Starry Night Jumper#starrynightjumper |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað i hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til þess koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og fyrir miðju undir ermi): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og prjónað ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 98-104-104-106-110-112 l á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf sl með litnum koksgrár þar sem auknar eru út 2-8-8-18-22-32 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 100-112-112-124-132-144 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur í hring eftir mynstri A.1 – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Aukið út í umf 4 eins og útskýrt er í mynstri (= 25-28-28-31-33-36 l fleiri og 125-140-140-155-165-180 l í umf). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka (endið eftir umf merktri með ör fyrir rétta stærð), prjónið 2 umf slétt með litnum koksgrár og aukið út um 3-4-4-5-3-4 l jafnt yfir í 1. umf = 128-144-144-160-168-184 l í umf. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð = 16-18-18-20-21-23 mynstureiningar ca 8 l). Haldið svona áfram með mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 256-288-288-320-336-368 l í umf og stykkið mælist ca 17-17-17-19-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umf sl með litnum koksgrár þar sem aukið er út um 8-6-6-10-12-4 l jafnt yfir = 264-294-294-330-348-372 l. Næsta umf er prjónuð þannig (með litnum koksgrár): Prjónið 75-83-87-99-109-119 (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 75-83-87-99-109-119 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 57-64-60-66-65-67 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú mynstur í hring eftir mynstri A.3. Eftir 1 umf með mynstri í A.3 er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu fyrir laskalínu í 4. hverri umf alls 3-3-4-3-4-5 sinnum – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, en 1 l hvoru megin við prjónamerki er alltaf prjónuð með litnum koksgrár. Eftir útaukningu fyrir laskalínu eru 288-318-326-354-380-412 l í umf og stykkið mælist ca 22-22-23-24-25-27 cm frá öxl. Næsta umf er prjónuð þannig (mynstur heldur áfram eins og áður): Prjónið fyrstu 81-89-95-105-117-129 l (= bakstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóni (= undir ermi), prjónið næstu 81-89-95-105-117-129 l (= framstykki), setjið næstu 63-70-68-72-73-77 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l á prjóni (= undir ermi). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-258-282 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið (= 89-97-105-115-129-141 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring með mynstri eftir mynsturteikningu A.3 – ATH: Mynstrið heldur síðan áfram frá berustykki – þær l sem ekki ganga upp í mynstri í hliðum á fram- og bakstykki eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fækkið lykkjum hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 3-3-3-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 162-178-194-218-246-270 l – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum koksgrár. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm endar A.3 og prjónað er með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 18-18-19-21-23-23 cm (stykkið mælist ca 40-40-42-45-48-50 cm frá öxl), aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum = 178-194-210-230-258-282 l. Þegar stykkið mælist 34-36-37-38-39-39 cm (nú eru eftir 2 cm til loka – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 8 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón í hring með mynstri eftir mynsturteikningu a.3 (mynstrið heldur síðan áfram frá berustykki og l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri fyrir miðju undir ermi eru prjónaðar með litnum koksgrár). Að auki eru fitjaðar upp 8-8-10-10-12-12 nýjar l í lok fyrstu umf = 71-78-78-82-85-89 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar l (= mitt undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-2-2-2-2-1½ cm millibili alls 11-14-14-15-16-17 sinnum = 49-50-50-52-53-55 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 4-4-4-6-6-6 cm endið á A.3 og prjónið síðan með litnum koksgrár til loka. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-39-37 cm (nú eru eftir 2 cm að loka máli – mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið garðaprjón og fellið LAUST af, ermin mælist ca 41-41-41-41-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #starrynightjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.