DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Winter Poncho

Prjónað poncho úr 2 þráðum úr DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Melody með norrænu mynstri og hringlaga hálsmáli, prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 164-6
DROPS Design: Mynstur nr as–041
Garnflokkur C + C (eða D)
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-150-150-150 gr litur nr 03, grár
75-75-75-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50 gr litur nr 08, bleikfjólublár
25-25-25-25 gr litur nr 02, ljós grár

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
100-150-150-150 gr litur nr 04, grár
100-100-100-100 litur nr 03, perlugrár
50-50-50-50 l litur nr 10, ljós bleikvínrauður
50-50-50-50 l litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þráð Melody verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8360.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki.
Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

TVEIR ÞRÆÐIR:
Notið endann innan í dokkunni og utan með dokkunni. Þegar skipta á um dokku þá er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verða samskeytin ekki of þykk.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allar mynsturlykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk (BAS) eða 1 þræði Melody (= M).

ÚTAUKNING:
Aukið út á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður með 2 þráðum – LESIÐ LEIÐBEININGAR og TVEIR ÞRÆÐIR! Byrjun umf = miðja að aftan.

PONCHO:
Fitjið upp 76-80-80-84 á hringprjóna nr 5,5 með 2 þráðum í litnum grár Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði í litnum grár Melody. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 8-7-5-6 l jafnt yfir = 68-73-75-78 l. Í næstu umf er aukið út um 14-15-17-20 l jafnt yfir = 82-88-92-98 l. ATH: Fækkið lykkjum og aukið svona út til að stykkið passi betur í hálsmáli. Nú eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið fyrstu 6-6-8-10 l, setjið eitt prjónamerki, setjið síðan 7 prjónamerki með 10-11-11-11 l millibili, nú eru 6-5-7-11 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf byrjar útaukning – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf 7-8-13-14 sinnum til viðbótar og í 4. hverri umf 2-2-0-0 sinnum = 162-176-204-218 l.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18-19-20-21 cm frá uppfitjunarkanti er haldið áfram með A.1 (= 12 l) yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út þannig:
Í 2. umf er aukið út um 18-16-12-10 l jafnt yfir = 180-192-216-228 l. (Prjónaðar eru 15-16-18-19 mynstureiningar í umf).
Í 10. umf er aukið út um 12-12-12-0 l jafnt yfir = 192-204-228-228 l. (Prjónaðar eru 16-17-19-19 mynstureiningar í umf).
Í 23. umf er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum = 204-216-240-240 l. (Prjónaðar eru 17-18-20-20 mynstureiningar í umf).
Í 36. umf er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum = 216-228-252-252 l. (Prjónaðar eru 18-19-21-21 mynstureiningar í umf).
Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.2. Í 1. umf er aukið út um 8-12-4-12 l jafnt yfir = 224-240-256-264 l. (Prjónaðar eru 28-30-32-33 mynstureiningar í umf).
Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með litnum grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður Melody) til loka. Prjónið 0-3-3-5 umf sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5, prjónið 1 umf sléttprjón og aukið út um 24-28-40-48 l jafnt yfir = 248-268-296-312 l. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l br, 1 l sl. Þegar stroffið mælist 3-3-4-4 cm er prjónað þannig: Fellið af með sl yfir sl og br yfir br yfir fyrstu 57-61-69-73 l, prjónið næstu 20 l áður en þær eru settar á þráð (= stroff), fellið af með sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 94-106-118-126 l, prjónið næstu 20 l áður en þær eru settar á þráð (= stroff), fellið af með sl yfir sl og br yfir br yfir þær 57-61-69-73 l sem eftir eru.

STROFF:
Stroffið er prjónað í hring á sokkaprjóna með litnum grár (2 þræðir Brushed Alpaca Silk/1 þráður Melody).
Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 5,5 og fitjið upp 12 nýjar l á prjóninn = 32 l. Haldið áfram með stroff hringinn (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 10 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hitt stroffið á sama hátt.

----------------------------------------------------------
Húfa og kragi:
Sjá DROPS 164-7
----------------------------------------------------------

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.11.2015
Efnismagn í ljós gráum og natur (Brushed Alpaca Silk) og perlugrár og natur (Melody) hafa skipt um stað. Búið er að leiðrétta.

Mynstur

symbols = 2 þræðir ljós bleikfjólublár BAS eða 1 þráður ljós bleikvínrauður M
symbols = 2 þræðir ljós grár BAS eða 1 þráður perlugrár M
symbols = 2 þræðir natur BAS eða 1 þráður natur M
symbols = 2 þræðir grár BAS eða 1 þráður grár M
symbols = útauknings umf - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Inger Nicolas wrote:

Sweet Winter Poncho strl S. Problem med maskeantall. Etter første øking = 82 masker. deretter øking (7+2) ganger på hver side av 8 merker ; 9 x 8 x 2 = 144 + 82 = 226 og ikke 162 som det står i oppskriften. Hva har jeg gjort feil ? (Jeg strikker med Melody) Jeg bor i Frankrike, søker oppskriftene på norsk men kjøper garnet på franske nettbutikker. Jeg ville være takknemlig for et svar. Vennlig hilsen Inger

16.01.2023 - 16:26

DROPS Design answered:

Hei Inger, Du skal øke bare på den ene siden av merkene hver økeomgang (vekselsvis høyre og venstre siden). Så da øker du 8 masker hver gang og du øker 10 ganger (9 ganger til etter første økning). 10 x 8 =80. Da får du 162 masker. God fornøyelse!

26.01.2023 - 07:01

country flag Denise KOSSLER wrote:

Sur les explications je note un problème : à la fin des premières augmentations on a 264 mailles et non 176. 176 ce sont les augmentations : 9 augmentations de 16m puis 2 augmentations de 16m soit 176 mailles et comme j'avais déjà 88mailles, je rajoute 176 mailles et j'ai 264 mailles.. Pouvez vous m'expliquer

10.11.2022 - 15:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kossler, les augmentations ne se font que d'un seul côté de chaque marqueur, autrement dit, vous augmentez 8 mailles à chaque fois, et en taille L/XL vous aurez ainsi: 88 m + (9 fois tous les 2 tours +2 fois tous les 4 tours) 8 m =88 + (11*8)= 176m. Lorsque vous augmentez la 1ère fois, augmentez à droite (avant) chaque marqueur, la fois suivante, augmentez à gauche (après) chaque marqueur et ainsi de suite, toujours 8 mailles à chaque fois. Bon tricot!

10.11.2022 - 17:11

country flag Ingrid Breivik wrote:

Tusen takk for svar betr Sweet Winter Poncho. Hun önsker seg et skjört, ikkje kjole. Litt språkforvirring her trur jeg. Men tusen takk for tips. Tenker nå at det fineste kanskje er et grått skjört uten border, og i litt mer pratisk skjörtgarn. Ha de´!

31.01.2022 - 16:50

country flag Ingrid Breivik wrote:

Hej! Jag stickade Sweet Winter poncho och mössa till mitt barnbarn. Nu har jag fått önskemål om en matchande kjol. Finns det ? Hälsningar Ingrid

30.01.2022 - 10:49

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. Vi har ikke oppskrift på matchande kjole, men ta en titt på oppskriftene til genserene i DROPS 164-19 og 164-45. Disse er strikket ovenfra og ned, så da kan du bare strikke de lengre så får du deilig kjole. Se gjerne på andre kjoleoppskrifter (i samme garngruppe) og se om du ønsker innsving i livet, vidden nederst og lengde på kjolen. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 14:19

country flag Nadine wrote:

Sorry hat sich erledigt meine Nachfrage. Hatte Gedankenfehler. Trotzdem Danke schön.

01.10.2021 - 12:30

DROPS Design answered:

Keine Sorge :) Viel Spaß beim Stricken!

01.10.2021 - 16:03

country flag Nadine wrote:

Ich verstehe leider nicht ganz den richtigen Bedarf für das Garn Alpaca Silk, da es ja Doppelfädig gearbeitet wird. Also wenn ich jetzt richtig verstehe, dann bräuchte ich doch quasi die doppelte Menge oder? Also bei Größe L z.B. Farbe 03 = 300g, oder? Wäre nett wenn ihr helfen könntet. DANKE SCHÖN

01.10.2021 - 09:29

DROPS Design answered:

Liebe Nadine, hier stricken Sie entweder mit 2 Fäden Brushed Alpaca Silk oder 1 Faden DROPS Meldoy, die Garnmenge stimmt so - mit je 2 bzw 1 Faden; Viel Spaß beim stricken!

01.10.2021 - 16:02

country flag Ana Rivas wrote:

En donde puedo conseguir sus lanas si vivo en Mexico?

09.01.2021 - 18:38

country flag Ingrid Breivik wrote:

Hei! Jeg har löst og strikke denne til mitt barnebarn i strl S. DROPS Design: Modell nr as-041 Garngruppe C + C (eller D) Synes det er bergnet veldi lite garn, berre 100g grå, 75 g natur, 50 g lyng og 25 g lys grå, kan det stemme? Bi da tilstrekkelig? Hilsen Ingrid Breivik

30.10.2020 - 19:05

DROPS Design answered:

Hei Ingrid. Det var en feil i garnmengden da oppskriften kom ut, men dette er rettet og alt skal være OK nå. mvh DROPS design

02.11.2020 - 11:58

country flag Paula wrote:

Hola, me encanta este patrón pero no entiendo como son los aumentos. Tengo que tejer hasta un punto antes del marcapuntos y después aumentar una hebra?? Si lo hago así queda un agujero. No entiendo el tipo de aumento que pide el patrón con el tejido en redondo Y se aumentan 7 puntos cada dos vueltas alternos durante 14 vueltas?? Y otros 7 cada 4 durante 8 vueltas?? Me encanta el patrón pero no lo entiendo :(

13.02.2019 - 19:33

DROPS Design answered:

Hola Paula. Antes del patrón tienes un TIP PARA LOS AUMENTOS, donde te explican cómo trabajar los aumentos. Para que no te queden agujeros, las HEB se trabajan siempre retorcidas. La cantidad de veces que haya que repetir los aumentos dependerá de la talla que estés trabajando, Por ejemplo, repetimos los aumentos cada 2ª vuelta 7 veces en el caso de la talla S, etc.

16.02.2019 - 20:09

country flag Chantal DUJARDIN wrote:

Bonjour, comment dois-je faire et combien de pelotes en plus si je veux que le pancho soit plus long et arrive en bas des fesses? Merci pour votre réponse

21.12.2018 - 16:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dujardin, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Merci de bien vouloir contacter votre magasin DROPS pour toute assistance personnalisée - même par mail ou téléphone. Bon tricot!

02.01.2019 - 08:36