Christine Isnard skrifaði:
Pour le tour de cou, Combien de fois faut il tricoter A.3A et A.3B en hauteur? Ou bien à combien de cm faut il commencer les côtes? J' ai visionné la vidéo et relu plusieurs fois les explications mais cela n'est mentionné nulle part... Merci pour votre réponse.
23.12.2016 - 10:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Isnard, on répète A.3a et A.4b jusqu'à ce que toutes les augmentations soient faites (ou, en fonction de la longueur souhaitée, il doit rester 5 cm avant la hauteur totale). Bon tricot!
29.12.2016 - 13:19
Emelie skrifaði:
Det är vanten jag tänker på. /Emelie
05.12.2016 - 19:51DROPS Design svaraði:
Hej Emelie, jo förskjutningen av mönstret börjar först efter 2 varv av mönstret och då hinner du med alla 12 tills du är klar med mönstret. Lycka till!
16.03.2017 - 11:23
Emelie skrifaði:
Jag undrar om det verkligen är 12 förskjutningar? Jag tycker att det borde vara 14. Första maskan av de 7 borde bli den maskan som minskas först då arbetet börjar minskas. Annars blir minskningen "mitt i flätan". Har jag rätt eller ska det verkligen vara 12 förskjutningar? Mvh, Emelie
04.12.2016 - 19:29DROPS Design svaraði:
Hej Emelie. Er det huen, vanterne eller halsen du mener? Tak!
05.12.2016 - 14:32
Anne skrifaði:
Er staat, zoals eerder al aangegeven, een fout in het patroon bij de uitleg van de rechterwant: "als het patroon wordt verschoven, meerder dan voor de eerste markeerder en na de 2e markeerder". Bij de rechterwant moet er geminderd worden voor de eerste markeerder en gemeerderd na de tweede markeerder om het patroon te laten kloppen. Jammer dat ik dat na een foutieve aanwijzing van jullie kant zelf heb moeten uitvinden.
17.11.2016 - 10:38DROPS Design svaraði:
Hoi Anne. Ik zal een notitie maken en laten nakijken of het fout is. Ja, dat kan gebeuren, we zijn maar mensen en ook niet altijd "foutvrij" ;) Fijne dag verder!
17.11.2016 - 13:58
Anne skrifaði:
Ik ben bezig met het breien van de wanten. De linkerwant is volledig af, en nu ben ik net begonnen met de rechterwant. Nu staat er in de beschrijving het volgende: "Als het patroon wordt verschoven, meerder dan voor de eerste markeerder en na de 2e markeerder". Het lijkt me niet de bedoeling dat er twee keer gemeerderd wordt, en nu vraag ik me af waar er nou precies gemeerderd en geminderd moet worden bij de rechterwant. Alvast bedankt.
12.11.2016 - 21:20DROPS Design svaraði:
Hoi Anne. Je hebt nu het patroon aan het einde van de nld en je meerdert voor de eerste markeerder en je mindert na de laatste markeerder. Het is maar een uitleg over hoe je meerdert bij de rechterwant - het is niet dubbel.
14.11.2016 - 14:57
Cobi skrifaði:
Hartelijk dank voor het snelle antwoord. Ik las het telpatroon verkeerd.
18.08.2016 - 13:57
Cobi Walter skrifaði:
Bij de halswarmer: na de boordsteek ga verder " 3 steken in gerstekorrel ...... t/m .....einde regel, Houd ik steken over want: 8 steken A3A of A3B zijn maar 6 steken van de brienaald. Graag uitleg !
17.08.2016 - 09:27DROPS Design svaraði:
A.3A en A.3B zijn 8 steken op de breinaald, niet zes. De eerste nld van A.3A breit u bijvoorbeeld als volgt: 1 omslag, 2 av, 1 r, 1 omslag, 1 r, 2 av, 1 omslag, 1 r afh, 1 r, afgeh st overh. Dus u breit over 8 steken, maakt er 3 st bij (omslagen) en mindert 1 st (aan het eind), zodat u na deze nld 10 st hebt.
17.08.2016 - 10:20
Corbel Jocelyne skrifaði:
Superbe modele
19.06.2016 - 19:59
Paninnguaq Ane Jørgensen Davidsen skrifaði:
Fantastisk sæt
11.06.2016 - 21:55
A Royal Embrace#aroyalembraceset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, axlarskjóli og vettlingum úr DROPS Snow með áferðamynstri.
DROPS 171-18 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: br yfir sl og sl yfir br. Endurtakið umf 2. ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN/AFTAN: Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 2 l að framan og að aftan. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING (á við um tilfærslu á mynstri): Aukið út um 1 l á undan eða á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 62 l á hringprjóna nr 6 með Snow. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff í hring eftir teikningu A.1A (= 2 mynstureiningar 31 l). Þegar stroffið mælist 4 cm er næsta umf prjónuð eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1B = 60 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið mynstur í hring eftir A.2 (= 2 mynstureiningar 30 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 12 l í umf. Prjónið 1 umf þar sem l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm ofan frá og niður. ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. AXLARSKJÓL: Fitjið upp 56 l á stutta hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið með 2 l sl og 1 l br. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist ca 12 cm (eða að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf þannig (byrjun umf = í hlið): 3 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= yfir öxl), A.3A (= 8 l), 6 l sléttprjón (= framan), A.3B (= 8 l), 6 l perluprjón (= yfir öxl), A.3A (= 8 l, 6 l sléttprjón (= bak), A.3B (= 8 l) og 3 l perluprjón (= yfir öxl). Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við allt A.3A/A.3B (prjónamerki er einungis notað til að merkja hvar A.3 byrjar og endar – látið prjónamerki fylgja með í stykkinu). Haldið svona áfram með mynstur og fækkið l eins og útskýrt er í A.3A/A.3B (l sem auknar eru út yfir axlir eru prjónaðar jafnóðum inn í perluprjón = 4 l hver útauknings umferð). JAFNFRAMT í fyrstu umf byrjar ÚTAUKNING VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN/AFTAN – sjá útskýringu að ofan (= 4 l fleiri í hverri útauknings umferð – útauknar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 14 sinnum (eða að óskaðri lengd – nú eru eftir ca 5 cm að loka máli). Eftir alla útaukninu eru 168 l í umf. STROFF: Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið næstu umf þannig (útaukning hvoru megin við miðju 2 l að framan og að aftan halda áfram í annarri hverri umf til loka): * Prjónið sl yfir fyrstu/næstu 17 l og aukið út um 4 l yfir þessar l (= 21 l), prjónið 2 l br, 2 l sl, 2 l br yfir A.3, prjónið sl yfir næstu 18 l og aukið út um 2 l yfir þessar l (= 20 l), 2 l sl (= miðja að framan), prjónið sl yfir næstu 18 l og aukið út um 2 l yfir þessar l (= 20 l), prjónið 2 l br, 2 l sl, 2 l br yfir A.3 og prjónið sl yfir næstu 17 l og aukið út um 4 l yfir þessar l (= 21 l) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 192 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf og endið með 2 l br og 1 l sl (stroffið kemur nú til með að halda fallega áfram yfir A.3 í skásettu línunni og yfir 2 l við miðju-l að framan og að aftan – l sem auknar eru út við miðju að framan og við miðju að aftan eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff). Þegar stroffið mælist 2 cm er önnur hver 2 l br auknar út til 3 l br = ca 216 l (aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat). Þegar stroffið mælist ca 5 cm (passið uppá að auknar séu út alls 4 l hvoru megin við miðjulykkju að framan og að aftan) fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Axlarskjólið mælist ca 36 cm ofan frá og niður þar sem það er styst. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Stærð S prjónuð í hring á sokkaprjóna nr 6 og 7. Stærð M/L prjónuð í hring á sokkaprjóna nr 7 og 8. Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 6-7 með Snow. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan storff í hring eftir mynsturteikningu A.4 (= 1 mynstureining 30 l). Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 7-8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir fyrstu 7 l í umf – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.5 (= 1 mynstureining 30 l). Eftir 2 umf byrjar tilfærsla á mynstri. Aukið út á undan fyrra prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING og fækkið l á eftir 2. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er aukið út og l fækkað í annarri hverri umf alls 12 sinnum (þegar tilfærslan hefur verið gerð eru prjónamerkin tekin frá og mynstrið heldur áfram án útaukninga/úrtöku). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við næst síðustu l í umf fyrir op fyrir þumal (nú er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Prjónið 1 umf án útaukninga fyrir þumal. Í næstu umf er aukið út fyrir þumal hvoru megin við 3 l fyrir opi fyrir þumal = 5 l fyrir op. Prjónið 1-2 umf án útaukninga. Setjið síðan 5 þumallykkur á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan l á þræði = 30 l. Þegar stykkið mælist 23-24 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (= 15 l á milli prjónamerkja). Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l svona í hverri umf alls 6 sinnum = 6 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Allur vettlingurinn mælist ca 27-28 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 5 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 7-8. Prjónið upp 5 l fyrir aftan þumal = 10 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist 5-6 cm. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5 l. Endurtakið í næstu umf = 3 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema spegilmynd – þ.e.a.s. prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.6 og mynsturteikningu eftir A.7. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 23 l í umf og 1 prjónamerki í lok umf. Þegar mynstrið færist til er l fækkað á undan 1. prjónamerki og aukið er út á eftir 2. prjónamerki. Aukið er út fyrir op fyrir þumal hvoru megin við 2. l í umf. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aroyalembraceset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.