Ann skrifaði:
Denne var nydelig
13.08.2015 - 11:51
Rita skrifaði:
Genau mein Stil!!
24.06.2015 - 08:44
Marion skrifaði:
Genau das Richtige für die triste Jahreszeit. Farblich sehr harmonisch!. Schön!!
17.06.2015 - 14:02
Chantret Annie skrifaði:
Choisi pour ses jolies et délicates couleurs. Si les explications arrivent assez tôt, je le ferai dans la qualité Belle et il fera un parfait modèle de demie-saison
16.06.2015 - 10:55
Anja Steinhaus skrifaði:
Fantastisch!
14.06.2015 - 13:53
Tina skrifaði:
Jättesnygg! När kommer mönstret på nätet?
13.06.2015 - 14:39
Sophie DROMARD skrifaði:
Très mignon.
13.06.2015 - 07:51
Paola Tarantino skrifaði:
Che colori !
06.06.2015 - 19:54
Karin skrifaði:
Einfach schön!!
03.06.2015 - 22:03
Gabriele Singer skrifaði:
Ein schöner, moderner Pullover mit flotten Farben
02.06.2015 - 22:27
Sweet As Candy#sweetascandysweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga hálsmáli og marglitum mynsturbekk. Stærð S - XXXL
DROPS 165-1 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og A.1 er endurtekið upp að handveg á bæði fram- og bakstykki og ermum. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 220 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 44 l) = 5 l. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er 4. og 5. hver l prjónuð slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 4 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 4 l sl, (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermi): Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til þess að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 220-240-260-284-320-348 l á hringprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur DROPS Karisma. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 44-48-52-56-64-68 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1 = 176-192-208-228-256-280 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 88-96-104-114-128-140 l (= hliðar). Fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3-3-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum á hvorri hlið = 160-176-192-212-244-268 l – ATH: Stillið af úrtökuna svo að hún verði í umf með litnum ljós beige. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3½-4-4-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 176-192-208-228-256-280 l. Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – passið uppá að prjónuð sé 1 eða 2 umf með litnum silfur bleikur á eftir 1 umf með “doppum” prjónið næstu umf þannig: Fellið af 4-4-4-5-5-5 l fyrir handveg, prjónið 80-88-96-104-118-130 l (= framstykki), fellið af 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 80-88-96-104-118-130 l (= bakstykki) og fellið af þær 4-4-4-5-5-5 l sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf sl þar sem fækkað er um 12-12-14-12-14-14 l jafnt yfir = 48-48-50-52-54-54 l á prjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón og mynstur eftir A.1. Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-13-13-14-14-16 sinnum = 70-74-76-80-82-86 l. Prjónið þar til ermin mælist 46-46-45-45-44-44 cm – stillið af þannig að prjónaðar verði jafnmargar umf með litnum ljós beige og á fram- og bakstykki (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umf sl þar sem miðju 8-8-8-10-10-10 l undir ermi eru felldar af = 62-66-68-70-72-76 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af l fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 284-308-328-348-380-412 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur þar sem fækkað er um 8-8-10-12-14-16 l jafnt yfir = 276-300-318-336-366-396 l í umf – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynstri A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið á umf merktri með ör í mynstri fyrir rétta stærð). Haldið svona áfram með mynstrið. JAFNFRAMT í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 36-40-42-48-50-56 l jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1= 240-260-276-288-316-340 l í umf. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 40-40-44-48-52-56 l jafnt yfir= 200-220-232-240-264-284 l í umf. Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 40-44-44-52-52-60 l jafnt yfir = 160-176-188-188-212-224 l í umf. Í umf merktri með ör 4 í mynstri er fækkað um 48-60-60-60-64-68 l jafnt yfir = 120-116-128-128-148-156 l í umf. Þegar A.2 er lokið mælist stykkið ca 53-55-57-59-61-63 cm upp að öxl. UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA: Til þess að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 12-12-14-14-15-15 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-30-30 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 36-36-40-40-44-44 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-48-52-52-58-58 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 60-60-64-64-72-72 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 72-72-76-76-86-86 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 84-84-88-88-100-100 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-96-100-100-114-114 l br til baka. Snúið við og prjónið sl að miðju að aftan. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 28-32-32-32-44-52 l jafnt yfir = 84-84-96-96-104-104 l í umf. Prjónið nú stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetascandysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.