Sabine skrifaði:
Hallo liebes drops Team, Ich verzweifele mit der Anleitung. Meiner Meinung nach sind auch auf Ihren Fotos wesentlich mehr Maschen zu sehen als angegeben. Ich komme in der letzten Runde auf 105 Maschen und nicht auf 90. 15 × 7 = 105. Es sollte ja 15 × 6 = 90 laut Anleitung sein, das stimmt aber nicht. Kann es etwa sein, dass die A1 Maschen als "Masche" zählen? Ich kann mir meine Abweichung nicht erklären und wenn ich Ihr o.g. Foto stark vergrössere, sehe ich auch 105 Maschen.
22.07.2018 - 21:57
Martine skrifaði:
Je ne vois pas comment on arrive à un total de 90m et pas plus... Au tour 6 de B: 63B + les m Et ensuite il reste les augmentations des 3 derniers tours...
14.02.2018 - 10:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, à la fin de A.2 vous avez 15 ms dans chaque motif de A.2 que vous répétez 6 fois au total tout le tour = 15x6 = 90 ms. Bon crochet!
14.02.2018 - 11:40
Martine skrifaði:
Bonjour Y a-t-il bien 13 B au premier tour dans le rond ? --- Soit 3 m de A1 pour la première bride plus 12 B ...
12.02.2018 - 17:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, tout à fait, on crochète 1 fois A.1 et 6 fois A.2 en largeur, on va avoir 3 ml (= A.1) et 6x 2 brides (= A.2) = 12 brides + 3 ml. Bon crochet!
13.02.2018 - 08:33
Gitta skrifaði:
Eine richtig schöne und ansprechende Farbkombination, sehr inspirierend!
01.04.2016 - 11:40
Radiance#radianchepotholders |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðir pottaleppar úr DROPS Paris með röndum.
DROPS Extra 0-1248 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf með st byrjar með 3 ll og endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Hver umf með fl byrjar með 1 ll og endar með 1 kl í 1. ll í byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. RENDUR: Uppfitjun + UMFERÐ 1: vanillugulur UMFERÐ 2: ferskja UMFERÐ 3: apríkósa UMFERÐ 4: ferskja UMFERÐ 5: sinnep UMFERÐ 6: natur UMFERÐ 7: apríkósa UMFERÐ 8: kórall UMFERÐ 9: vanillugulur UMFERÐ 10: sinnep UMFERÐ 11: ferskja LITASKIPTI: Allar umf enda með 1 kl í lit næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pottalepparnir eru heklaðir í hring í 2 stykkjum áður en þeir eru heklaðir saman. POTTALEPPUR FRAMHLIÐ: Heklið 4 ll með litnum vanillugulur með heklunál nr 4,5 og tengið saman í hring með 1 kl. Haldið síðan áfram með MYNSTUR og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ LITASKIPTI! A.2 er endurtekið alls 6 sinnum í umf. ATH: A.1 sýnir hvernig umf byrjar og endar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt mynstrið hefur verið heklað til loka á hæðina eru 90 fl + 1 ll í byrjun umf. Klippið frá og festið alla enda. BAKHLIÐ: Heklið 4 ll með litnum vanillugulur og tengið saman í hring með 1 kl. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Sjá útskýringu að ofan. Heklið 12 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: Heklið * 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st. UMFERÐ 4: Heklið * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn sinnep og heklið 2 fl í hvorn af fyrstu 2 st, * 2 fl í næsta st, 1 fl í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* þar til 2 st eru eftir, 2 fl í hvorn af næstu 2 st = 63 fl. Heklið síðan mynstur og rendur frá 5. umf í A.1 og A.2. A.2 er endurtekið alls 6 sinnum í umf. Þegar allt mynstrið hefur verið heklað til loka á hæðina eru 90 fl + 1 ll í byrjun umf. Klippið frá og festið alla enda. Heklið nú 2 stykkin saman með litnum ferskja þannig: Leggið stykkin tvö ofan á hvort annað með réttu út. Festið endann með 1 kl í byrjun umf á framhlið á pottaleppnum og heklið 14 ll fyrir lykkju, heklið síðan 1 kl í fyrstu ll í umf. Heklið nú í gegnum bæði stykkin á pottaleppnum: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 14 fl, heklið 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar og endið með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið annan pottalepp á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #radianchepotholders eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1248
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.