Mirja skrifaði:
Hallo liebes Team, auch ich hänge an der gleichen Stelle, wie Josephine. Ist es richtig, dass vor der rechten Blende, 6 linke Maschen hintereinander gestrickt werden? Stricke ich A2 bis nur noch 12 Maschen übrig sind, dann ende ich mit 3 linken Maschen. Stricke ich dann noch einmal 3 linke Maschen (also insgesamt 6 linke Maschen) und dann die Blende? Warum ist das nur auf der einen Seite so? Vielen Dank für Ihre Hilfe! VG Mirja
27.09.2016 - 09:03DROPS Design svaraði:
Liebe Mirja, so müssen Sie stricken: A.1 (= 9 M), A.2 x 42-46-52-58-64-72 (= über die nächsten 210-230-260-290-320-360 M. - A.2 = 3 M. li, 2 M. re am 1. Reihe), dann 3 li. Maschen und A.3 (= 9 M) = 231-251-281-311-341-381 M.
27.09.2016 - 10:21
Laetitia skrifaði:
Bonjour, Que fait-on des mailles laissées en attente pour l'encolure ? Ces mailles sont-elles reprises lors du relevage des mailles pour le col ? Merci d'avance pour votre réponse
19.09.2016 - 01:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Laetitia, effectivement, quand on va relever les mailles pour le col, on reprend les mailles en attente et on relève les mailles le long des m rabattues (de chaque côté de l'encolure) et on reprend les mailles restantes de l'empiècement. Bon tricot!
19.09.2016 - 10:10
Josephine skrifaði:
Hallo liebes Team, ich komme gleich am Anfang des Musters nicht weiter. Können Sie mir weiterhelfen ... "Die nächste Hin-R wie folgt str: A.1 (= 9 Blenden-M), im Rippenmuster mit Zöpfen nach Diagramm A.2 str bis noch 12 M übrig sind, enden mit 3 M li und A.3 (= 9 Blenden-M)." An der Stelle, wo noch 12 Maschen übrig sind habe ich das Muster mit 3 M li. beendet. Sollen dann weitere 3 M li. folgen, so dass insgesamt 6 li. Maschen in Folge sind und dann A.3 anschließen? Josi
07.09.2016 - 08:44DROPS Design svaraði:
Liebe Josephine, wenn sie A.2 wiederholen, stricken Sie (3 M. li, 2 M. re (= Zopf)) bis 12 M. übrig sind, dann diese 12 M so stricken: 3 M li und A.3, dh auf jeden Seite haben Sie die Blende M (= A.1 und A.3 = 9 M) + 3 li von der Vorderseite + 2 re.
07.09.2016 - 09:20
Lars skrifaði:
Man ökar ärmen vid: 20;28,5;37;45,5 cm
16.02.2016 - 11:47
Annelie skrifaði:
Fel i mönstret på ärmen i storlek L. Det går inte att upprepa ökningen med 8,5 cm mellanrum, då blir ärmen 54 cm. Enligt mönstret ska den vara 48 cm i L.
16.02.2016 - 11:04
Liv Oftedal skrifaði:
Jeg lurerf på om det skal felles til raglan både på retten og vrangen siden det i oppskrifta er anvisning på begge deler. Eller er det valgfritt - enten på retten eller på vrangen. Hvisspørsmålet er uklart har jeg telefon nr. 41409368. Håper på et hurtig svar, da jakken skal være en julegave. mvh. Liv
14.12.2015 - 10:55DROPS Design svaraði:
Hej Liv, Ja når du i opskriften kommer til at du skal felle på hver p, må du felle både fra retten og vrangen. God fornøjelse!
17.12.2015 - 09:26
Trudy Boos skrifaði:
Na de boord begon ik met het het lijfje. Na de voorbies brei ik A.4a. Dat begrijp ik, maar ik begrijp deze zin niet "brei de laatste 2st in A2 (=kabel)". Maak ik A.4A niet af? Ik begrijp niet waar ik hier een kabelsteek maak. De rest is duidelijk, mooi vestje!
25.10.2015 - 20:11DROPS Design svaraði:
Hoi Trudy. Je breit A.4A voor 28-28-33-38-38-43 st (afhankelijk van welke maat je maakt - zie ook telpatroon) Daarna brei je de 2 laatste st van A.2: = het kabeltje. Ik snap niet wat je bedoelt waarom je schrijft hier geen steken voor te hebben?
28.10.2015 - 11:30
Marilyn Butler skrifaði:
What does the sizes relate to S, M, L, XL, XXL, XXL, XXXL. as I am Engish . bust size in cm's Please or english sizes as follows please. 10 12 14 16 18 20 22 etc. would also help.
24.10.2015 - 17:28DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Butler, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measurements in cm taken flat from side to side, compare these with a garment you have and like the shape to find out the matching size - read more about this. Happy knitting!
26.10.2015 - 09:06Nayla Menassa skrifaði:
Bonjour pouvez vous m'expliquer comment on saute une maille quand c la case noire. Merci
19.10.2015 - 12:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Menassa, la case noire correspond à une maille qui a été diminuée au rang précédent, passez directement à la maille suivante(= il reste 2 m env dans A.4A et A.4B). Bon tricot!
19.10.2015 - 14:07
Helle Keinicke skrifaði:
Hejsa. Er der nogen guide til størrelser? Jeg ligger gerne et sted mellem S og M, afhængigt af den givne opskrift, så for at være sikker, kunne det være rart med et måleskema? Mvh Helle
13.10.2015 - 16:03DROPS Design svaraði:
Hej Helle. Du finder maaleskemaet nederst i opskriften.
14.10.2015 - 12:17
Sweet As Honey#sweetashoneycardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með gatamynstri, litlum köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-42 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 43 cm STÆRÐ M: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm STÆRÐ L: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm STÆRÐ XL: 2, 8, 15, 21, 28, 34, 41 og 47 cm STÆRÐ XXL: 2, 8, 15, 21, 28, 34, 41 og 47 cm STÆRÐ XXXL: 2, 9, 15, 22, 28, 35, 41 og 48 cm ATH: Síðasta hnappagatið er fellt af í kanti í hálsmáli. ÚTAUKNING: Byrjið 3 l á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 6 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.6. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Byrjið á 2 l á undan A.6, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.6 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l) færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan A.6, prjónið 2 l snúnar br saman, prjónið A.6 (= 6 l), prjónið 2 l br saman (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 231-251-281-311-341-381 l (meðtaldar 9 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næstu umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 9 kantlykkjur að framan), prjónið stroff með köðlum eftir mynstri A.2 þar til 12 l eru eftir á prjóni, endið á 3 l br og A.3 (= 9 kantlykkjur að framan). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir kant að framan, prjónið A.4A (= 28-28-33-38-38-43 l), prjónið 2 síðustu l í A.2 (= kaðall), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 50-60-65-70-85-95 l JAFNFRAMT eins og í öllum 3 l br (í A.2) er fækkað um 2 l br með því að prjóna 2 l br saman í hverri br mynstureiningu, prjónið A.4B (= 28-28-33-38-38-43 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð), prjónið A.4C (= 25-25-30-35-35-40 l), prjónið 2 síðustu l í A.2 (= kaðall), prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 50-60-65-70-85-95 l JAFNFRAMT eins og í öllum 3 l br (í A.2) er fækkað til 2 l br, prjónið A.4D (= 28-28-33-38-38-43 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð) og endið á A.3 eins og áður yfir kant að framan. Þegar prjónað hefur verið til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br eins og útskýrt er í mynstri eru 193-209-233-257-281-313 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá rétu þannig: Prjónið A.1 eins og áður yfir kant að framan, A.5A (= 23-23-27-31-31-35 l), sléttprjón yfir næstu 42-50-54-58-70-78 l, A.5B (= 26-26-30-34-34-38 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð), A.5C (= 19-19-23-27-27-31 l), sléttprjón yfir næstu 42-50-54-58-70-78 l, A.5D (= 23-23-27-31-31-35 l – sjá byrjun á mynstri fyrir rétta stærð) og endið á A.3 eins og áður yfir kant að framan. Setjið 1 prjónamerki 53-57-63-69-75-83 l inn frá hvorri hlið (= 87-95-107-119-131-147 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hliðum – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4½-4½-6-6-6-6 cm millibili alls 5-5-4-4-4-4 sinnum = 213-229-249-273-297-329 l. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 54-58-62-68-73-81 l eins og áður (= vinstra framstykki), fellið af 8-8-10-10-12-12 l fyrir handveg, prjónið 89-97-105-117-127-143 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 8-8-10-10-12-12 l fyrir handveg og prjónið þær 54-58-62-68-73-81 l sem eftir eru eins og áður (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 60-60-65-65-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff hringinn eftir mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 16 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf sl þar sem aukið er út um 12-12-13-13-12-12 l jafnt yfir = 72-72-78-78-82-82 l. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 9-5-8½-4-5-3½ cm millibili alls 4-6-4-7-6-8 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-47-47 cm fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 l mitt undir ermi =72-76-76-82-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 341-365-381-417-437-477 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, A.1/A.3 yfir kant að framan, A.5A/A.5D í hvorri hlið við miðju að framan og A.5B/A.5C við miðju að aftan. JAFNFRAMT er A.6 prjónað áfram í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.6) og í 1. umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 24-25-28-28-32-33 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 4-5-2-5-1-2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-54 cm setjið síðustu 13-15-19-21-24-29 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli í 2 næstu umf (til þess að sleppa við að klippa frá eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Haldið áfram fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni og 2 l 2-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 1 l í byrjun á hverri umf á hvorri hlið þar til úrtaka fyrir laskalínu er lokið. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru ca 73-77-85-91-101-113 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 117-125-141-153-173-197 l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið síðan 1 umf sl frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til 138-138-146-150-158-162 l. Prjónið síðan með byrjun frá röngu þannig: 2 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 l br, 2 l sl) endið stroff á 2 l br og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br á kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetashoneycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.