DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Weekend Walk

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 171-42
DROPS Design: Mynstur nr bs-109
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 g nr 7820, grænn
Og notið
DROPS KID-SILK
125-150-150-175-175-200 g nr 18, eplagrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA-1:
Fækkið l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál):
Fækkið l innan við 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 5 kantlykkjum að framan: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm.
STÆRÐ M: 11, 20, 28, 36, 44 og 52 cm.
STÆRÐ L: 11, 20, 28, 37, 45 og 54 cm.
STÆRÐ XL: 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.
STÆRÐ XXL: 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XXXL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-98-104-112-124-134 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði BabyAlpaca silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið næstu umf þannig (= frá réttu): 4 l garðaprjón, sléttprjón þar til 4 l eru eftir, endið með 4 l garðaprjón. Haldið svona áfram – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið í lok 2 næstu umf = 92-100-106-114-126-136 l. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 19 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 38 cm = 88-96-102-110-122-132 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-65 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, í annarri hverri umf þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 0-1-1-2-3-4 sinnum og 1 l 0-0-2-2-4-6 sinnum = 82-86-88-92-96-98 l. Þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-83 cm prjónið 6 umf garðaprjón yfir miðju 26-26-28-30-30-32 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), fellið síðan af miðju 16-16-18-20-20-22 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l innan við 5 l garðaprjón í næstu umf við háls = 32-34-34-35-37-37 l. Fellið af þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-89 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-54-57-61-67-72 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið næstu umf (= frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 4 l eru eftir, endið með 4 l garðaprjón – MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram. Þegar stykkið mælist 14 cm, fitjið upp 1 kantlykkju í lok næstu umf frá réttu = 51-55-58-62-68-73 l. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hliði. Þegar stykkið mælist 19 cm er fækkað um 1 l í hlið.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 38 cm = 49-53-56-60-66-71 l. Þegar stykkið mælist 51-52-54-56-58-59 cm fækkið l fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 1 l innan við 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku til skiptis í 4. hverri og í annarri hverri umf alls 14-14-15-16-16-17 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-65 cm fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf frá röngu eins og á bakstykki. Þegar úrtaka fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 32-34-34-35-37-37 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-89 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir handveg í byrjun umf frá réttu. Fækkið l við hálsmál innan við kantlykkju að framan í lok umf frá réttu. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 35-36-37-39-42-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-7-10-8-8-11 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 16-17-18-19-19-21 sinnum = 67-70-73-77-80-84 l. Þegar stykkið mælist 42-41-40-39-37-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-0-1-4-8-9 sinnum, síðan eru felldar af 3 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 47 cm í öllum stærðum. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju niður að garðaprjóni í hliðum (= 14 cm klauf). Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag SJ wrote:

Hi, what does “make 3 ridges” mean? Also what do you mean by “Dec 1 st INSIDE 5 band sts”.. in garter stitch? Thank you.

08.11.2023 - 02:09

DROPS Design answered:

Dear SJ, to get 1 ridge you have to knit 2 rows (see GARTER STITCH), when shaping neck on back piece, you will knit the middle stitches for neck for 6 rows and work the remaining stitches in stocking stitch as before, so that you will have 3 ridges as a neck edge. You will then decrease after the first 5 stitches at the beg of the row from right side on left shoulder back piece / before the last 5 sts at the end of the row from right side on right shoulder back piece (- inside 5 sts) Happy knitting!

08.11.2023 - 08:32

country flag Micheline Aucoin wrote:

Bonjour, besoin d'aide a partir de ''tricoter 3 côtes mousse sur les 26-26-28-30-30-32 m centrales (tricoter les autres mailles comme avant), puis rabattre les 16-16-18-20-20-22 m centrales pour l'encolure et terminer chaque épaule séparément. Diminuer ensuite 1 m à 5 m point mousse du bord au rang suivant côté encolure = 32-34-34-35-37-37 m. Rabattre quand l'ouvrage mesure 75-78-81-84-87-89 cm. Tricoter l'autre épaule de la même façon'' Merci

29.04.2022 - 16:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Aucoin, à la hauteur indiquée, tricotez les premières mailles en jersey comme avant, les 26 à 32 m centrales au point mousse et les dernières mailles en jersey comme avant. Après 6 rangs (= 3 côtes mousse sur les mailles centrales), rabattez les 16-22 m centrales et terminez chaque épaule séparément avec 5 m point mousse côté encolure. Est-ce ce que ceci peut vous aider? Bon tricot!

02.05.2022 - 07:51

country flag Maria S wrote:

Kan denne strikkes i en anden kombination eller andet garn, der ikke er Kid Silk? Min næse er ikke så glad for mohair og lignende.

05.08.2021 - 07:28

DROPS Design answered:

Hej Maria, ja absolut, prøv vores garnomregner. Vælg DROPS Kid-Silk, vælg garnforbrug i din størrelse og vælg 1 tråd, så får du alle vores garnalternativer op (med garnforbrug), som passer til garngruppe A.

05.08.2021 - 10:53

country flag Anneke De Jong wrote:

Ik ben dit vest aan het breien, niet in het groen maar in het zwart. Het garen geeft erg af, ik krijg hele zwarte vingers tijdens het breien. Erg vervelend. Voor dat ik het vest wil dragen, kan ik het spoelen met azijn?

06.10.2020 - 13:31

country flag Fotini wrote:

I don't like working with circular needles can I just follow the instructions using the classic pointed needles instead?

24.08.2020 - 09:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fotini, sure, this pattern consists on different pieces worked back and forth with seams - we here use circular needles to get enough room for all stitches - read more here how to adapt a pattern into straight needles. Happy knitting!

24.08.2020 - 09:41

country flag Marlene Oliden wrote:

Hola quiero saber cuantos puntos me tienen que quedar en cada hombro para la talla M?

20.07.2020 - 02:11

DROPS Design answered:

Hola Marlene. Para la talla M quedan 34 puntos para cada hombro.

20.07.2020 - 20:30

country flag Crystal wrote:

It takes 500 g to make a size medium? So ten 50g balls is all I need?

26.03.2020 - 15:48

DROPS Design answered:

Dear Crystal, in size M you require 350 g DROPS BabyAlpaca Silk (= 7 balls) + 150 g < a href="https://www.garnstudio.com/yarn.php?show=drops-kid-silk&cid=17"DROPS Kid-Silk (= 6 balls). You will work with 1 strand of each yarn (= BabyAlpaca Silk + Kid-Silk) with a tension of 17 sts x 22 rows = 10 x 10 cm in stocking stitch. Read more about amount of yarn here and about tension there. Happy knitting!

26.03.2020 - 16:32

country flag Małgorzata wrote:

Witam.Czy po zamknięciu środkowych oczek tyłu na dekolt i podziale robótki,dalej przerabiamy 5 wewnętrznych oczek ściegiem francuskim?

18.02.2020 - 23:31

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu! Tak, przerabiamy 5 o. z każdej strony dekoltu ściegiem francuskim. Pozdrawiamy!

19.02.2020 - 17:46

country flag Anneke De Jong wrote:

Kan ik dit vest ook in gerstekorrel breien?

02.01.2020 - 19:23

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Ja, dat zou prima kunnen. Meestal is de stekenverhouding van gerstekorrel ongeveer gelijk als die van tricotsteek, maar maak voor de zekerheid even een proeflapje.

08.01.2020 - 09:06

country flag Nyarla wrote:

Bonjour, j'aimerais réaliser ce modèle en XL mais avec un seul fil : DROPS Nepal. Pourriez-vous m'indiquer le métrage nécessaire ? Merci

05.11.2019 - 18:50

DROPS Design answered:

Bonjour Nyarla, vous trouverez ici toutes les informations sur les alternatives, y compris comment calculer la quantité nécessaire. Bon tricot!

06.11.2019 - 08:44