DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 166-29
DROPS Design: Mynstur nr ee-546
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42 - 42/44
Lengd fótar eftir þæfingu: ca 22 - 24 - 26 - 28 cm
Hæð á tátilju eftir þæfingu: ca 19 cm í öllum stærðum.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
250-250-300-300 gr litur nr 47, ljós beige

DROPS PRJÓNAR NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm fyrir þæfingu (ca 13 l x 26 umf með sléttprjóni 10 x 10 cm eftir þæfingu).
DROPS HEKLUNÁL NR 7 – fyrir lykkjur.
FYLGIHLUTIR: Nylon sokkur fyrir þæfingu.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

UPPHÆKKUN Á ÖKKLA / LEGG:
Frá réttu: * Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við – LESIÐ LEIÐBEININGAR og prjónið 6-6-7-7 l til baka. Prjónið 10-10-12-12 l, snúið við og prjónið 10-10-12-12 l til baka. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 6-6-7-7 l til baka *. Prjónið 1 umf yfir allar l, endurtakið frá *-* á gagnstæðri hlið með byrjun frá röngu. Prjónið síðan 1 umf til baka frá röngu yfir allar l.

LEIÐBEININGAR:
Í hvert skipti sem snúið er við mitt í umf þá er fyrsta l tekin óprjónuð. Herðið á þræði og prjónið áfram eins og áður. Það kemur til með að myndast gat í stykkinu en það hverfur við þæfingu.

LEIÐBEININGAR UM KÖGUR:
Svo að kögrið hangi fallega verður að bleyta það aðeins, hrista það til og þurrka áður en það er hnýtt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjað er efst á fæti og endað á tá.

TÁTILJA:
Fitjið upp 38-42-44-44 l á prjóna nr 9 með Snow. Prjónið 1 umf sl frá röngu (1. umf = frá röngu), 7 umf sléttprjón, 1 umf sl frá röngu (það eru heklaðar lykkjur í þessari umf síðar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan stykkið í sléttprjóni til loka. Prjónið þannig (næsta umf = frá réttu): 2 l slétt saman, 34-38-40-40 l sl, 2 l slétt saman = 36-40-42-42 l. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá röngu): 2 l br saman, 32-36-38-38 l br, 2 l br saman = 34-38-40-40 l. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá réttu): Prjónið UPPHÆKKUN Á ÖKKLA yfir síðustu l á hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan!
Prjónið 6 umf sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4-4-4-2 l jafnt yfir = 30-34-36-38.
AUKIÐ ÚT FYRIR HÆL ÞANNIG:
Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 9-9-10-11 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l í umf. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 5-5-6-6 l til baka, prjónið 2 l í síðustu l í umf. Prjónið 1 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* í gagnstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 3 sinnum á hvorri hlið) = 42-46-48-50 l.
FÆKKIÐ LYKKJUM AF FYRIR HÆL ÞANNIG:
Frá réttu: * Prjónið 10-10-11-12 l, snúið við og prjónið 8-8-9-10 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 6-6-7-7 l, snúið við og prjónið 4-4-5-5 l til baka, prjónið 2 síðustu l saman. Prjónið 1 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* í gangstæðri hlið, með byrjun frá röngu. Endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í hvorri hlið (= alls 3 sinnum á hvorri hlið) = 30-34-36-38 l.
PRJÓNIÐ NÚ FÓT ÞANNIG:
Setjið 1 prjónamerki í síðustu l í annarri hliðinni, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN. Fækkið nú lykkjum frá réttu ofan á fæti þannig: Prjónið 8-8-9-10 l, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið þar til 10-10-11-12 l eru eftir, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið út umf, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 3-3-4-4 sinnum = 24-28-28-30 l. Prjónið sléttprjón án úrtöku þar til stykkið mælist ca 18-21-25-29 cm, mælt frá prjónamerki.
FÆKKIÐ LYKKJUM FYRIR TÁ ÞANNIG:
Fækkið um 3-4-4-4 l jafnt yfir í næstu umf frá réttu, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls 4-4-4-4 sinnum = 12-12-12-14 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-6-6-7 l.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

LYKKJUR:
Heklið lykkjur til að festa kögrið í. Heklið í br l (þ.e.a.s. 9. umf frá uppfitjunarkanti). Heklið með heklunál nr 7 með Snow frá réttu þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll (= lykkja), hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu br l *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið saman við miðju undir fæti og upp að uppfitjunarkanti, saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Prjónið aðra tátilju á sama hátt.

ÞÆFING:
Klippið annan sokkinn af nylon sokkabuxunum í tvennt (á lengdina). Þræðið sokknum upp og niður í gegnum lykkjurnar svo að þær þæfist ekki saman, hnýtið síðan endana saman á sokknum.
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

KÖGUR:
Setjið 1 kögur í hverja lykkju eftir þæfingu – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM KÖGUR. 1 kögur = Klippið 2 þræði ca 20 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda þannig að það myndist lykkja, þræðið lykkjurnar í gegnum lykkjurnar á tátiljunni og dragið endana í gegnum lykkjurnar á kögri. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 7 cm langt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Jenny wrote:

Hvorfor er den kategoriserer under hækling? Det gør det sværere at finde den igen

13.11.2016 - 11:56

DROPS Design answered:

Hej Jenny. Der var en lille fejl i vores side her, men vi arbejder paa sagen, saa det burde vaere löst indenfor et par dage :)

14.11.2016 - 14:32

country flag Jenny wrote:

Hei! Ohjeessa lukee, että "neulo sitten sileää neuletta lopulliseen mittaan asti", mikä tämä lopullinen mitta on? :) Kiitos vastauksestanne jo etukäteen!

15.10.2016 - 08:42

DROPS Design answered:

Neulot sileää neuletta, kunnes tohveli on valmis. Tohvelin mitat huovutuksen jälkeen ovat seuraavat: Jalkapohjan pituus: 22-24-26-28 cm ja tohvelin korkeus: n. 19 cm.

18.10.2016 - 16:03

country flag Elizabeth-Anne wrote:

Bonjour, J'ai un doute. Après le dernier rang de diminution talon (30 mailles), je dois placer un marqueur dans la maille la plus au bord de l'un des cotés. Ce marqueur je le pose donc à l'endroit extérieur le plus large du talon et non pas sur la maille extérieure du dernier rang de diminution ? C'est bien cela ? Merci.

25.01.2016 - 14:33

DROPS Design answered:

Bonjour Elizabeth-Anne, le marqueur se place dans une des m lis, après les diminutions du talon, quand on commence le pied. Bon tricot!

25.01.2016 - 17:06

country flag Helle Lagermand wrote:

Kan jeg købet et par i str 36/37 færdig-lavet ? Åhhh det håber jeg da jeg har sclerose og ønsker mig så endelig et par at hygge mig i 🙏🏼 Mvh Helle Godt nytår

29.12.2015 - 22:58

DROPS Design answered:

Hej Helle. Vi saelger ikke faerdiglavede sokker, men kontakt en garnbutik, de kender sikkert nogen der kan strikke dem til dig mod betaling.

06.01.2016 - 16:47

country flag Marion wrote:

Bij welke beenhoogte wordt gestart met het meerderen voor de hiel?

02.11.2015 - 12:19

DROPS Design answered:

Hoi Marion. We geven geen hoogte aan. Maar je begint na de 6 nld tricotst en het minderen van de steken: "Brei 6 nld in tricotst over alle st, minder TEGELIJKERTIJD in de 1e nld 4-4-4-2 st gelijkmatig = 30-34-36-38 st."

02.11.2015 - 14:28

country flag Lone wrote:

Kan det virkelig passe, at foden - i str 35/37 - kun skal være 24 m bred? Det er ca 18,5 cm ... Jeg har strikket den nu og filtet dem - de er meget lange, men utroligt smalle (det var de også FØR filtningen!) - har trukket dem på en læst str 36/37, men de er nærmest ved at sprække under bunden, der hvor sammensyningen er... ?!?!

26.10.2015 - 22:34

DROPS Design answered:

Hej Lone, jo det stemmer, har de filtet lidt for meget sammen, så lave dem våde igen inden du trækker dem ud i den rigtige størrelse! God fornøjelse!

30.10.2015 - 09:02

country flag Christine Willwoldt wrote:

Gibt es dazu auch eine Graphik? Bitte, bitte .... Do you have a drawing for these instructions? Pleeeease ... Thanks ;-)

09.10.2015 - 13:22

DROPS Design answered:

Leider haben wir hierzu keine Skizze. Aber wenn Sie sich genau an die Anleitung halten, sollte es funktionieren, die Anleitung ist recht ausführlich. Bei Fragen melden Sie sich einfach.

13.10.2015 - 13:10

country flag Anne-carlijn wrote:

Ik kom er niet uit. In het patroon staat: brei als volgt: 2r samen = 38, 2r samen = 40. Brei de volgende naald 2av samen = 36, 2av samen =38. Zoals ik t begrijp moet er geminderd worden. Alleen vind ik t vreemd dat je van 38 naar 40 gaat. En vorvolgens av 36 naar 38????

22.08.2015 - 02:43

DROPS Design answered:

Hoi Anne-Carlijn. Je bent begonnen met 42 st (maat 38/39) en dan brei je: 2 st r samen, 38 r en 2 st r samen = je hebt nu 40 st op de nld. In de volgende nld brei je 2 st r samen, 36 r en 2 st r samen = en je hebt nu 38 st over. Ik hoop dat het nu duidelijker is.

24.08.2015 - 15:01

country flag Letty wrote:

Deze zijn echt leuk. Daar wil ik het patroon wel van hebben.

22.06.2015 - 11:24

country flag José wrote:

Supergaaf! Die zou ik heel graag maken.

13.06.2015 - 16:49