Uschi skrifaði:
Hallo, warum passen das Titelbild und die technische Zeichnung nicht zusammen ? Ersteres zeigt deutlich Beine , letztere ist ein Body ohne Beine...? Danke für die Antworten Uschi
22.07.2019 - 10:13DROPS Design svaraði:
Liebe Uschi, die Zeichnung soll schematisch verdeutlichen, wie hoch die Beinöffnung ist, es ergibt sich aber dadurch kein hoch ausgeschnittener Body. Die Beine, die Sie auf dem Foto sehen, ergeben sich aus der Art, wie zugenommen wird. Zuletzt wird ja noch das Rippenmuster um die Beinöffnungen gestrickt, was in der Zeichnung nicht enthalten ist. Gutes Gelingen und viel Spaß beim Stricken!
22.07.2019 - 23:19
Lisa skrifaði:
Fikk også som mange andre annerledes bein enn ønsket. Synes allikevel det ser bra ut! Laget ekstra lang vrangbord:) det er dessverre en veldig irriterende feil i oppskriften som jeg er veldig lei meg for at jeg ikke oppdaget før etterpå. Stusset på at det var litt liten rillekant øverst på sidene av forstykket men fulgte oppskriften. Det er jo nødt til å skulle være 8 kantmasker .. så forstykket krøller seg og ser ikke riktig ut. Men alt i alt fin bukse!:)
28.04.2018 - 08:55
Christiane skrifaði:
Hallo meine Lieben, Ich versteh leider nicht wie die Beine an den "Trägerbody" kommen, die Hosenbeine bestehen ja nicht nur aus dem Rippenmusterrand, oder? Danke für die schöne Anleitung
02.04.2018 - 22:09DROPS Design svaraði:
Liebe Christiane, am Anfang stricken Sie Rücken und Vorderteil (siehe Skizze), dann wird es Bündchen an der beiden Beinöffnungen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
03.04.2018 - 09:52
Caty skrifaði:
Se corresponde la foto del peto con el patrón en si ? es que estoy empezando a tejerlo y me da la sensación que las piernas del peto no son para nada tan largas como en la foto. Gracias
26.02.2018 - 09:45DROPS Design svaraði:
Hola Caty. La foto corresponde al patrón. La largura de las piernas de peto puede ser engañoso debido a cómo está puesto el peto, pero en realidad son bastante cortas.
04.03.2018 - 17:41
Mariana skrifaði:
Wie kann ich dieses Strickmuster vergrößern? Ich hätte es gern für 98/104? Liebe Grüße Mariana
22.02.2018 - 21:23DROPS Design svaraði:
Liebe Mariana, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuelle Anfrage anpassen. Gerne bekommen Sie Hilfe von Ihrem DROPS Laden oder Strickforum. Viel Spaß beim stricken!
23.02.2018 - 09:03
Therese skrifaði:
Bildet i oppskriften samsvarer ikke med selve oppskriften. På bildet er det shorts-ben, mens i oppskrifta blir det mer som en romper. Dette er kjedelig for de som ønsker å strikke "snekkerbuksen" som er på bildet.
22.02.2017 - 08:16
Silje Finsrud skrifaði:
Hei. Sitter å strikker denne nydelige lekedressen nå. Men lurer på en ting, på bilde Er det shortsben på dressen, men i oppskriften er det rett fra truse til vrangbord. Har jeg misforstått noe?
29.01.2017 - 10:51DROPS Design svaraði:
Hej Silje. Du gaar direkte til vrangbord efter du har delt op.
30.01.2017 - 16:04
ALLAIN Cindy skrifaði:
Hoooo troop mignon !!! j'adore ! une fois mon pull fini je me lance dans la réalisation de cette combinaison !
02.09.2016 - 14:55
The Little Lumberjack#thelittlelumberjackjumpsuit |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stærð börn 1 mánaða - 24 mánaða.
DROPS Children 27-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki og fækkið l þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið l á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 l á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum neðan frá og upp eftir opi fyrir fætur. Síðan er stykkið prjónað í hring áður en það skiptist aftur upp í mitti og framstykki er prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 14-16-18-20 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok hverrar umf alls 9-9-9-10 sinnum í hvorri hlið = 50-52-54-60 l á prjóni og stykkið mælist ca 6-6-6-7 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-16-18-20 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka í 5-5-5-6 cm. STÆRÐ 1/3 mán - 6/9 mán - 12/18 mán: Fitjið upp 6 nýjar l í lok hverrar umf alls 3 sinnum í hvorri hlið. STÆRÐ 24 mán: Fitjið upp 6 nýjar l í hvorri hlið í lok hverrar umf 2 sinnum, síðan 8 nýjar l í hvorri hlið 1 sinni = 50-52-54-60 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-8 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið l af fram- og bakstykki á sama hringprjón = 100-104-108-120 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 50-52-54-60 l á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn – byrjun umf = hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-5-7 cm fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 84-88-92-104 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 10-11-14-16 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 17-18-21-24 cm frá uppfitjunarkanti) prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið sl eins og áður yfir fyrstu 42-44-46-52 l, þ.e.a.s. fram að 2. prjónamerki (= framstykki – ATH: Ekki er prjónuð upphækkun yfir þessar l), prjónið sl þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í byrjun umf, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu við. Prjónið sl þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið stykkinu við. Prjónið sl þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið stykkinu við og prjónið br til baka þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerkinu á hinni hliðinni. Snúið stykkinu við og prjónið sl til baka að byrjun umf (= hlið). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 80-88-96-104 l – ATH: Til að koma í veg fyrir göt í hvert sinn sem snúið er við þá er lykkjan tekin upp á milli 2 l og hún prjónuð snúin slétt saman með næstu l á prjóni. Prjónið síðan stroff hringinn þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 1½ cm prjónið gatakant þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l br saman, sláið uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stroffið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 40-44-48-52 l (= framstykki), fellið LAUST af næstu 40-44-48-52 l með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki). FRAMSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 34-38-42-46 l sléttprjón, 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram fram og til baka. JAFNFRAMT eftir 1-0-0-1 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í 2.-4.-6.-6. hverri umf alls 7-7-6-6 sinnum = 26-30-36-40 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 7-9-11-12 cm frá prjónamerki – passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 l sl og setjið þessar l á þráð fyrir axlaband, fellið af næstu 10-14-20-24 l og prjónið sl yfir síðustu 8 l (= axlaband). AXLABAND: Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til axlabandið mælist ca 18-24 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af og endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni. FRÁGANGUR: STROFF KANTUR: Prjónið upp frá réttu ca 50 til 58 l meðfram annarri skálminni á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 58-62-66-70 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 2-4 cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hinni skálminni. Saumið saman op á milli skálma innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroff kantinn, síðan er saumað saman í klofi og að lokum hinn stroff kantinn. Saumið eina tölu neðst niðri á hvoru axlabandi. Tölum er hneppt í gegnum götin í gataumferð á stroffi. SNÚRA: Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina í stroffi í mitt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #thelittlelumberjackjumpsuit eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.