DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1433
DROPS Design: Mynstur u-877
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar: ca 22 – 24 – 27 cm
Hæð á sokk: ca 12 – 12 – 12 cm

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-100 g litur 21, milligrár
100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 18, rauður

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3:
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Finndu þína stærð í mynsturteikningu (á við um A.3 og A.4).

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-7 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-6 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-76 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 13-11-11 lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um tá):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur í A.2 þannig: Prjónið þar til eftir er 1 lykkja á undan A.2, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum milligrár, prjónið 3 miðjulykkjur í A.2 eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman með litnum milligrár (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR.
Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum rauður. Prjónið 8 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan umferð með götum (= uppábrot) þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
Skiptið yfir í litinn milligrár og prjónið A.1 hringinn (= 14-15-16 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 6 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2 (= 5 lykkjur), A.3 (= 23-25-27 lykkjur), A.2 (= 5 lykkjur) og A.4 (= 23-25-27 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar næst síðasta umferð í A.4 er eftir, fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir 23-25-27 lykkjur í A.4 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður án úrtöku) = 54-58-62 lykkjur og stykkið mælist ca 15 cm frá uppfitjunarkanti.
Setjið lykkjur í A.2 + A.3 + A.2 á þráð (= 33-35-37 lykkjur á fæti á þráð).
Nú eru 21-23-25 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð með litnum milligrár, prjónið A.5a yfir fyrstu 20-22-24 lykkjur á hæl, prjónið A.5b (= 1 lykkja) og fitjið upp 1 nýja lykkju í loki umferðar með litnum milligrár – nýjar lykkjur eru kantlykkjur og eru prjónaðar með litnum milligrár.
Haldið áfram með A.5a/A.5b fram og til baka yfir 23-25-27 lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið 5½-6-6 cm yfir hællykkjur er sett 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.5 heldur áfram jafnframt sem úrtaka byrjar fyrir hæl).
Eftir hælúrtöku er fyrsta umferð prjónuð þannig: Haldið áfram með A.5 yfir 13-11-11 hællykkjur eins og áður, prjónið upp 11-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, haldið áfram með A.2 + A.3 + A.2 eins og áður yfir 33-35-37 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 11-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 68-72-76 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur A.5 undir fæti, A.3 á fæti og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31-33-35 miðjulykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 31-33-35 miðjulykkjum á fæti slétt saman með litnum milligrár og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 31-33-35 miðjulykkjum snúnar slétt saman með litnummilligrár. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6 sinum = 56-60-64 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 17-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd).

Prjónið síðan svona til loka: Haldið áfram með mynstur A.5a/A.5b eins og áður yfir lykkjur undir fæti, haldið áfram með A.1 í hlið, prjónið A.5 yfir næstu 22-24-26 lykkjur undir fæti, prjónið A.5b (= 1 lykkja), haldið áfram með A.2 í hlið og A.5a yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti.
Þegar stykkið mælist ca 18-20-23 cm frá prjónamerki á hæl, fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við 3 miðjulykkjur í A.2 í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 10-11-12 sinnum = 16 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kantinn efst á sokknum að röngu og saumið fallega niður með litlu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt með natur
symbols = slétt með milligrár
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1433

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Lill wrote:

Förlåt, min fråga var otydlig: V a r i mönstret utgår jag ifrån 31m, för att veta vilka 2m jag ska sticka ihop? Har 33m på ovansidan: Är det från A2 yttersta grå maska + A5b första/sista maska det ska minskas? (Enl. mönster nu 21m (23m inkl. 1 grå maska före +1m efter).

08.12.2023 - 20:05

DROPS Design answered:

Hej Lill, sätt en markör innanför den yttersta maskan i varje sida av de 33 m (från ovansidan), så du har 31 maskor innanför markörerna. Sticka de 2 sista maskorna före markören räta tillsammans med mellangrå och sticka de 2 första maskorna efter markören (i den andra sidan) vridet räta tillsammans med mellangrå.

12.12.2023 - 10:31

country flag Lill wrote:

Ang. hällappen: 1. Mönstret anger ränder enligt A5; betyder det fortsätt A5a/A5b som tidigare eller varannan grå/vit? 2. Minska 2m före respektive 2m efter de mittersta 31m; Vilka maskor avses? Fotens ovansida har 33, 35, 37m - Är det de två maskorna som är före/efter A2 som ska minskas (dvs de 11,13,14 maskorna som plockats upp till hälen) eller vilka maskor avses?

06.12.2023 - 20:08

DROPS Design answered:

Hej Lill, mønsteret A.5a+b er varannan grå/vitt, så det fortsätter du med. Om du stickar minsta storleken, skall du sticka ihop de 2 maskor som är före 31 m. (de 31-33-335m är oförändrat) och de 2 maskor som är efter 31m vridet räta tillsammans :)

07.12.2023 - 07:58

country flag Lill wrote:

Ang. hälens minskning: Vilken färg ska specifikt stickas med för att behålla ränderna när en maska lyfts över den andra osv. ? Följer man mönstret och stickar varannan grå/vit, stämmer det inte, utan blir grå över vit eller vice versa. Ränderna ”avbryts” och blir inte alls fint. Hur stickar jag för att upprätthålla ränderna under hela hälen? Vänligen Lill

23.11.2023 - 12:54

DROPS Design answered:

Hej Lill, hvis indtagningen sker i forbindelse med den hvide stribe skal du strikke den med den hvide tråd (også selv om det var den grå du skulle have strikket) :)

28.11.2023 - 10:41

country flag Helene Forsberg wrote:

Hej! Förstår inte detta: " När sista varvet i A.4 återstår, minskas det 2 maskor jämnt fördelat över de 23-25-27 maskorna i A.4 (de övriga maskorna stickas som förut utan minskningar) = 54-58-62 maskor Vilket är sista varvet på A4? För stickar jag de sista två varven så blir mönstret annorlunda...

14.03.2022 - 12:01

DROPS Design answered:

Hej Helene. Det sista varvet i A.4 är varvet längst upp på diagrammet (diagrammet läses nedifrån och upp). Det är alltså på det varvet med bara mellangrå du minskar 2 maskor så det kommer inte påverka mönstret. Mvh DROPS Design

16.03.2022 - 13:50

country flag Yvonne wrote:

Hallo, ich bin etwas unsicher Chart A 4 hört ja früher auf als A3, strickt man dann A4 wieder von unten nach oben und was ist mit den 2 letzten Reihen bei A3 werden die dann nur über die Hälfte gestrickt😕 Herzliche Grüße

03.09.2020 - 09:43

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, haben Sie die Antwort unten gesehen? Könnte Sie Ihnen helfen?

03.09.2020 - 09:48

country flag Yvonne wrote:

Hallo, ich bin etwas unsicher Chart A 4 hört ja früher auf als A3, strickt man dann A4 wieder von unten nach oben und was ist mit den 2 letzten Reihen bei A3 werden die dann nur über die Hälfte gestrickt😕 Herzliche Grüße

03.09.2020 - 09:13

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, die Runden sind so gestrickt: A.2, A.3, A.2, A.4. Wenn A.3 einmal in der Höhe gestrickt wird, dann wiederholen Sie das Diagram von der 1. Reihe ab = die 1. Reihe von 2. Rapport A.3 in der Höhe wird bei der selben Runde als 9. Reihe in A.4 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

03.09.2020 - 09:24

country flag Agneta Marklund wrote:

När alla varv på A3 är stickade (på skaftet), börjar man om då?

24.02.2020 - 15:36

DROPS Design answered:

Hej Agneta, ja du stickar A.3 tills arb mäter 15 cm, fortsätt enligt mönstret. Lycka till :)

24.02.2020 - 16:33

country flag A Ellis wrote:

Decreases on each side of middle 33 stitches. Are these 25 A3 stitches plus 8 A2 stitches?

18.09.2019 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ellis, right you slipped 4 sts A.2 + 25 sts A.3 + 4 sts A.2 = 33 sts for mid upper foot. Happy knitting!

18.09.2019 - 15:44

country flag A Ellis wrote:

I don’t understand what is meant by the middle 33 stitches for decrease on top

17.09.2019 - 13:53

DROPS Design answered:

Hello! This means you have to decrease on each side of the sock. Happy knitting!

25.09.2019 - 11:47

country flag Irene O wrote:

Takk for nydelig mønster, flott oppskrift. Alle som så meg strikke sokkene (3. par nå) beundret mønsteret!

14.09.2019 - 12:27