Letty skrifaði:
Deze zijn echt leuk. Daar wil ik het patroon wel van hebben.
22.06.2015 - 11:24
José skrifaði:
Supergaaf! Die zou ik heel graag maken.
13.06.2015 - 16:49
Karin skrifaði:
Das sieht nach richtig kuschelig warmen Füßen aus. Kann ich sehr gut gebrauchen!
05.06.2015 - 09:51
Elisabeth Bataille skrifaði:
Intemporel et en même temps jeune
27.05.2015 - 22:17
Rita Ravone skrifaði:
Simpatiche, ma senza inutili pretese
27.05.2015 - 16:49
Twist & Shout#twistandshoutslippers |
|
|
|
|
Prjónaðar og þæfðar tátiljur með kögri úr DROPS Snow. Stærð 35-44.
DROPS 166-29 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN Á ÖKKLA / LEGG: Frá réttu: * Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við – LESIÐ LEIÐBEININGAR og prjónið 6-6-7-7 l til baka. Prjónið 10-10-12-12 l, snúið við og prjónið 10-10-12-12 l til baka. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 6-6-7-7 l til baka *. Prjónið 1 umf yfir allar l, endurtakið frá *-* á gagnstæðri hlið með byrjun frá röngu. Prjónið síðan 1 umf til baka frá röngu yfir allar l. LEIÐBEININGAR: Í hvert skipti sem snúið er við mitt í umf þá er fyrsta l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið áfram eins og áður. Það kemur til með að myndast gat í stykkinu en það hverfur við þæfingu. LEIÐBEININGAR UM KÖGUR: Svo að kögrið hangi fallega verður að bleyta það aðeins, hrista það til og þurrka áður en það er hnýtt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er efst á fæti og endað á tá. TÁTILJA: Fitjið upp 38-42-44-44 l á prjóna nr 9 með DROPS Snow. Prjónið 1 umf sl frá röngu (1. umf = frá röngu), 7 umf sléttprjón, 1 umf sl frá röngu (það eru heklaðar lykkjur í þessari umf síðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni til loka. Prjónið þannig (næsta umf = frá réttu): 2 l slétt saman, 34-38-40-40 l sl, 2 l slétt saman = 36-40-42-42 l. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá röngu): 2 l br saman, 32-36-38-38 l br, 2 l br saman = 34-38-40-40 l. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá réttu): Prjónið UPPHÆKKUN Á ÖKKLA yfir síðustu l á hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan! Prjónið 6 umf sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4-4-4-2 l jafnt yfir = 30-34-36-38. AUKIÐ ÚT FYRIR HÆL ÞANNIG: Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 9-9-10-11 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l í umf. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 5-5-6-6 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l í umf. Prjónið 1 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* í gagnstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 3 sinnum á hvorri hlið) = 42-46-48-50 l. FÆKKIÐ LYKKJUM AF FYRIR HÆL ÞANNIG: Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 8-8-9-10 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 4-4-5-5 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 1 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* í gangstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 3 sinnum á hvorri hlið) = 30-34-36-38 l. PRJÓNIÐ NÚ FÓT ÞANNIG: Setjið 1 merki í síðustu l í annarri hliðinni, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN. Fækkið nú lykkjum frá réttu ofan á fæti þannig: Prjónið 8-8-9-10 l, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið þar til 10-10-11-12 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið út umf, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 3-3-4-4 sinnum = 24-28-28-30 l. Prjónið sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist ca 18-21-25-29 cm, mælt frá merki. FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR TÁ ÞANNIG: Fækkið um 3-4-4-4 l jafnt yfir í næstu umf frá réttu, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 4-4-4-4 sinnum = 12-12-12-14 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-6-7 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. LYKKJUR: Heklið lykkjur til að festa kögrið í. Heklið í br l (þ.e.a.s. 9. umf frá uppfitjunarkanti). Heklið með heklunál nr 7 með DROPS Snow frá réttu þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll (= lykkja), hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu br l *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman við miðju undir fæti og upp að uppfitjunarkanti, saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Klippið annan sokkinn af nylon sokkabuxunum í tvennt (á lengdina). Þræðið sokknum upp og niður í gegnum lykkjurnar svo að þær þæfist ekki saman, hnýtið síðan endana saman á sokknum. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. KÖGUR: Setjið 1 kögur í hverja lykkju eftir þæfingu – lesið LEIÐBEININGAR UM KÖGUR. 1 kögur = Klippið 2 þræði ca 20 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda þannig að það myndist lykkja, þræðið lykkjurnar í gegnum lykkjurnar á tátiljunni og dragið endana í gegnum lykkjurnar á kögri. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 7 cm langt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twistandshoutslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.