Carol Bond wrote:
Is this pattern available in English, if so, how do I access it?
15.10.2020 - 01:50DROPS Design answered:
Dear Mrs Bond, sure all our patterns are available in English - click on the scroll down menu below the photo and select either UK-English or US-English. Happy knitting!
15.10.2020 - 09:18Christa wrote:
Ich trage Gr. 40, Fußlänge ist aber mehr als 24cm. Wird hier eingerechnet, dass der Stoff beim Tragen nachgibt? Ich möchte mit Paris stricken
20.06.2019 - 01:18DROPS Design answered:
Liebe Christa, die Hausschuhen sollten auch in 40 schön halten, die Länge vor A.2 können Sie immer anpassen - einfach zuerst anprobieren, vergessen Sie aber nicht, die unterschiedlichen Materialen sollte auch in Betracht zu ziehen. Viel Spaß beim stricken!
20.06.2019 - 08:54Myriam Fages wrote:
Je voudrais réaliser ce modele de chausson en coton. Pouvez vous me dire qu'elle qualité je devrai utiliser pour que ce soit le plus proche du modele. Merci Myriam
25.02.2018 - 08:29DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fages, vous pouvez tricoter avec 2 fils du groupe A ou 1 autre fil du groupe C (type Paris pour le coton), essayez notre convertisseur pour avoir la quantité nécessaire pour votre taille. Bon tricot!
26.02.2018 - 09:17Katie wrote:
Have knitted a dozen of these for friends and family would suggest having a go because they are brilliant. Love the variety of patterns thank you so very much. x
02.04.2017 - 22:06Danni Rekeweg wrote:
Elegant yet simple.These are gorgeous.
05.01.2016 - 20:15Johanna Gistvik wrote:
Cute!
14.12.2015 - 15:58
Snow Fairy |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðar tátiljur með gatamynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS 168-25 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir að gat verði framan á tá þá er byrjað á þessari aðferð: Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni og dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. dragið þráðinn aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóninum, * stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjón (þ.e.a.s. að síðasta l sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 16 l eru á prjóni. Skiptið l á sokkaprjóna nr 4. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Sjá mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað í hring frá tá. Þegar fellt er af fyrir op fyrir fót er prjónað fram og til baka. Síðan eru fitjaðar upp l fyrir hæl og haldið er áfram í hring þar til stykkið er tilbúið. Byrjun umf = miðja undir fæti. TÁTILJA: Byrjið með Nepal og GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan MYNSTUR eftir A.1 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 36-40-44 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í 22.-26.-29. umf í mynstri er felld af 1 l fyrir op fyrir fót (sjá mynstur) = 35-39-43 l. Haldið áfram út umf = 34-38-42 l. Prjónið fyrstu 17-19-21 l í mynstri (sjá ör), snúið við og haldið síðan áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið nú A.2 þannig: Fitjið upp 15-15-17 nýjar l með 2 þráðum (= aftan, efst á hæl) = 36-40-44 l. Prjónið síðan áfram í hring með 1 þræði þannig: Prjónið sl yfir næstu 11-13-14 l, setjið eitt prjónamerki (= mitt undir fæti og í byrjun umf). Haldið síðan áfram eins og útskýrt er í mynstri til loka. Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 16-20-24 l eftir í umf, fellið af þær l sem eftir eru. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman hæl í l eina og eina innan við affellingarkantinn. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Valéria wrote:
A kezdő szemszám nem egyezik, 12 szerepel a 16 helyett, illetve az van írva, hogy 4,5-es tűre szedjük fel a szemeket, de egyébként 4-es kötőtűvel készül a darab, lehetséges, hogy ez is elírás? Köszönöm!
24.07.2023 - 10:27