Gisela Fröhlich skrifaði:
Ein Muss für schöne Sommertage
20.12.2015 - 16:36
Maria skrifaði:
Precioso. Y muy equilibrado en las formas.
19.12.2015 - 11:29
Angelika K. skrifaði:
Eine super schöne Jacke!
13.12.2015 - 11:32Melahat skrifaði:
Süper olmuş. Hemen örmek istiyorum. Teşekkürler.
12.12.2015 - 22:15
CAROL SCHWEIGER skrifaði:
Beautiful STAR lace! Nice rolled collar. A decorative crochet pin would be nice to close front.
12.12.2015 - 18:52
Mija Margareta Nilsson skrifaði:
Så fantastiska mönster och färger.
12.12.2015 - 15:49
Jacqueline skrifaði:
Opengewerkt toch warm genoeg door dit garen,en een mooi detail op de rug
11.12.2015 - 12:41
Roth skrifaði:
Très beau, il me tarde de découvrir les explications
11.12.2015 - 07:54
BABELAERE Marie-Françoise skrifaði:
Superbe ! il me tarde de voir les explications ...
10.12.2015 - 17:56
Endless Love#endlesslovecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa úr DROPS Cotton Merino með stuðlum og gatamynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 168-12 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.6. ÚRTAKA: Heklið 1 st um næsta ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um næsta ll-boga (ekki eru heklaðar 3 ll á milli st), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermi): Eftir síðasta st í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 st um næsta ll-boga (= fyrsti ll-boginn í næstu umf). ATH: Merkið byrjun umf með 1 prjónamerki á milli síðustu ll í umf og fyrsta st í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. ATH: PASSIÐ UPPÁ AÐ PRJÓNAMERKIÐ FÆRIST EKKI TIL! ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er hekluð í hring frá miðju og út. HRINGPEYSA: Heklið 4 ll með Cotton Merino með heklunál nr 4 og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 mynstureiningar á breiddina) ATH: A.x sýnir hvernig umf byrjar og endar og kemur sem viðbót við mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina (= 132 st), haldið svona áfram: Heklið * A.2 (= 11 st), A.3 (= 11 st) *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum. Heklið upp til og með ör í mynstri – sjá ör fyrir rétta stærð, nú eru 228-252-264 l í umf. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið síðan yfir fyrstu 34-36-38 l, heklið 36-40-44 ll og hoppið yfir næstu 36-40-44 l (= handvegur), heklið þar til eftir eru 70-76-82 l, heklið 36-40-44 ll og hoppið yfir næstu 36-40-44 l (= handvegur), heklið síðan yfir síðustu 34-36-38 l. Í næstu umf er haldið áfram eftir mynstri, heklið mynstur eins og í mynstureiningu um ll-bogana í hvorri hlið. Þegar A.2 og A.3 hafa verið heklaðir eru 312 st í umf. Haldið áfram með A.4 (= 39 endurtekningar í umf). Fyrsta umf í A.4 er síðasta umf í A.2/A.3 og er ekki hekluð, heldur sýnir byrjun á A.4. Heklið nú þannig: Heklið * A.5 (= 26 st), A.6 (= 26 st) * endurtakið frá *-* alls 6 sinnum. Þegar A.5/A.6 hefur verið heklað til loka eru 600 l í umf (150 st með 3 ll á milli hverra). Stærð S/M endar hér. Stærð M/L -XXL/XXXL: Heklið 2-4 umf til viðbótar um síðustu umf í A.5/A.6 = 162-174 st með 3 ll á milli. ALLAR STÆRÐIR: Stykkið mælist ca 46-49-52 cm frá miðju (alls 92-98-104 cm). FRAMSTYKKI: Heklið fram og til baka í aðra hliðina með stuttum umferðum. Klippið frá, hoppið yfir fyrstu 13-16-19 st í umf, heklið síðan yfir næstu 49 st + ll-bogar þannig (setjið eitt prjónamerki hér): Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll (ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), 1 st um næsta ll-boga, heklið mynstur eins og áður þar til 2 ll-bogar eru eftir (þ.e.a.s. ll-bogarnir á milli st, ekki er lengur heklað yfir þessa 2 ll-boga), snúið við. Haldið svona áfram með stuttar umf, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st + 3 l í miðju ll-bogann í hverri umf (heklið 1 st + 3 ll + 1 st í þennan boga). Haldið áfram með útaukningar og úrtöku í hverri umf þar til stykkið mælist 15 cm frá prjónamerki. Klippið frá, hoppið yfir næstu 26-32-38 st frá hring. Heklið nú stuttar umf yfir næstu 49 st (nú eru eftir 13-16-19 st í umf). Heklið alveg eins og í hinni hliðinni. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant allan hringinn þannig: 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 3 ll, 1 fl um næsta boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið mitt undir öðrum handveg, heklið 1 fl um fyrsta ll-bogann, 6 ll (= 1 st + 3 ll), hoppið yfir fyrsta st og heklið 1 st um næsta ll-boga, * 3 ll, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn (heklið 1 st + 3 ll um st í horni), endið umf með 1 st um fyrstu 6 ll, haldið síðan áfram að hekla hringinn án þess að enda umf – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR = 21-23-25 st + 21-23-25 ll-bogar. Haldið áfram með 1 st + 3 ll um hvern boga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 ll-boga á undan prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4½.cm millibili 7 sinnum til viðbótar, fækkið til skiptis á undan og á eftir prjónamerki = 13-15-17 st + 13-15-17 ll-bogar. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-43-44 cm. KANTUR ERMI: Heklið kant neðst á ermi þannig: 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 3 ll, 1 fl um næsta boga *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. Heklið kant neðst á hinni erminni á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #endlesslovecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.