Gerlinda Verbeeck skrifaði:
Ik ben vol goede moed begonnen aan Drops 164- 19, maar in de beschrijving zit denk ik een foutje. Opgezet in maat m 100 st voor 20cm kraag en dan meerderen maar na de eerste keer meerderen (30 st) kom ik op 130 st uit ipv 70 st kan iemand me verder helpen? alvast bedankt
06.11.2015 - 12:50DROPS Design svaraði:
Hoi Gerlinda. Het moet minderen zijn natuurlijk. Ik heb het foutje aangepast. Bedankt voor het melden.
06.11.2015 - 13:02
Lola skrifaði:
Bonjour, il est indiqué qu'il faut monter 96m. Une fois la partie en côtes 2/2 terminée, il faut passer au jersey et faire 28 augmentations. Si je compte bien, on arrive donc à 124m. Or dans les explications, il est indiqué qu'on arrive à 68m. Je vous avoue que je suis perdue... Nulle part on ne parle de diminution. Je trouve ce modèle très beau et j'aimerais vraiment pouvoir le faire. Merci pour votre aide!
05.11.2015 - 22:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Lola et merci, il faut effectivement répartir 28 diminutions pour arriver à 68 m (la correction a été faite), puis répartir 18 augmentations (en taille S). Bon tricot!
06.11.2015 - 12:58
Anne-Marie Pedersen skrifaði:
Jeg har købt garn til trøje Drops 164-19. Garn er Drops Brushed Alpaca Silk fra Garnstudio. Til str. S har jeg købt som der står i opskriften ialt 225g, men det rækker ikke. Skal der købes det dobbelte antal nøgler, når der strikkes med dobbelt garn? Det fremgår ikke af opskriften. Efter diagrammet måler kraven 18cm i bredden,min måler 36cm. I alt 72cm i fuld bredde. Strikkefastheden passer med beskrivelsen.
06.09.2015 - 20:44DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Marie, Vi skal se på det! MEN har du målt så du har 13 m på 10 cm i bredden og 17 p på 10 cm i højden? Det er utroligt vigtigt at du ikke strikker den for stramt!
18.09.2015 - 15:42
Antje Scharfenberg skrifaði:
Beim Zunahmetipp ist immer die Rede von Abnahmen vor und nach den Maschenmarkierern,das kann doch so nicht stimmen? Man soll doch bestimmt zunehmen,oder?
23.08.2015 - 08:28DROPS Design svaraði:
Ja, Sie haben natürlich Recht, das ist ein Fehler, der gleich korrigiert wird, danke für den Hinweis!
01.09.2015 - 10:10
Denise Chassagne skrifaði:
Bonjour le modèle 164-19 est proposé en deux qualités de laine. Hors je ne trouve pas la qualité drops mélody ni sur le site drops ni sur les sites des revendeurs. où oui-je trouver ce nuancier ? Cordialement
27.07.2015 - 12:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chassagne, DROPS Melody est une toute nouvelle qualité qui sortira très prochainement. Bientôt plus d'informations à ce sujet, pensez à vous abonner à notre Newsletter et/ou à nous suivre sur Facebook pour plus d'informations. Bon tricot!
27.07.2015 - 18:01
Tina skrifaði:
Så himla snygg! Kommer definitivt sticka både denna, den matchande ponchon och mössan! När kommer beskrivningarna på nätet?
13.06.2015 - 14:36
Susanne Putz skrifaði:
Sehr ansprechendes Muster und Farbkombination. Ärmelkante könnte etwas feiner gearbeitet sein. Insgesamt würde ich ihn nachstricken!
12.06.2015 - 10:59
Paola Tarantino skrifaði:
E' una coccola
06.06.2015 - 19:53
Lene Christensen skrifaði:
Den skal jeg bare lave til efteråret! Den er bare lækker og den har det der rustikke look som jeg elsker... 😀
30.05.2015 - 10:00
Sweet Winter#sweetwintersweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody með norrænu mynstri, hringlaga berustykki, háu hálsmáli og stroffi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. TVEIR ÞRÆÐIR: Notið endann innan í dokkunni og utan með dokkunni. Þegar skipta á um dokku þá er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verða samskeytin ekki of þykk. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 - A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (= BAS) eða 1 þræði Melody (M). ÚRTAKA: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING: Aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! Byrjun umf = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 96-100-104-108-112-120 á hringprjóna nr 5,5 með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) í 20-20-21-21-22-22 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 28-30-32-32-34-40 l jafnt yfir = 68-70-72-76-78-80 l. Prjónið 1 umf til viðbótar í sléttprjóni. Í næstu umf er aukið út um 18-20-26-30-36-38 l jafnt yfir = 86-90-98-106-114-118 l. Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 8-8-9-11-10-12 l, setjið prjónamerki, síðan eru 5 prjónamerki sett í með 14-15-16-17-19-19 l millibili, nú eru 8-7-9-10-9-11 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum til viðbótar, í annarri hverri umf 13-16-18-18-17-18 sinnum og í 3. hverri umf 3-2-0-0-0-0 sinnum = 188-204-218-238-258-274 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er haldið áfram þannig: Prjónið fyrstu 24-27-29-33-37-40 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 48-54-59-67-75-81 l (= framstykki), setjið næstu 46-48-50-52-54-56 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, prjónið þær 24-27-30-34-38-41 l sem eftir eru í umf (= hálft bakstykki). Stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 108-120-130-146-162-174 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hverja hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermum (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú 1-1-2-2-2-3 umf með grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 108-120-132-144-168-180 l. Prjónið nú mynstur A.1 (= 12 l) 9-10-11-12-14-15 sinnum á breiddina – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina þá er haldið áfram með A.2 (= 8 l) yfir allar l og aukið ut um 4-8-4-8-8-4 l í fyrstu umf í mynstri = 112-128-136-152-176-184 l. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 33-33-34-34-34-35 cm. Prjónið nú 1-2-2-2-3-3 umf sléttprjón með grár, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 20-20-24-24-28-28 l jafnt yfir = 132-148-160-176-204-212 l. Nú er prjónað stroff (2 l sl, 2 l br) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 46-48-50-52-54-56 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 6 og fitjið upp 6 nýjar l undir ermi = 52-54-56-58-60-62 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 3 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). ATH: Þetta er byrjun umf! Prjónið með 2 þráðum af grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður Melody) þannig: Prjónið fyrstu 25-26-27-28-29-30, setjið prjónamerki í næstu l, prjónið þær 26-27-28-29-30-31 l sem eftir eru. Í næstu umf er prjónað mynstur A.1 (= 12 l). ATH: Stillið af að 7. l í mynstri (sjá ör) passi við l með prjónamerki í miðju á ermi! ATH: Mynstureining gengur ekki jafnt upp undir ermi, en mynstrið er prjónað yfir allar l á ermi og mynstrið verður þess vegna samhverft undir ermi. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 10-11-11-11-12-12 sinnum til viðbótar = 30-30-32-34-34-36 l. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2. ATH: Stillið af þannig að 5. l í mynstri (sjá ör) passar við l með prjónamerki í miðju á ermi! Þ.e.a.s. mynstureining gengur ekki jafnt upp undir ermi, en mynstrið er prjónað yfir allar l á ermi. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist ermin 33 cm í öllum stærðum. Haldið nú áfram með litnum grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður grár Melody) til loka. Prjónið 3-3-3-2-2-2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 2-2-0-2-2-0 l jafnt yfir = 32-32-32-36-36-36 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) þar til ermin mælist alls 45-45-45-44-44-44 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.