Wilma skrifaði:
Graag zou ik willen weten of a2 van het patroon moet herhalen en hoe loopt de volgorde van het patroon
09.10.2016 - 12:26DROPS Design svaraði:
Hoi Wilma. Je breit A.2 één keer in de hoogte. Daarna brei je door als volgt: 6 kant st in ribbelst, 45-53-59-65 st in tricotst, ga verder A.1 over de volgende 13 st, brei A.4 over de volgende 36 st, ga verder A.3 over de volgende 16 st en eindig met 2 kant st in ribbelst. En zo brei je door tot ongeveer 45-45-52-52 cm enzovoort.
10.10.2016 - 11:12
Eva Laitinen Haglund skrifaði:
Hej! Jag har fått 8 nystan Lace av en väninna vilket är MÅNGA meter garn. Skulle det passa till att att sticka denna? Det är mest Lace-mönster till sjalar.
05.10.2016 - 11:33DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Denne er jo strikket i meget tykkere garn (Air) end Lace. Du skal da evt arbejde med 3-4 traade eller aendre strikkefasthed (antal masker). Du kan laese her hvordan du beregner hvor meget garn du skal bruge.
05.10.2016 - 12:31Ele Ancona skrifaði:
Hola, dos preguntas: 1) el patrón no lo tienen en español? Me es difícil traducir los puntos... 2) se teje de manera horizontal? Es decir, empiezo el tejido x un costado? Mil gracias!
07.08.2016 - 04:24DROPS Design svaraði:
Hola Ele. El patrón está publicado en español desde finales de julio: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=7546&cid=23. El poncho se trabaja en dos partes de lado a lado.
07.08.2016 - 11:29
Katrin skrifaði:
Tolles Teil! Ich freue mich schon auf die kühle Jahreszeit ;)
30.06.2016 - 21:19
Anca skrifaði:
Molto bella! Casual!
26.06.2016 - 09:58
Jutta Poetz skrifaði:
Ein wunderschoener Poncho, perfect fuer die kuehle Jahreszeit.
18.06.2016 - 13:46
Alida Drijkoningen skrifaði:
Prachtig model. Fijn om te dragen tussen de seizoenen. Beautiful model. Fine to wear between the seasons.
15.06.2016 - 08:21
Gemma Gola skrifaði:
Mi piace. Sembra confortevole e originale
13.06.2016 - 16:36
DELCHET skrifaði:
Ce modèle donne très envie de se lover dedans.
06.06.2016 - 13:55
Claudia skrifaði:
Tolles Übergangsteil. freu mich schon auf die Anleitung
05.06.2016 - 16:33
Alanna#alannaponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
DROPS poncho úr Air prjónað frá hlið með köðlum, háum kraga og skúfum. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-49 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjóna. Síðan eru stykkin saumuð saman á öxl og kragi í hálsmáli er prjónaður í hring í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 112-120-126-132 l á hringprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 45-53-59-65 l sléttprjón, A.1 (= 13 l), A.2 (= 30 l), A.3 (= 16 l) og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu alveg eins = 118-126-132-138 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 45-53-59-65 l sléttprjón, haldið áfram A.1 yfir næstu 13 l, prjónið A.4 yfir næstu 36 l, haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 l og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 45-45-52-52 cm setjið 1 prjónamerki í lok umf frá réttu, þ.e.a.s. ef prjónfestan heldur sig á hæðina á nú að vera 8 cm í stærð S/M + L/XL þar til prjónuð er til loka heil mynstureining A.4 á hæðina og 9 cm í stærð XXL + XXXL þar til prjónuð er til loka hálf mynstureining A.4 á hæðina – þ.e.a.s. það eru eftir 8-8-9-9 cm þar til stykkið mælist 53-53-61-61 cm (= miðja að framan). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 108-116-122-128 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls þar til stykkið mælist 8-8-9-9 cm frá prjónamerki og setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja að framan). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 2-2-3-3 cm frá prjónamerki við miðju að framan. Fitjið nú upp l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 1 l 3 sinnum, 2 l 2 sinnum og 3 l 1 sinni = 118-126-132-138 l á prjóni (stykkið mælist nú ca 16-16-18-18 cm frá fyrsta prjónamerki (= háls). Haldið áfram með mynstur yfir allar l eins og áður þar til stykkið mælist ca 102-102-118-118 cm – endið eftir heila mynstureiningu A.4 á hæðina (= alls 6-6-7-7 mynstureiningar með A.4 á hæðina). Prjónið 1 umf frá réttu eins og áður, en 6 l í hverjum kaðli eru prjónaðar slétt saman tvær og tvær = 112-120-126-132 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5, prjónið 12 umf garðaprjón og fellið af með sl frá réttu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Þegar fellt er af fyrir hálsmáli er það gert alveg eins, nema fellt er af þannig: Fellið af 1 l 1 sinni og 2 l 1 sinni = 115-123-129-135 l á prjóni. Þegar prjónaðir hafa verið 6-6-7-7 cm frá prjónamerki við miðju að aftan eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli alveg eins og á framstykki, nema nú er fitjað upp þannig: Fitjið upp 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 118-126-132-138 l á prjóni. Prjónið síðan áfram á sama hátt og á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið saman 2 stykkin á öxl – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið jafnvel spor í hverja hlið ca 30-35 cm frá öxl og niður. HÁR KRAGI: Prjónið upp frá réttu ca 68 til 78 l í kringum hálsmál á stutta hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er jafnt út til 96-96-104-112 l (deilanlegt með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 10 cm er aukið út önnur hver 2 l sl til 3 l sl = 108-108-117-126 l. Þegar stroffið mælist 18 cm eru auknar út þær 2 l sl sem eftir eru til 3 l sl = 120-120-130-140 l. Haldið áfram hringinn með 3 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist ca 20-22-22-24 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið kragann niður. SKÚFAR: Notið pappírsbút eða álíka ca 15 cm. Vefjið þráðunum 25 sinnum utan um pappírsbútinn (eða að óskaðri þykkt). Notið annan þráð til að binda fast utan um þræðina á öðrum endanum. Takið annan þráð og þræðir í gegnum “lykkjuna” sem nú hefur myndast efst á skúfnum og notið þráðinn til að festa skúfinn á ponchoið. Klippið upp á milli endana á öðrum endanum á skúfnum. Gerið einn skúf í hvert horn á poncho (= 4 skúfar). |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alannaponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.