 times = 248-264-288-316-348-372 double crochets".

05.08.2019 - 22:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hombali, you start with 128 sts, then increase 24 sts a total of 3 times = 24x3= 72 sts = 200 sts - then increase 12 sts a total of 4 times = 12x4= 48 sts = 248 sts. Happy crocheting!

07.08.2019 - 11:39

country flag Linda wrote:

I understand that I am only to do the increases on the right side. When it says to repeat the increase to each right side row, I am getting more stitches on one side of midback than the other. Am I to alternate increasing on the left and right side of the marker to ensure I have the same number of stitches on both sides?

05.06.2019 - 20:37

DROPS Design answered:

Dear Linda, when you increase on every other row = on every row from RS you increase a total of 24 sts: 1 st on each side of each marker (= 2 sts in last st before marker, slip marker, 2 sts in next st after marker) and repeat these increase at each of the 12 markers = 24 sts are increased. Then you will increase 1 st before each marker (= 12 sts inc per row) on every row from RS (= on every other row). Happy crocheting!

06.06.2019 - 09:54

country flag Verolland wrote:

Bonjour, que signifie pourl’empiecement « crocheter 15 brides en même temps? » et « augmenter au dessus de ces mailles ? «  faut il tourner l’ouvrage? Excusez moi, je ne connais pas ces expressions... merci

21.02.2019 - 07:12

DROPS Design answered:

Bonjour Verolland, en taille S-M, vous crochetez 15 brides en augmentant 1-5 brides = vous aurez 16-20 brides au-dessus des 15 brides du rang précédent, de même quand vous crochetez ensuite 30 brides en augmentant 2-10 brides, crochetez les 30 brides suivantes en crochetant 2-10 fois 2 brides dans la même brides = vous avez ainsi 32-40 brides au-dessus des 30 brides du rang précédent. Bon crochet!

21.02.2019 - 10:25

country flag Silje Knudsen wrote:

Hei!\r\nDer er en feil i oppskriften. På tredje omgang i A3-A5 står det at viften betyr: hekle 1 dobbelstav om første luftmaskebue, men vent med siste kast og gjennomtrekk, hekle 1 dobbelstav om neste luftmaskebue og trekk siste kast gjennom alle 3 løkkene på nålen. Dette er det samme som på forrige omgang selv om diagrammet sier noe annet.. Rettelse?

24.11.2018 - 18:41

country flag Evelyne Louaked wrote:

Super modèle facile à réaliser grâce à vos conseils et votre éclairage avisé sur les explications

22.05.2018 - 13:40

country flag Louaked Evelyne wrote:

Pourriez vous m indiquer comment on crocheter A3 A4 au début du 4eme rang

21.05.2018 - 11:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Louaked, dans A.3, crochetez 3 double-brides écoulées ensemble (chacune d'elle crochetées dans les 3 premières double-brides de l'éventail du rang 3), 5 ml. Dans A.4, (crochetez 1 ms dans le haut de l'éventail, 5 ml, écoulez 6 double-brides ainsi: 1 double-bride dans chacune des 3 dernières double-brides de l'éventail et 1 double-bride dans chacune des 3 premières double-brides de l'éventail suivant, 5 ml) répétez de (à) et terminez par A.5: 1 ms dans le haut du dernier éventail, 5 ml, 3 double-brides écoulées ensemble (chacune d'elle crochetées dans les 3 dernières double-brides de l'éventail). Bon crochet!

22.05.2018 - 09:19

country flag Evelyne Louaked wrote:

Bonjour je suis au début du 4eme rang de A3 A4 A5 , pourriez vous m indiquer comment crocheter A3 A4 ?

21.05.2018 - 11:18

country flag Ulrike wrote:

Ich komme bei häkelnadel 4 auf 12 cm breite und 9 cm Höhe. Was kann ich machen? LG Ulrike

06.05.2018 - 17:09

DROPS Design answered:

Liebe Ulrike, versuchen Sie noch mit einem kleineren Häkelnadel, damit Sie die 18 Stb = 10 cm bekommen, und mal damit versuchen, die Maschen etwas höher "ziehen". Viel Spaß beim häkeln!

07.05.2018 - 09:33

country flag Alice wrote:

Het is mij niet duidelijk wanneer een volgende toer begint volgens het diagram. En begint het bij de rij stokjes of juist bij Ax. Ik ben een beginneling, maar vind dit lezen erg lastig. Ik hoop dat u een antwoord heeft!

30.04.2018 - 21:35

DROPS Design answered:

Dag Alice, De telpatronen beginnen altijd rechts onderaan en je leest dan de steken van rechts naar links in de eerste toer. De volgende toer is 1 rij daarboven. Bij dit werkstuk haak je de steken samen met een halve vaste (zie instructies) en keer je het werk voor de volgende toer

02.05.2018 - 20:59