Ulrike B. skrifaði:
Das Modell ist super. Mir stellt sich nur folgende Frage: man soll, nachdem man die ersten 21 Rd. von A1 gestrickt hat, den Rd.Anfang immer um eine M nach links verschieben zuerst in jeder 2. Rd. dann in jeder 4. Rd.. Wann genau in welchen Runden soll ich das machen? Das heißt wie oft in der 2. und wie oft in der 4. Rd? Für Hilfe wäre ich dankbar. Viele Grüße Ulrike B.
18.06.2016 - 14:32DROPS Design svaraði:
Hallo Ulrike, verschieben Sie so lange, bis das Rd-Ende zuletzt mitten im ersten Rapport von A.1 ist.
20.06.2016 - 20:34
Yvonne skrifaði:
Stricke die Jacke gerade mit Drops Big Delight Sonnenaufgang, sieht ganz toll aus! Allerdings ist eine Rundnadel mit 80 cm etwas knapp bemessen, wenn man sich dem Ende nähert, immerhin hat die Jacke einen Durchmesser von einem Meter! Ich habe mir daher eine neue mit 120 cm Seillänge bestellt.
23.03.2016 - 09:37
Gonet Yvette skrifaði:
Le résultat de ce travail est MAGNIFIQUE ! Merci pour ces beaux modèles. Avez-vous aussi un modèle pour enfant (10 ans) à faire de la même façon ? Merci Yvette
12.02.2016 - 13:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gonet, et merci. Nous avons seulement des modèles au crochet (ici) dans ce type de gilet, mais votre demande va être soumise à nos stylistes. Bon tricot!
12.02.2016 - 14:50
Gonet Yvette skrifaði:
Bonjour madame, dans la partie dos de ce modèle quand les 21 tours de A1 ont été tricotés il faut décaler d'1 maille à gauche tous les 2 tours puis tous les 4 tours, je n'ai pas bien compris c'est le dessin qui se déplace d'une maille ? merci de votre aide. Yvette
02.02.2016 - 08:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gonet, à partir du 21ème tour faites commencer les tours après la 1ère m env dans le 1er A.1 - ainsi les mailles point mousse n'auront pas de démarcation. Progressivement, le milieu du tour va se décaler et à la fin de A.1, il sera au milieu du 1er motif. Bon tricot!
02.02.2016 - 09:44
Loredana skrifaði:
Buonasera! Come si fa per capire quale taglia eseguire? Quale misura prendere? Grazie mille Loredana
29.01.2016 - 21:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Loredana, in basso, sotto le istruzioni, può trovare lo schema con le misure. Provi a misurare uno dei suoi maglioni che ha più o meno la stessa forma di questo per individuare la taglia corretta. Buon lavoro!
29.01.2016 - 22:26Irina skrifaði:
Thank you very much for your quiсk answer!
29.01.2016 - 21:05Irina skrifaði:
I started to knit this great jacket. I have some questionsregarding Diagram2. When we turn to diag. 2 - * Work A.2 over all sts, AT THE SAME TIME inc 1 st on each side of sts with marker on every round with star (= 16 sts per inc round)*. But at the photo of the back of jaket I see that there are increases 3 times in the first rows of the chart( please see the photo of the model) Are there mistake in the Chart 2?
27.01.2016 - 11:51DROPS Design svaraði:
Dear Irina, pattern has been checkedd, the yo you can see before A.2 are the inc done before armhole, they shouldn't be worked twisted - pattern has been edited, and there should be only 2 inc in first size. Happy knitting!
29.01.2016 - 12:04
Daniela skrifaði:
Hallo Ich habe mir die Schnittzeichnung mal angesehen und habe eine Frage. Die obere Rückenbreite wird (bei Grösse L/XL) mit 32 cm angegeben. Ist das nicht ein bisschen wenig?? Wenn ich den Schnitt mit anderen Schnitten für ähnliche Jacken vergleiche sind das meistens mehr cm. Oder mache ich einen Denkfehler? Möchte diese schöne Jacke gerne stricken, habe aber Angst davor, dass sie dann zu klein ist...!
27.01.2016 - 09:44DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, das Muster ist recht dehnbar und das Material weich - daher sind die Masse evtl. etwas knapper bemessen als bei anderen Modellen.
08.03.2016 - 09:00
Kris skrifaði:
This is beautiful. Cannot wait to make it.
23.01.2016 - 18:42
Martina Heller skrifaði:
Gefühl mir auf den ersten Blick
10.01.2016 - 13:05
White Flower#whiteflowerjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð hringpeysa með blaðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-6 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan, stykkið er prjónað í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 8 l með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) og deilið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (2 l á hvern prjón). Prjónið eftir A.1 (= 8 mynstureiningar af A.1 á breiddina). Þegar fyrstu 27 umf í A.1 hafa verið prjónaðar, á byrjun umf á færast til um 1 l til vinstri, fyrst í annarri hverri umf, síðan í 4. hverri umf – þ.e.a.s. byrjun umf er alltaf slétt á undan fyrsta uppslætti í mynstri þannig að þetta sjáist sem minnst. Byrjun umf á að lokum að vera mitt í fyrstu mynstureiningu á A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 208 l í umf, stykkið mælist ca 34 cm að þvermáli. Setjið 8 prjónamerki í stykkið, setjið 1. prjónamerki í 1. l í umf, síða eru sett 7 prjónamerki í l, með 25 l á milli merkja, prjónamerkin eru staðsett beint yfir odd á hverju blaði. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat = 16 l fleiri í umf. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 1-2-3 sinnum til viðbótar (alls 32-48-64 fleiri l) = 240-256-272 l. Í næstu umf er prjónað sl, JAFNFRAMT er fækkað um allar l á milli 2. og 3. prjónamerkis og 7. og 8. prjónamerkis fyrir handveg (= það er fækkað um 30-32-34 l í hvorri hlið). Næsta umf er prjónuð br, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 30-32-34 nýjar l yfir þær l sem fækkað var um á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 7. og 8. prjónamerkis. Þegar búið er að fitja upp allar l eru 240-256-272 l á prjóni. Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið A.2 yfir allar l, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í hverri umf með stjörnu (= 16 l hver útauknings umferð) = 384-400-416 l. Stykkið mælist ca 66-68-70 cm að þvermáli. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið nú þannig: Haldið eftir l á milli 2. og 4. prjónamerkis á prjóni, aðrar l eru settar á þráð = 96-100-104 l á prjóni. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir þessar l, JAFNFRAMT í lok hverrar umf eru settar 2 síðustu l á þráð (þær eru ekki prjónaðar, snúið við). ATH! Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við 3. prjónamerki í 4. hverri umf. Haldið áfram þar til 44 l eru eftir á prjóni. Setjið síðustu 44 l á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið l á milli 6. og 8. prjónamerkis á hringprjóna nr 6 og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. Prjónið síðan allar l af þræði slétt frá réttu til baka á hringprjóna nr 6 – á milli skipta sem l eru settar á þráð í hvorri hlið er þráðurinn tekinn upp og snúið áður en hann er settur á prjóninn (þ.e.a.s. á milli annarra hverra l, þetta er gert til þess að sleppa við göt í skiptingunum) = ca 512-540-568 l. Prjónið 8 umf garðaprjón, fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-40 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.3 1 sinni á hæðina (= 4-4-5 mynstureiningar á breiddina), í síðustu umf er aukið út um 1 l = 33-33-41 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón en í annarri hverri umf er prjónað þannig: Byrjið 2 l á undan l með prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat, það á að vera gataumferð uppúr mitt undir ermi, en fjöldi l er sá sami. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm byrjar útaukning mitt undur ermi, prjónið uppsláttinn og sléttprjón eins og áður, en fækkið EKKI l hvoru megin við uppslátt = 2 l fleiri. Endurtakið útaukningu svona með 3 cm millibili 13-14-14 sinnum til viðbótar = 61-63-71 l. Prjónið þar til stykkið mælist 54-55-56 cm, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whiteflowerjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.