Schaller Rosmarie skrifaði:
Besten Dank für Ihre Antwort.Nach meiner Meinung liegt der Fehler am Anfang.167-25. A.2. A.3 Es Grüessli. Rosmarie
03.03.2016 - 11:11DROPS Design svaraði:
Liebe Rosmaie, auf den ersten Blick sieht alles gut aus. Es hilft uns sehr, wenn Sie schrieben, was genau das Problem dort ist, dann können wir die Stelle daraufhin überprüfen.
07.03.2016 - 09:48
Schaller Rosmarie skrifaði:
Drops 167-25 muss ein Fehler sein.Ich bin eine geübte Strickerin und komme nicht weiter.Können sie das bitte überprüfen? Besten Dank. Einen Gruss aus der Schweiz . Rosmarie
29.02.2016 - 20:21DROPS Design svaraði:
Liebe Rosmarie, bitte schrieben Sie uns, an welcher Stelle Sie einen Fehler vermuten.
01.03.2016 - 09:03
Emm skrifaði:
Härligt med ett koftmönster i Lace för oss som redan stickat sjal! Min blir nog svart...
13.01.2016 - 20:32
Ana skrifaði:
Me parece muy practico para llevar en el bolso por si refresca cuando sales a tomar algo... me lo apunto para hacerlo cuando cuando este disponible el patron
13.01.2016 - 12:03
Henriette skrifaði:
Så yndig
02.01.2016 - 11:40
Eva skrifaði:
Zauberhaft!!! Ich mag das Lace-Garn sehr, aber Tücher habe ich jetzt definitv genug. Um so mehr freue ich mich auf die Anleitung für ein solches leichtes Sommerjäckchen. Das werde ich auf jeden Fall nacharbeiten, sofern das Muster hier wirklich vorgestellt wird. Ein perfektes Stück um es im Urlaub anzufertigen und zu tragen.
15.12.2015 - 16:56
Cyrilla skrifaði:
Light and graceful but warm for cool summer evenings (ideal as a shrug over wedding dress in different colour)
12.12.2015 - 20:06
From Grace#fromgraceshoulderpiece |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Lace með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO- STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum og saumað saman við miðju að aftan og í hlið í lokin. BOLERO: Fitjið laust upp 117-117-131-131-145-159 l á prjóna nr 3 með Lace. Prjónið þannig (1. umf = rétta). 2 l með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur A.1 yfir 4 l, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 98-98-112-112-126-140 l (= A.2 hefur verið prjónað 7-7-8-8-9-10 sinnum á breiddina), nú eru 13 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.3 yfir 11 l og prjónið 2 l garðaprjón = 16-16-18-18-20-22 l færri í fyrstu umf = 101-101-113-113-125-137 l eftir í umf eftir A.1/A.2/A.3. Prjónið síðan frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, mynstur A.4 yfir 4 l, prjónið mynstur A.5 yfir næstu 84-84-96-96-108-120 l (= A.5 hefur verði prjónað 7-7-8-8-9-10 sinnum á breiddina), það eru 11 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.6 yfir 9 l og prjónið 2 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.4 /A.5/A.6 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu er prjónað áfram þannig: 2 l garðaprjón, prjónið mynstur A.7 yfir 2 l, prjónið mynstur A.8 yfir næstu 90-90-102-102-114-126 l (= A.8 hefur verið prjónað 15-15-17-17-19-21 sinnum á breiddina), eru 7 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.9 yfir 5 l og prjónið 2 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.7/A.8/A.9 þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm stillið af eftir 1 heilli mynstureiningu af mynstri A.7/A.8/A.9 á hæðina. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l og fellið laust af með sl. Prjónið annað stykki á sama hátt. FORMUN: Leggið bæði stykkin í volgt vatn þar til þau eru orðin gegnblaut. Pressið vatnið varlega úr – ekki vinda, rúllið síðan stykkjunum inn í handklæði og klemmið saman svo að enn meira af vatni fari úr. Stykkin eiga nú að vera aðeins rök. Leggið stykkin á mottu eða á dýnu – dragið þau varlega út í rétta stærð. Dragið aðeins út í úrtöku á uppfitjunarkanti svo að litlu hornin sjáist. Látið stykkin þorna svona. FRÁGANGUR: Saumið bæði stykkin saman með affellingarkant við affellingarkant, saumið lykkju fyrir lykkju og notið gjarnan lykkjuspor. Brjótið stykkið saman á lengdina og saumið síðan hliðar saman eins og strikuðu línurnar sýna í mynsturteikningu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fromgraceshoulderpiece eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.