WESLEY JOYCE LUCAS skrifaði:
Hello! Is it permissible to do a magic ring instead of the beginning chain and slip stitch?
22.05.2022 - 09:03DROPS Design svaraði:
Dear Wesley, yes, you can do a magic ring instead. Happy crocheting!
22.05.2022 - 23:03
Annica Schnedler skrifaði:
Jeg forstår ikke det som står under hækleinfo. (På beg af hver række med fm, erstattes første fm med 1 lm. Rækken afsluttes med 1 km i lm fra beg af forrige række.) Når jeg gør dette, så får jeg mindre og mindre masker tilbage, for hver hæklet række. Hvad gør jeg forkert? Mvh annica
08.12.2019 - 11:54DROPS Design svaraði:
Hei Annica! Om det alltid hekles en kjedemaske i luftmasken som ble heklet på forrige rad skal maskeantallet ikke endre seg. Husk at for hver rad som hekles erstatter 1 luftmaske 1 fastmaske, på neste rad skal den luftmasken hekles med en kjedemaske. Lykke til!
09.12.2019 - 11:34
Veronica skrifaði:
Adoro queste pantofole, sono semplicissime da fare e davvero comode !!!
15.03.2017 - 20:41
Simple Steps |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með spæl og blómum úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS Extra 0-1280 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er í hring. Umf með fl er hekluð í hring, þ.e.a.s. ekki eru heklaðar kl í lok umf, heldur er haldið áfram með fl í næstu fl. Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. Umf endar með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og aftur að rist, síðan er heklað fram og til baka fyrir miðju aftan á hæl. TÁTILJA: Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með litnum vatnsblár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6-6-5 fl um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12-12-10 fl. UMFERÐ 3 (og síðan í aðra hverja umf): Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 18-18-15 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 6: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 24-24-20 fl. UMFERÐ 8: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 30-30-25 fl. UMFERÐ 10: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 36-36-30 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 35/37. UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-5 sinnum = 42-35 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 38/40. UMFERÐ 14: * 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl. UMFERÐ 16: * 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43. ALLAR STÆRÐIR: = 36-42-45 fl í umf. Heklið í hring með 1 fl í hverja fl (án þess að enda umf), þar til stykkið mælist 9-11-13 cm. Heklið síðan fl fram og til baka yfir fyrstu 24-30-32 fl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 12-12-13 fl í umf) – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar tátiljan mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 11-11-12 cm frá skiptingu) setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið (= 12-15-16 fl hvoru megin við prjónamerkið). Í næstu umf er fækkað um 1 fl hvoru megin við prjónamerkið, þ.e.a.s. byrjið 2 l á undan prjónamerkið og heklið 4 næstu fl saman 2 og 2 – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 fl færri) = 20-26-28 l eftir í umf. Heklið 1 umf án úrtöku, leggið tátiljuna saman tvöfalda og heklið saman við miðju að aftan með eina umf kl í gegnum bæði lögin (tátiljan mælist nú ca 22-24-27 cm frá tá og að hæl). Klippið frá og festið enda. KANTUR: Byrjið fyrir miðju að aftan og heklið kant efst í kringum opið á tátiljunni þannig: 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið umf með 1 kl í fl í byrjun umf (í stað 1 fl í næstu l). Klippið frá og festið enda. SPÆLL: Heklið 5 ll með heklunál nr 3,5 með litnum vatnsblár. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 3 ll = 4 fl í umf. Heklið síðan fram og til baka með 1 fl í hverja fl – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar spællinn mælist 10-11-12 cm er klippt frá (klippið þráðinn nægilega langan til að geta saumað spælinn niður). Saumið niður skammhliðar á spæl yfir opi á tátilju. Heklið aðra tátilju á sama hátt. HEKLAÐ BLÓM: Heklið blóm eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með litnum vatnsblár og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (= 1 hst), 2 hst um hringinn, * 5 ll, 1 fl um hliðina á síðasta hst sem var heklaður, 3 hst um hringinn *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl um hliðina á síðasta hst sem var heklaður, endið með 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 6 ll-bogar með 3 hst á milli hverra. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn sæblár. Heklið 1 fl í miðju af 3 fyrstu hst í umf, hoppið yfir 1 hst, * 10 st um ll-bogann, hoppið yfir 1 hst, 1 fl í næsta hst. Hoppið yfir 1 hst *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 10 st um síðasta ll-bogann, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá, festið blómið á spælinn á tátiljunni. Heklið annað blóm á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1280
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.