Karin skrifaði:
Jag undrar över ränderna. På bilden ser det ut som att det är tex zink och natur, malva och natur osv på de nedersta ränderna, men så står det inte i texten.
22.02.2021 - 07:09DROPS Design svaraði:
Hej Karin. De glesa ränderna nere på tröjan stickas enligt förklaring "RÄNDER FRAM- OCH BAKST:" och ränderna på oket (efter att ärmar och fram- och bakstycke satts ihop) stickas enligt diagram A.1. Hoppas det är till hjälp. Mvh DROPS Design
22.02.2021 - 10:41
Anette skrifaði:
Jeg synes ikke jeg kan få det til at passe i den pind hvor man både skal strikke hulmønster og lave raglan indtagninger, hvordan gør man der?
03.10.2020 - 00:39DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Du feller i alle radene fra retten, også ved hullmønstret. Du strikker de 2 maskene før merket sammen uten å lage last (da blir det 1 maske mindre). God Fornøyelse!
05.10.2020 - 11:58
Gro skrifaði:
Hei, Det står at man skal felle ragland i alle runder fra retten. Skal man også gjøre dette i runden med mønster der det er "to rette sammen og ett kast". Hvordan feller man ragland da i såfall?
23.09.2016 - 13:18DROPS Design svaraði:
Hej Gro. Ja, du feller i alle p fra retten, saa ogsaa i mönster. Du strikker de 2 m för merket sammen uden at lave kast (saa der bliver 1 m mindre).
13.10.2016 - 16:16
Krentner Maréka skrifaði:
Ma demande faite plus bas concerne le modéle 169/30 le pull et non le gilet. Merci
27.03.2016 - 17:49DROPS Design svaraði:
Voir réponse ci-dessous - bon tricot!
29.03.2016 - 09:55
Krentner Maréka skrifaði:
Bonjour, le diagramme A1 est à tricoter combien de fois car pour arriver à passer de 280 mailles à 136 mailles et à faire 18 fois les diminutions tous les 2 tours, (le diagramme fait 8 diminutions) j'aurais bien aimé que l'on nous précise la hauteur de ce diagramme. Merci de votre réponse. Maréka
27.03.2016 - 16:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Krentner, en taille S pour le pull, vous devez diminuer pour le raglan 18 fois tous les 2 tours = 36 tours au total, A.1 = 16 tours, il vous faudra donc tricoter 2x A.1 + les 4 premiers tours du diagramme (32+4=36 tours). Bon tricot!
29.03.2016 - 09:55
Gro skrifaði:
Hei. Jeg ønsker å strikke denne med lange armer. Er det bare å forlenge litt på armene, eller bør de smales inn nederst i såfall?
13.03.2016 - 12:09DROPS Design svaraði:
Hej Gro, ja det er bare at forlænge, nej du behøver ikke gøre dem smallere nederst, bare du forlænger nederst.
14.03.2016 - 08:58
Maria Gamba skrifaði:
I have downloaded the free version of this sweater - VS-023, but I would like to make this version with the buttons -VS-024. Do I need to buy a new pattern or can I get instructions on how to convert the free version to open the front and add the buttons?
30.01.2016 - 16:49
Liz skrifaði:
Gefällt mir ausnehmend gut. Die Farbenkombination ist super - das Modell ist einfach und doch elegant.
11.01.2016 - 14:35
Freja Cardigan#frejacardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle með röndum, gatamynstri, ¾ ermum og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-31 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: 1 umf slétt frá röngu með litnum zink, 1 umf slétt frá réttu með litnum zink, 6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf frá röngu með litnum malva, 1 umf slétt frá réttu með litnum malva, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf slétt frá röngu með litnum fífil, 1 umf slétt frá réttu með litnum fífil, 6-6-6-6½-6½-6½ cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf slétt frá röngu með litnum natur, 1 umf slétt frá réttu með litnum natur. RENDUR ERMI: 1 umf brugðið með litnum zink, 1 umf slétt með litnum zink, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf brugðið með litnum malva, 1 umf slétt með litnum malva, 4 cm sléttprjón með litnum ljós beige, 1 umf brugðið með litnum fífil, 1 umf slétt með litnum fífil, 4 cm slétt með litnum ljós beige, 1 umf brugðið með litnum natur, 1 umf slétt með litnum natur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (= 2 l fleiri). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist þannig: STÆRÐ S: 10, 17, 24, 31, 38, 45 og 52 cm. STÆRÐ M: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 54 cm. STÆRÐ L: 12, 19, 26, 33, 40, 48 og 56 cm. STÆRÐ XL: 10, 17, 24, 31, 38, 45, 52 og 58 cm. STÆRÐ XXL: 11, 18, 25, 32, 39, 46, 53 og 60 cm. STÆRÐL XXXL: 12, 19, 26, 33, 40, 47, 54 og 62 cm. ATH: Stillið af að fjögur fyrstu hnappagötin séu staðsett mitt í litarönd – sjá ljósmynd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 171-187-203-223-251-275 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón, en síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantlykkjur að framan). Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki 45-49-53-58-65-71 l inn frá hvorri hlið (= 81-89-97-107-121-133 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 8-8-8-9-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 187-203-219-239-267-291 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12-10-11-12 cm prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI - sjá útskýringu að ofan. ATH: Í þeim umf þar sem prjónað er með öðrum lit en grunnlit á þessi litur einnig að vera prjónaður út í kant að framan, nema í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar rendur byrja þá er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjóni með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 46-50-53-58-64-70 l (= vinstra framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 83-91-97-107-119-131 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg og prjónið þær l sem eftir eru 46-50-53-58-64-70 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 54-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýring að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 6-5-4-3½-3-2½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-9 sinnum = 64-68-72-76-78-82 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-11-10-9-8 cm prjónið RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka er haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 33-32-31-31-30-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l, prjónið næstu 58-62-64-68-68-72 l og fellið af þær 3-3-4-4-5-5 l sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna nr 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 291-315-331-359-383-415 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Prjónið mynstur fram og til baka eftir mynsturteikningu A.1 með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (1. umf = rétta – ATH: A.1 er endurtekið). JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 18-20-21-22-23-24 sinnum = 147-155-163-183-199-223 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka frá miðju að framan. Eftir 2 cm í garðaprjóni (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu), fækkið um 28-28-27-26-26-26 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 119-127-136-157-173-197 l. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 4 cm í öllum stærðum er fækkað um 24-24-23-23-23-23 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 95-103-113-134-150-174 l. Endurtakið úrtöku einu sinni til viðbótar í stærð XL + XXL + XXXL þegar kantur í garðaprjóni mælist 5 cm, en nú er fækkað um 19-25-39 l jafnt yfir. Eftir alla úrtöku eru 95-103-113-115-125-135 l eftir á prjóni. Fellið laust af þegar kantur í garðaprjóni mælist 5-5-5-6-6-6 cm, peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frejacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.