Helene skrifaði:
Slet venligst den sidste besked fra mig. Jeg har fundet ud af, hvilken fejl, jeg begik, og er startet forfra.
11.11.2020 - 23:15
Helene skrifaði:
Hej. Jeg er i gang med at strikke denne trøje, og jeg er næsten færdig med A.1. Jeg læser diagrammerne ovenfra og ned. Når jeg kigger på diagram A. 2 og sammenligner med billedet af den færdige trøje, ser det ud til at diagrammet vender på hovedet. Den nærmest rombeformede figur er ifølge diagrammert den sidste figur i A.2. Men på billedet er det næstsidste figur. Begår jeg en fejl, når jeg læser diagrammerne ovenfra og ned? Med venlig hilsen Helene
11.11.2020 - 13:49DROPS Design svaraði:
Hej Helene. Så fint att det du kom på hur du ska göra. Mvh DROPS Design
13.11.2020 - 10:45
Jacqueline Donovan skrifaði:
The wool requirements state 4 colours, 55, 54, 71 & 01. In the diagram, silver pink is mentioned but not in the requirements??? Can yiu advise please? Kind regards, Jacquie
29.03.2019 - 22:54DROPS Design svaraði:
Dear Jaquie, there is a typo under colour no 71, it should be silver pink instead of light beige, pattern will be edited, thanks for the tip! Happy knitting!
01.04.2019 - 11:48
Hildegunn Nesjan skrifaði:
Strikket denne i str L, og er veldig fornøyd med resultatet. Men jeg fikk ikke den oppgitte garnmengde til å stemme. Brukte 400g av farge 53, og 150g av farge 54.
12.08.2017 - 08:16
Jo Janssen V D Rijt skrifaði:
Hoe komt t dat ik n patroon niet kan printen heb n hp laserprinter
13.11.2016 - 14:40DROPS Design svaraði:
Hoi Jo. Ik kan het patroon printen, ik denk dat het probleem dan ligt bij jou printer / instellingen. Hier kan ik helaas niet mee helpen.
14.11.2016 - 14:32
Loes skrifaði:
Welk blokje in het tel patroon wordt gebruikt voor de kleur beige. Er wordt toch met 4 kleuren gewerkt?
01.11.2016 - 18:21DROPS Design svaraði:
Hoi Loes. De kleurnamen waren aangepast, maar vergeten in de vertaling voor de symbolen. Ik heb het nu aangepast. Bedankt.
02.11.2016 - 12:22
Stine Bjørnsdatter Nygård skrifaði:
Er det riktig at bol og ermer skal strikkes i lys brunmelert? Jeg får det ikke til å stemme med bildet og garnmengden. Jeg tror bol og ermer skal være i beige melert (eller den bunnfargen man måtte velge). Tar jeg helt feil?
10.08.2015 - 22:06DROPS Design svaraði:
Hej. Färgerna är riktiga men garnmängden var tidigare fel, detta har nu rättats. Mvh DROPS Design
12.08.2015 - 08:38
Nati skrifaði:
Toll, könnte mein Favorit werden, bitte bald die Anleitung
25.06.2015 - 16:07
Sophie DROMARD skrifaði:
J'aime beaucoup les petites vagues en bas mais je n'aime pas les côtes en bas des manches. Je préfère le point mousse comme sur le bas du pull.
13.06.2015 - 08:09
Bente Kristensen skrifaði:
Flot og harmonisk mønster
08.06.2015 - 21:29
English Afternoon#englishafternoonsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og brugðnum lykkjum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-23 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í berustykki): Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (= 106 l), deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 27 l) = 3,92. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis í 3. og 4. hverri l. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. LESIÐ LEIÐBEININGAR! Byrjun umf = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 105-108-114-117-120-129 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 3 cm. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 2 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 27-28-34-35-36-39 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING -2 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 = 132-136-148-152-156-168 l. Prjónið A.1. Í umf 7 er aukið út um 36-38-38-46-48-48 l jafnt yfir = 168-174-186-198-204-216 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf 15 er aukið út um 34-40-44-48-50-54 l jafnt yfir = 202-214-230-246-254-270 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf 19 er aukið út um 34-38-42-46-58-62 l jafnt yfir = 236-252-272-292-312-332 l. Prjónið út umf í A.1. Prjónið nú A.2 (= 22 l) 12-13-14-15-16-17 sinnum á breiddina, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 28-34-36-38-40-42 l jafnt yfir = 264-286-308-330-352-374 l. ATH: Í umf 13 í mynstri er aukið út um 1 l (= alls 12-13-14-15-16-17 útaukningar í umf) = 276-299-322-345-368-391 l. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umf í mynstri 0-0-0-2-2-2 sinnum til viðbótar. Prjónið nú A.3, JAFNFRAMT í 1. umf er aukið út um 6-7-8-15-16-23 l jafnt yfir = 282-306-330-360-384-414 l. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað á hæðina er prjónuð 1 umf í sléttprjóni með litnum beige þar sem aukið er út um 2-2-2-4-4-6 l jafnt yfir = 284-308-332-364-388-420 l. Prjónið nú 0-2-4-4-6-8 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 38-42-46-52-56-64 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 76-84-92-104-112-128 l (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-78-82-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 38-42-46-52-56-64 l (= hálft bakstykki). Stykkið mælist nú ca 24-25-25-26-27-28 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 176-192-208-232-248-280 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki 44-48-52-58-62-70 l inn frá byrjun á umf í hvorri hlið (= hliðar). Prjónamerkin fylgja síðan með í stykkinu. Prjónið nú með litnum ljós brúnn til loka. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú mynstur A.4 (= 8 l) yfir allar l. Þegar allt A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 160-176-192-216-232-264 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 3 sinnum til viðbótar í öllum stærðum = 176-192-208-232-248-280 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27-28-30 cm er lykkjufjöldinn jafnaður til 180-190-210-230-250-280 l. Nú er prjónað A.5 (= 10 l). Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 8-8-9-11-13-14 l jafnt yfir = 188-198-219-241-263-294 l. Prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er prjónuð með litnum ljós brúnn í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 66-70-74-78-82-82 l fyrir ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 12 nýjar l undir ermi = 78-82-86-90-94-94 l. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt í nýju l undir ermi (= 6 nýjar l hvoru megin við prjónamerkið). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku í 5.-4.-4.-3.-4.-4. hverri umf 13-15-17-19-16-16 sinnum til viðbótar = 50-50-50-50-60-60 l. Þegar ermin mælist 30-30-30-29-29-30 cm prjónið A.5 (5-5-5-5-6-6 sinnum í umf). Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 4 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4-7-7-10-3-6 l jafnt yfir = 54-57-57-60-63-66 l. Prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón áður en stroffið er prjónað (1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #englishafternoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.