Jolly May |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino með litlum kaðlakanti, gatamynstri og laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 169-27 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í mynstri á bakstykki og á ermum. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l slétt saman, A.4 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l snúnar brugðið saman, A.4 (= 6 l), 2 l brugðið saman (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf). Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (fyrsta hnappagatið á að vera mitt á milli A.2): STÆRÐ XS: 9, 17, 24, 31, 38 og 45 cm. STÆRÐ S: 9, 17, 25, 33, 40 og 47 cm. STÆRÐ M: 9, 17, 25, 33, 41 og 49 cm. STÆRÐ L: 9, 16, 23, 29, 36, 43 og 50 cm. STÆRÐ XL: 10, 17, 24, 31, 38, 45 og 52 cm. STÆRÐ XXL: 10, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm. STÆRÐ XXXL: 10, 18, 25, 33, 40, 48 og 55 cm. ÚRTAKA (á við um kant í hálsi): Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 126 l), mínus kant að framan (t.d. 10) og deilið þeim l sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14 l) = 8,3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 7. og 8. l prjónaðar saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 327-355-383-453-481-551-579 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 5 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman (frá réttu). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman = 237-257-277-327-347-397-417 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.1A þar til 12 l eru eftir á prjóni (= 22-24-26-31-33-38-40 mynstureiningar 10 l), prjónið A.1B (= 7 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 191-207-223-263-279-319-335 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8-8 cm. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram eins og áður) þar sem fækkað er um 5-2-1-5-2-6-5 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 186-205-222-258-277-313-330 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 5 l eru eftir á prjóni og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: í 7. umf í mynstri er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt. Eftir A.2 er sett 1 prjónamerki 49-54-58-67-72-81-85 l inn frá hvorri hlið (= 88-97-106-124-133-151-160 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan þannig (1. umf = rétta): 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 l sl, 2 l br, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki í hlið, prjónið A.3A (= 6 l), endurtakið A.3B yfir næstu 72-81-90-108-117-135-144 l (= 8-9-10-12-13-15-16 mynstureiningar 9 l), prjónið A.3C (= 10 l), prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 8 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l br, 1 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-6-8-10-10-10 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3-3 sinnum = 202-221-238-270-289-325-342 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í mynstri á bakstykki. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38-39 cm prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 50-55-58-66-70-79-83 l (= vinstra framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg og prjónið þær 50-55-58-66-70-79-83 l sem eftir eru (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 52-52-61-61-61-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 – ATH: Í umf 7 í A.2 er síðasta l í umf prjónuð slétt (á við um stærð L + XL + XXL). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.3A (= 6 l), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-45-45-45-54-54 l (= 4-4-5-5-5-6-6 mynstureiningar 9 l) og endið á A.3C (= 10 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – passið uppá að prjónað sé jafn langt í mynstureiningu A.3 og á fram- og bakstykki áður en fellt er af fyrir handveg. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l, prjónið 74-78-79-83-83-88-94 l og fellið af næstu 3-3-4-4-5-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 338-365-380-420-435-481-510 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur á ermum og bakstykki eins og áður og sléttprjón með kant að framan á framstykki. Að auki er nú prjónað A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt á milli A.4). Í fyrstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 24-25-28-29-32-34-34 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá röngu og frá réttu) alls 4-5-2-3-0-0-3 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í A.3 á baki og á ermum þegar úrtaka er gerð eru prjónaðar í sléttprjóni. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 46-48-50-51-53-54-56 cm (það á að prjóna 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati á kant að framan), setjið fyrstu 10-13-16-18-22-26-27 l í byrjun á 2 næstu umf á þráð fyrir hálsmáli (til þess að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið l áður en þær eru settar á þráð). Haldið áfram með mynstur og laskalínu eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-4-4 sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 80-85-94-106-113-129-132 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 114-126-140-164-179-209-214 l (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 110-112-128-130-140-144-146 l (þ.e.a.s. fækkið um ca 4-14-12-34-39-65-68 l) – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Marina wrote:
Hallo, ich habe da ein Problem ich stricke diese Strickjacke in Größe M, habe 277 Maschen auf der Nadel bevor ich mit dem Muster A1A/A1B Anfange. Wenn die Mustersätze fertig sind sollen nur noch 223 Maschen auf der Nadel sein. Wo bleiben die Maschen, in dem Muster werden keine Maschen abgenommen bzw. nix zusammen gestrickt. Der Mustersatz A1A besteht durchgängig aus 10 Maschen. Hilfe.... ich stehe auf dem Schlauch. 😩
25.01.2019 - 11:15DROPS Design answered:
Liebe Marina, so stricken Sie die 277 M: 5 Blendemaschen, A.1A (= 10 M = 2 M re, 3 M li, 2 M re, 3 M li bei der 1. Reihe) x 26 (= über die nächsten 260 M), dann stricken Sie A.1B (= 7 M = 2 M re, 3 M li, 2 M re) und 5 Blendemaschen = 5 + 260 + 7 + 5 = 277 M. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2019 - 14:05Emmanuelle wrote:
Je ne comprends pas les explications après avoir tricoté les manches; combien de mailles des manches fait-on glisser? pour terminer les devants et dos, je suppose que l'on utilise trois pelotes différentes pour laisser le passage des manches? Merci pour votre réponse
13.10.2018 - 21:28DROPS Design answered:
Bonjour Emmanuelle, on va tricoter l'empiècement en commençant sur l'endroit par le devant droit, puis la manche droite, le dos, la manche gauche et le devant gauche (= toutes les pièces en même temps) - cette vidéo montre comment placer les mailles des manches au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures. Bon tricot!
15.10.2018 - 09:19Hanicka wrote:
Dobrý den, není možné, že vzory A2 a A3... jsou zakresleny špatně? Podle obrázku vypadá vzor A2 krátky a podle nákresu je delší než A1, který má sám o sobě mít 7 cm? I v trupu (vzory A3) je mezi vzorovými oky jedna řada - vždyt podle nákresu to má být ale následující... Děkuji
09.04.2018 - 12:57DROPS Design answered:
Milá Hanicko, nákresy vzorků by měly být v pořádku. 7 cm měří celý dolní lem, nikoli vzor A.1 - schéma A.1 zobrazuje jen horní část lemu, křížení copánku. Dolní část lemu (cca 4 cm) pleteme běžným pružným vzorem dle slovního popisu v návodu, na uvedených místech postupně ujmeme. Hodně zdaru! Hana
09.04.2018 - 16:18Dea wrote:
"ATTENZIONE: Nel corso del 7° giro del diagramma A.2, lavorare a dir l’ultima m del giro (per le taglie: L + XL + XXL). " La stessa cosa vale anche per la taglia M, le maglie sono dispari e alla fine ne rimane una da sola. ^_^
03.04.2018 - 15:24DROPS Design answered:
Buonasera Dea. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
03.04.2018 - 15:29Dea wrote:
Buongiorno, ho trovato un altro piccolo problema. Quando dice "ATTENZIONE: Nel corso del 7° ferro del diagramma (A2) lavorare a dir l’ultima m prima del bordo davanti." non ne rimane una, ma due dopo l'ultima gettata perchè le maglie sono pari. Scusate se ho scritto ancora.
19.03.2018 - 09:10Dea wrote:
Buonasera, dove parla delle ASOLE c'è scritto " intrecciare la 3a e la 4a m dal centro;" secondo me è meglio scrivere "dal bordo".
18.03.2018 - 20:23DROPS Design answered:
Buonasera Dea. Abbiamo modificato il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
18.03.2018 - 21:07Dea wrote:
Ok. Sono al bordo. Dice di fare la 2° rip di dim come la 1°, quindi sul ferro a diritto del lavoro. Dopo dice di lavorare il ferro successivo (1 ferro del diagramma A1) sempre sul diritto del lavoro. La cosa è strana come è possibile lavorare due ferri sempre sul diritto del lavoro? Per me dopo le dim bisogna fare un ferro sul rovescio del lavoro lavorandole come si presentano (2 rov/3 dir) e poi il 1 del diagramma A1.
17.03.2018 - 20:19DROPS Design answered:
Buongiorno Dea. Chiederemo di verificare le indicazioni in base alle sue indicazioni. Buon lavoro!
18.03.2018 - 12:04Dea wrote:
Scusate quanti caratteri si possono usare per fare le domande? Mi impedisce di scrivere perchè dice che è troppo lungo. Grazie.
17.03.2018 - 13:41DROPS Design answered:
Buonasera Dea. Può eventualmente spezzare la domanda in più parti. Buon lavoro!
17.03.2018 - 17:57Dani wrote:
Hallo, ich komme mit der Aufnahme der Ärmel nicht zurecht. Wie bekomme ich die auf die Nadel, wenn ich die nur hinlegen soll, ohne zu Stricken? Habe auch bei den Videos nichts gefunden, was Aufschluss gibt. Bleibt die Stelle, an der abgekettet wurde, ein Loch? Wie Sie merken, hänge ich ganz schön fest....
25.01.2018 - 10:25DROPS Design answered:
Liebe Dani, dieses Video zeigt, wie man die Ärmel über die für die Ärmel abgeketteten Maschen legt. Im Video stricken wir die 1. Reihe, aber in der Anleitung legen Sie einfach die Maschen zuerst über die Ärmlöcher, Markierer einsetzen und dann wie beschrieben weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2018 - 13:12Maddalena wrote:
Sto facendo questa bella maglia nella taglia XS. Ho finito lo schema A.1A e A.1B. Non capisco come fanno a restare 191 maglia su 237 se gli schemi non prevedono diminuzioni. Grazie per le spiegazioni
13.11.2017 - 14:46DROPS Design answered:
Buongiorno Maddalena. Sull'ultima riga dei diagrammi A.1a e A.1b, il simbolo a triangolo prevede la diminuizione di 2 maglie. Vengono quindi diminuite in tutto 46 maglie sulla riga e in questo modo sui ferri ci sono 191 maglie, per la taglia XS. Buon lavoro!
13.11.2017 - 15:33