Carrie skrifaði:
I am on round 5 working sz XL. Can you please explain how I am supposed to increase between stitch markers? I thought I was supposed to follow the diagram stitches... Where do I add extra stitches to increase? I really want to make this pattern but it is very confusing! Such a beautiful sweater, please help! :)
27.07.2018 - 06:24DROPS Design svaraði:
Dear Carrie, you are right, you are supposed to follow the diagram stitches, but at the same time, you will increase evenly 6 sts between 2nd and 3rd marker and 6 sts between 6th and 7th marker = there are now 18 sts between 2nd/3rd and between 6/7th marker and you can now repeat A.1 a total of 3 times in width between these markers. Happy crocheting!
27.07.2018 - 10:02Bev skrifaði:
I have worked the first rounds up to the round (3) where the 8 stitch markers are placed. There are no further instructions as to how to continue the pattern. The next instructions for XL are for row 6. I do not know how to continue with the pattern - A1, A2 or A3 or should I proceed with A1 and A2 as was given for the row for the stitch marker placement 2 repeats of A1 and 1 repeat of A2? Please could you help as I was enjoying the pattern so far. Thank you.
28.05.2018 - 18:20DROPS Design svaraði:
Dear Bev, continue working in pattern as stated before working to row 5 included as shown in diagrams. Then on row 6, increase evenly as explained. Happy crocheting!
29.05.2018 - 08:46
Ingun skrifaði:
Ich liebe diesen Pullover und würde ihn wirklich gerne nacharbeiten. Aber ich kann Häkelschriften einfach nicht lesen. Es wäre schön, wenn es hierzu auch eine Video-Tutorial geben würde.
20.05.2018 - 08:33Barbara Hatherall skrifaði:
On the A4 diagram there are vertical lines placed after the black dot for a slipped stitch. What do these represent please
07.05.2018 - 12:10DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hatherall, these vertical lines are dividing the beg/end of rounds (= A.4) and the diagram you have to repeat over the described sts (= A.1, A.2 and A.3). Happy crocheting!
07.05.2018 - 13:12Barbara Hatherall skrifaði:
On the A4 diagram what does the vertical lines stand for along side the black dot for slip stitch please.
07.05.2018 - 12:07DROPS Design svaraði:
See answer above:)
07.05.2018 - 13:17
Astrid skrifaði:
\"Haak A.1a (zie pijl voor waar het patroon begint voor de verschillende maten)\". Ik haak maat S. Ik snap drie keer in de breedte. Maar hoe zit het met de hoogte? Welke toeren maak ik? Als ik het goed begrijp, werk ik van beneden naar boven in het patroontje. Maar wat ik dan niet snap is dat je voor maat S meer toeren moet maken dan voor zeg maar L. En als ik dan boven ben bij de toer afsluitende stokjes (waar XXL bij staat), ben ik dan klaar of begin ik dan weer onderaan het patroon?
02.05.2018 - 09:03DROPS Design svaraði:
Dag Astrid, Je haakt inderdaad naar boven toe en je begint met de toer waar de pijl van jouw maat bij staat. Voor A.1a is het inderdaad zo dat je meer toeren haakt dan de grotere maten, maar als je verder gaat met het patroon in jouw zul je zien dat dat op een andere plek weer gecompenseerd wordt.
02.05.2018 - 20:43
Roberta Cresca skrifaði:
Buongiorno, ho una domanda: cosa significa, al 6o giro, dopo aver eseguito gli aumenti i ducati, che devo " ripetere il diagramma A.1 2-2-3-3-4-4 volte tra il 2° e 3° segnapunti, 6-7-8-8-9-10volte tra il 4° e 5° segnapunti, 2-2-3-3-4-4 volte tra il 6° e 7° segnapunti e 6-7-8-8-9-10 volte tra l’8° e il 1° segnapunti\"? devo andare avanti con gli aumenti? Non capisco, scusatemi...grazie in anticipo Roberta
21.04.2018 - 11:45DROPS Design svaraði:
Buongiorno Roberta. Aumenta al sesto giro. Al giro successivo non aumenta, ma in base al nuovo numero di maglie che ha, lavora A.1 (p.es. per la taglia S), 2 volte tra il secondo e il terzo segno, 6 volte tra il quarto e il quinto segno e così via. Buon lavoro!
22.04.2018 - 08:55
Ninnimus skrifaði:
Hei! Olenko ymmärtänyt oikein, että kainalon olla olevilla silmukoilla (8kpl) jatketaan A.1a mallikertaa normaalisti ensimmäisen kerroksen jälkeen? Kysymykseni siis on, että monta mallikertaa on tarkoitus tulla kainalon alle koossa S heti toisella kerroksella? En saa silmukoita täsmäämään mallikerran kanssa.
19.04.2018 - 11:55
Louaked Evelyne skrifaði:
Bonjour quand au depart de l empiecement il faut crocheter A2 sur 4m seules 3m sont utilisées comment tricote on la 4e?
18.03.2018 - 12:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Louaket, A.2 se crochète sur 4 m (au 1er rang): 1 ms dans la 1ère bride, 3 ml, sautez 1 bride, 1 bride dans la bride suivante, 3 ml, sautez 1 bride. Bon crochet!
19.03.2018 - 10:41
Mette Rasmussen skrifaði:
Synes det er en dårlig beskrivelse
01.03.2018 - 17:43
Seashore Bliss#seashoreblisssweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri og hringlaga berustykki. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-15 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig hver umf byrjar og endar. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG: Stærð S, M och XL: Í síðustu mynstureiningu af A.2 á undan prjónamerki 1 og prjónamerki 3 (= byrjun á handveg) er síðustu loftlykkju í mynsturteikningu skipt út fyrir stuðul í lykkju að neðan. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. ATH: Mikilvægt er að halda heklfestunni á hæðina svo að lengdin á berustykkinu passi. BERUSTYKKI: Heklið 108-108-117-117-124-124 ll með heklunál nr með Muskat og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið fyrstu umf þannig: Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 18-18-22-22-28-40 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 112-112-124-124-136-148 st. Heklið næstu umf og setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf, heklið A.2 yfir fyrstu 4 st, setjið 2. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 4. prjónamerki, heklið A.1 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), setjið 5. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 6. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 7. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 8. prjónamerki, A.1 yfir síðustu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! STÆRÐ XXL-XXXL: Í umf 5 (umf með st frá réttu) í A.1 er aukið jafnt út þannig: Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út 6-6 st. Nú hefur verið aukið út um 12-12 st alls í umf (= 18-18 st á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis). A.1 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis). A.2 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis. ALLAR STÆRÐIR: Í umf 6 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig: Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út um 0-0-6-6-6-6 st (= 12-12-18-18-24-24 st á milli þessa prjónamerkja). Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 st (= 36-42-48-48-54-60 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis, 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis, 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 6. og 7. prjónamerkis og 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 8. og 1. prjónamerkis. A.2 er síðan heklað eins og áður. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Í umf 8 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig: Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 6-6-6 st (= 54-60-66 st á milli hverra prjónamerkja). Aukið út um 12-12-12 st alls í umf. A.1 er endurtakið 9-10-11 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis. Endurtakið útaukningu í umf 10 í A.1(= 60-66-72 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 10-11-12 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis. ALLAR STÆRÐIR: Í síðustu umf í A.2 setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í hvert mynstur A.2 (þ.e.a.s. 18 st hvoru megin við prjónamerki í A.2 = 4 prjónamerki). Takið frá eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja ermar (= 48-48-54-54-60-60 st á hvorri ermi). Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-276-300-324-336 st í umf. Berustykkið er nú tilbúið í stærð S. STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL: Haldið áfram með mynstur A.1 eins og áður, en yfir st í A.2 (= 36 st) er heklað A.3 alls 2 sinnum á breiddina (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa endurtekninga). Heklið 1-2-3-4-5 umf af A.3 (sjá ör í mynstri fyrir rétta stærð). Stykkið mælist nú 17-18-19-20-21-22 cm á hæðina. ALLAR STÆRÐIR: Heklið A.1a (sjá ör hvar mynstrið byrjar í mismunandi stærðum) alls 3 sinnum á breiddina fram að fyrsta prjónamerki, heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 12-13-14-16-17-18 sinnum á breiddina fram að næsta prjónamerki (= framstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 9-10-11-13-14-15 sinnum á breiddina (= 160-172-184-212-224-236 l). Klippið frá og festið enda. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið umf mitt undir ermi þannig: STÆRÐ S-L-XXL-XXXL: Heklið frá réttu þannig: Heklið A.6, endurtakið A.2a (sjá ör hvar mynstrið byrjar eftir stærðum) alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina fram að 1. prjónamerki (= vinstra framstykki), heklið 8-8-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 1. og 2. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 12-14-17-18 sinnum á breiddina fram að 3. prjónamerki (= bakstykki), heklið 8-8-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 3. og 4. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina, endið á A.8. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! STÆRÐ S-L: Heklið 1 kl í 5. ll, 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 fl í hverja af 8-8 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður út umf. Þær 8-8 l undir hvorri ermi eru heklaðar eins og 1. l í A.1a. STÆRÐ M-XL-XXL-XXXL: Heklið 1 kl í 5. ll, 3 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 3-5-5-5 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 st í hverja af 8-10-10 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður. Þær 8-10-10-10 l undir hvorri ermi er heklað eins og 1. l í A.1a. ALLAR STÆRÐIR: Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umf með st er fækkað um 4-4-4-2-2-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 156-168-180-210-222-234 st. A.1a er endurtekið 26-28-30-35-37-39 sinnum á breiddina. Endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 150-162-174-204-216-228 st. A.1a er endurtekið 25-27-29-34-36-38 sinnum á breiddina. STÆRÐ XL: Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki = 198 st. A.1a er nú endurtekið 33 sinnum á breiddina. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 6 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili 5-5-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 186-198-222-246-264-276 st. A.1a er endurtekið 1 sinni til viðbótar fyrir hvert skipti sem aukið er út. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er endurtekið A.1a 31-33-37-41-44-46 sinnum á breiddina. Heklið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá prjónamerki, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda. ERMI: STÆRÐ S: Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 yfir næstu 18 st, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3 yfir næstu 18 st, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 l undir ermi. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 56 st í síðustu umf. STÆRÐ M-XL-XXL: Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8-10-10-10 ll sem voru heklaðar í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja af næstu 4-6-6-6 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2-3-4 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 st í hvern af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8-10-10-10 st undir ermi. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 56-64-70 st í síðustu umf. STÆRÐ L: Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 3 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 st undir ermi. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 62 st í síðustu umf. STÆRÐ XXXL: Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af 10 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið síðan 1 st í hverja af næstu 6 ll, heklið A.1a yfir næstu 60 st, endið á 1 st í hverja af síðustu 3 ll = 70 st. ALLAR STÆRÐIR: = 56-56-62-64-70-70 st. Endurtakið A.1a til loka. Í fyrstu umf með st er fækkað um 2-2-2-4-4-4 st jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 st. Endurtakið A.1 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum á breiddina. Þegar stykkið mælist 10 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 st. A.1a er endurtekið 8-8-9-9-10-10 sinnum á breiddina. Þegar stykkið mælist 23 cm, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið fyrir miðju að aftan. Heklið * 1 fl í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið uppá að hálsmálið verði ekki of stíft, passið einnig uppá að endað sé með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan á að sauma 2 cm frá kant í hálsmáli, hinar tölurnar eru settar með ca 8-9-9-8-8-9 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seashoreblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.