Nora skrifaði:
I also thought that logically i have to cast on 13 on a next row after cast off 3 stitches for a thumb opening to work, but then on A.2 diagram i see i have to work 13 rows in total and on A.1 diagram i am left with 12 rows for a thumb opening, because that first row out of 13 i already used for casting off 😕 So either i have to eliminate the bottom row from A.2 diagram or figure out how to cast on on the same row the cast off is. Could there be a mistake in diagrams?
15.11.2018 - 11:17DROPS Design svaraði:
Dear Nora, we are checking this part and will hopefully be back as soon as possible, thanks in advance for your patience.
15.11.2018 - 13:46
Maria skrifaði:
Hur gör man tumöppningen på vanten? Vilken färg avmaskar man med och vilken färg använder man när man lägger upp de nya 13 maskorna? Var kommer de här maskorna att ligga? Efter avmaskningen eller före det? Väldigt otydligt.
14.11.2018 - 19:40DROPS Design svaraði:
Hei Maria. Etter en gjennomgang av oppskriften har vi nå rettet den slik at tommelåpningen stemmer. Du feller på omgangen etter den med sort pil i diagrammet, og legger opp 13 masker på neste omgang. Du legger opp med 2 farger, som om du strikker førset rad i A.2. Dette er nå rettet i teksten og diagrammene. Om diagrammet ikke er synlig på den svenske siden enda kan du se på den norske i mellomtiden. God fornøyelse
16.11.2018 - 09:36
Nora skrifaði:
About mitten thumb opening. When i cast off 3 stitches do i immediately after that cast on 13 new stitches or do i first work in a round and then cast on 13 new stitches at the beginning of cast off stitches? What color yarn do i use for cast off and cast on stitches?
14.11.2018 - 09:54DROPS Design svaraði:
Hi Nora, You cast on 13 new stitches on the next row after casting off 3 stitches. Use off white yarn for the casting off and on. Happy knitting!
15.11.2018 - 09:37
Nora skrifaði:
Hellow. Asking about mittens. Do you have a video on how to do the magic circle? And what type of increases should i use next?
13.11.2018 - 02:22DROPS Design svaraði:
Dear Nora, this video below shows how to cast on with a magic circle - just cast on the number of sts as given in the pattern. you increase then as shown in diagram with a YO worked twisted on next round Happy knitting!
13.11.2018 - 08:50
Marie skrifaði:
Bonjour, Je débute en tricot et je ne sais pas quel type d'augmentations choisir pour réaliser les mittaines (augmentations barrées, jetés...) ? Lesquelles donneront le meilleur rendu? Merci d'avance pour votre réponse.
06.06.2018 - 19:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, on augmente pour les moufles avec 1 jeté tricoté torse au tour suivant pour éviter un trou (cf vidéo, vous pouvez également choisir d'augmenter d'une autre façon, comme vous préférez - n'hésitez pas à faire différents essais sur un échantillon si besoin. Bon tricot!
07.06.2018 - 08:40
Samariten skrifaði:
Ok. Eftersom jag har på egen hand lyckats klura på tumöppningen kan jag försöka förklara hur jag har gjort: maska av tre maskor där det är svarta rutor på diagrammet med det naturvita garnet. Lägg upp 13 nya maskor på stickan till vänstersidan om arbetet. Sticka första raden på A.2 på de 13 nya maskorna och då är cirkeln sluten igen.
08.03.2018 - 21:39
Jenny skrifaði:
Jag försöker se på bilderna hur tummen är konstruerad, men på inga av bilderna ser man insidan av vantarna! Jag gissar att ni menar att man ska avmaska tre maskor med den ena tråden och lägga upp nya maskor med den andra tråden eftersom de 13 nya maskorna ska ligga "över" de avmaskade maskorna. Stämmer det? Med vilken färg avmaskar man i så fall? Den senapsgula? En video för att visa hur det är tänkt att man ska göra skulle vara en mycket bra hjälp!
02.03.2018 - 14:42DROPS Design svaraði:
Hej Jenny, du stickar upp maskorna som första varvet i A.3 och följer diagrammet. Lycka till!
08.03.2018 - 16:29
Maaike Schiphprst skrifaði:
Hoera! De hiel is gelukt! Mbv youtube filmpje en eindeloos uithalen en opnieuw proberen.
09.02.2018 - 22:37
Maaike Schiphorst skrifaði:
Ik ben met de sokken met de hiel bezig. Deze heb ik net klaar maar nu heb ik 10 cm. Aan strepen en ik moet de onderste 3,5 cm. 8 steken opnemen. Heb ik de hiel misschien fout gebreid? Volgens mij heb ik precies gedaan wat er stond.
07.02.2018 - 22:12DROPS Design svaraði:
Hoi Maaike, Ik begrijp je vraag niet goed. Ís je werk 10 cm nadat je de hiel hebt gebreid? En wat bedoel je met 'Aan strepen en ik moet de onderste 3,5 cm 8 cm opnemen.' Zou je iets kunnen verduidelijken?
15.02.2018 - 23:22
Nina skrifaði:
Hallo noch mal, vielen Dank für die Antwort, aber leider hilft mir die nicht weiter. Nachdem ich die neuen Maschen angeschlagen habe ist da ein großes Loch. Schade.
12.01.2018 - 10:59DROPS Design svaraði:
Liebe Nina, das Loch ist ganz normal wegen die neuen angeschlagenen Maschen. Am Ende werden Sie dann für den Daumen 1 M aus den 13 neu angeschlagenen Maschen (= A.2) + 1 M in den 3 abgeketteten Maschen + 3 M auf beiden Seiten dieser abgeketteten Maschen auffassen, so haben Sie 13 M + 3 + 2x3M = 22 M. Diese 22 M für den Daumen stricken Sie dan wie im A.3 gezeigt (= von unten nach oben). Viel Spaß beim stricken!
12.01.2018 - 13:26
Hokey Pokey#hokeypokeyset |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum vettlingum og sokkum prjónuðum frá tá og upp úr DROPS Karisma með norrænu mynstri, lettneskum kaðli og dúski.
DROPS 173-42 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR: GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað á þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér) og þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn (þráðurinn er nú lagður aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið prjóninum inn í gegnum lykkjuna, sláið uppá prjóninn (þráðurinn er lagður aftan frá og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið að nýju uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. síðustu l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru á prjóni. Deilið l á 4 st sokkaprjóna nr 3 og prjónið eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í garnendann þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LETTNESKUR KAÐALL: Kaðallinn samanstendur af 3 umf – allar um eru með mynstri og eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: * prjónið 1 l sl með litnum natur, 1 l sl með litnum kórall *, endurtakið frá *-* umf hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka yfir á framhlið. Dragið þráðinn með litnum kórall undir þráðinn með litnum natur og síðan yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með br til skiptis litinn natur og litinn kórall, en færið alltaf þráðinn undir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir. UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umf, en nú er þráðurinn alltaf færður yfir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og prjónað er frá toppi á fingrum og upp að úlnlið. VINSTRI VETTLINGUR: Byrjið með litinn sinnepsgulur og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan = 12 l skipt niður á 4 st sokkaprjóna nr 3 – ATH: Ef ekki er óskað eftir að byrja með galdrahring þá eru fitjaðar upp 12 l með litnum sinnepsgulur sem skipt er niður á 4 st sokkaprjóna nr 3 (þegar vettlingurinn hefur verið prjónaður til loka þá er þráðurinn dreginn upp og niður í gegnum l í kringum gatið á toppnum og stykkið dregið saman). Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 52 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm frá uppfitjun (þ.e.a.s. á eftir umf merktri með ör í mynsturteikningu) fellið af 3 lykkjur fyrir op fyrir þumal yfir 3 svörtu rúðurnar í mynsturteikningu (mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd): Í næstu umferð eru fitjaðar upp 13 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af = 62 lykkjur á prjóni. ATH: Fitjið upp eins og fyrsta umferð í mynsturteikningu A.2: Eða þannig að fitjað er upp með 2 litum. Sjá svarta stjörnu í mynsturteikningu. Haldið áfram með A.2 yfir þessar 13 lykkjur og A.1 eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 52 l í umf og A.1 heldur áfram hringinn aftur yfir allar l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með litnum kórall. Allur vettlingurinn mælist ca 24 cm. ÞUMALL: Prjónið upp 1 l í hverja og eina af 13 l sem fitjaðar voru upp fyrir op fyrir þumal og prjónið að auki upp 9 l í kringum opið = 22 l. Skiptið l á sokkaprjóna nr 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3. Fækkið l eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. DÚSKUR: Gerið 1 lítinn dúsk með litnum kórall ca 3 cm að þvermáli og látið þráðinn sem er hnýtt utan um dúskinn vera ca 20 cm langan í lokin. Notið þræðina og hnýtið hnút á eftir hverjum öðrum þannig að það myndist lítil snúra ca 3 cm. Festið síðan snúruna með dúsknum í hlið á vettlingi (sjá mynd). Það eiga að vera 2 dúskar með snúru í hlið á vettlingi. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur nema spegilmynd, þ.e.a.s. að 3 svörtu rúðurnar fyrir þumal eru prjónaðar í 2.- 3. og 4. l frá vinstri hlið á mynstri. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.4 til A.8 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 10-10-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 10-10-11 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 9-9-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 9-9-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 17-17-19 l eru eftir á prjóni. LETTNESKUR KAÐALL: Kaðallinn samanstendur af 3 umf – allar um eru með mynstri og eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: * prjónið 1 l sl með litnum natur, 1 l sl með litnum kórall *, endurtakið frá *-* umf hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka yfir á framhlið. Dragið þráðinn með litnum kórall undir þráðinn með litnum natur og síðan yfir á bakhlið, prjónið 1 l br og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með br til skiptis litinn natur og litinn kórall, en færið alltaf þráðinn undir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir. UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umf, en nú er þráðurinn alltaf færður yfir þráðinn frá síðustu l sem þú prjónaðir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna og prjónað er frá tá og upp. SOKKUR: Fitjið upp 12 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum natur. Prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.4 og aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 48 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.5A. Þegar stykkið mælist 15-17-18 cm frá tá (nú eru eftir ca 7-7-9 cm til loka lengdar á fæti – mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd) setjið 1 prjónamerki í 1. l í umf og 1 prjónamerki í 25. l í umf (bæði prjónamerki eru staðsett í lykkjur í sinnepsgulur í hlið á sokknum). Aukið nú út um 1 l á undan fyrra prjónamerki og 1 l á eftir seinna prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 6-6-8 sinnum = 60-60-64 l í umf – ATH: Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í rendur undir fæti. Eftir síðustu útaukningu eru geymdar 25 l í umf og haldið áfram með rendur fram og til baka eftir mynstri A.6 yfir þær 35-35-39 l sem eftir eru í 3½-3½-4 cm (sokkurinn mælist nú 22-24-27 cm frá tá). Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan, yfir 35-35-39 l (rendur í A.6 halda áfram eins og áður). Eftir hælúrtöku er prjónuð næsta umf þannig: Prjónið með litnum natur yfir 17-17-19 l á hæl, prjónið upp 8-8-9 l (með natur) meðfram kanti á 3½-3½-4 cm sem prjónaðar voru fram og til baka, haldið áfram með A.5A yfir næstu 25 l og prjónið upp 8-8-9 l meðfram kanti í 3½-3½-4 cm í hinni hliðinni = 58-58-62 l í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.7A yfir fyrstu 33-33-37 l (= aftan á sokk) og fækkið l JAFNFRAMT um 4-4-6 l jafnt yfir þessar l í fyrstu umf þannig að mynstrið nái yfir 29-29-31 l, haldið áfram með A.5A eins og áður yfir næstu 25 l (= framan á sokk) = 54-54-56 l í umf. Þegar A.7A hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er A.7B endurtekið síðan yfir þessar 29-29-31 l (A.5A heldur áfram eins og áður framan á sokk). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l innan við ystu l hvoru megin við A.7B – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 60-60-62 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.7B, en síðustu 1-1-2 l í hvorri hlið eiga alltaf að vera í litnum natur. Þegar stykkið mælist ca 13-14-15 cm frá prjónamerki – stillið af eftir heilli mynstureiningu í A.5A og endið eins og útskýrt er í síðustu umf í A.5B prjónið 1 umf slétt yfir allar l með litnum natur. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.8. JAFNFRAMT í umf merktri með ör í mynstri er aukið út um 4-4-6 l jafnt yfir = 64-64-68 l. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka er fellt laust af með litnum kórall. Sokkurinn mælist ca 19-20-21 cm frá prjónamerki. FRÁGANGUR: Saumið saman op framan á tá með lykkjuspori með litnum sinnepsgulur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hokeypokeyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.