Ania skrifaði:
Den vill jag sticka, då modellen håller ett bra tag. Ändå rätt i tiden.
24.06.2016 - 16:03
Jutta Poetz skrifaði:
Mach ich mir :)
18.06.2016 - 13:33
Lisbeth Harders skrifaði:
Wauw
11.06.2016 - 21:27
Nancy Créations skrifaði:
Simple mais beau
10.06.2016 - 14:22
Lisette Van Raadshooven skrifaði:
Love this cozy tunic, for those cold Canadian winters!
07.06.2016 - 21:35
Sonja skrifaði:
Heerlijk relaxed
07.06.2016 - 08:58
Martin skrifaði:
Splendide tout en douceur
06.06.2016 - 12:41
Iviva skrifaði:
Belle !
04.06.2016 - 22:54
Outlander#outlanderlongjumper |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MÆLING: Vegna stærðar á stykkinu verður að gera alla mælingu þegar stykkinu er haldið uppi, annar verður flíkin of síð þegar hún er mátuð. ÚRTAKA: Fækkið l innan við 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hliðum á fram- og bakstykki. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan kantlykkju og prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 110-116-124-132-140-150 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30 cm – LESIÐ MÆLING, fækkið um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 50 cm = 106-112-120-128-136-146 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 7-8-10-12-13-15 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið síðan af 4-5-7-9-10-12 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 98-102-106-110-116-122 l. Haldið áfram í sléttprjóni með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 82-85-88-91-94-96 cm – munið eftir MÆLING, setjið l á þráð fyrir af aflíðandi öxl í byrjun hverrar umf frá handveg (í hvorri hlið) þannig: Setjið 11-12-13-13-14-15 l 2-2-3-2-2-3 sinnum og síðan 13-13-0-14-15-0 l 1 sinni á þráðinn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 83-86-89-92-95-97 cm fellið af miðju 26-26-26-28-28-30 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að setjið l á þráð fyrir aflíðandi öxl. Að auki er felld af 1 l í næstu umf frá hálsi. Allar l hafa nú verið felldar af/fækkað/settar á þráð og stykkið mælist ca 85-88-91-94-97-99 cm (mælt efst uppi á öxl og niður). Klippið frá og endurtakið á hinni öxlinni. Setjið til baka l af þræði frá annarri öxlinni á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt frá röngu – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingum þegar l eru settar á þráðer tengingin á milli 2 l tekin upp og prjónuð snúin slétt með næstu l á prjóni. Fellið síðan af með sl frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp eins og á bakstykki og prjónið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 79-81-84-86-89-91 cm. Setjið nú miðju 14-14-14-16-16-18 l á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 82-85-88-91-94-96 cm setjið l frá þræði fyrir aflíðandi öxl alveg eins og á bakstykki. Þegar allar l hafa verið felldar af/settar á þráð mælist stykkið ca 85-88-91-94-97-99 cm (mælt efst á öxl). Setjið til baka l frá annarri öxlinni á hringprjóna nr 4 og prjónið sl frá röngu eins og á bakstykki áður en fellt er af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-36-38-40-40-42 l á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið til baka yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-9 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 4-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 9-9-10-11-12-13 sinnum = 52-54-58-62-64-68 l. Þegar stykkið mælist 43-42-41-39-38-36 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir allar l í 2-3-4-5-6-7 cm frá prjónamerki (stykkið mælist nú ca 45-45-45-44-44-43 cm). Fellið af 5 l í byrjun 2 næstu umf í hvorri hlið, fellið nú af þær l sem eftir eru (passið að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsaum kant í kant yst í lykkjubogana, en endið þegar eftir eru ca 25 cm að neðan í hvorri hlið (= klauf). Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana frá prjónamerki efst á ermi og niður. Leggið inn ermina undir kantinn í garðaprjóni meðfram handveg í annarri hlið á stykki og saumið niður með fínu spori meðfram handveg og botn á handveg – ATH: Prjónamerkin á ermi eina að passa við hliðarsauma á fram- og bakstykki. Saumið hina ermina í á sama hátt. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 70 til 88 l í kringum hálsmál (meðtaldar l frá þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br og fellið síðan af með sl. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #outlanderlongjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.