DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Forever Yours

Prjónaður bolero úr DROPS Merino Extra Fine með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 166-15
DROPS Design: Mynstur nr me-081
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L /XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
350-350-450-500 gr litur nr 22, ljós fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm, eða ein mynstureining af A.2 verði 3,5 cm á breiddina. (Notið e.t.v. 2 stk hringprjóna í byrjun á stykki).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring)
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónað slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað í hring á hringprjóna. Síðan er stykkið prjónað í 2 stykkjum fram og til baka og saumað saman í lokin.

BOLERO:
Fitjið upp 420-480-510-690 l á hringprjóna nr 4 (notið 2 st hringprjóna ef þörf er á til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar) með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan mynstur þannig: * A.1 (= 9 l), 6 l br *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf (= 28-32-34-46 mynstureiningar). Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 364-416-442-598 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram alveg eins, nema nú er prjónað A.2 (= 7 l) yfir A.1, JAFNFRAMT í næstu umf er fækkað um 1 l með því að prjóna 2 l br saman eftir hverja mynstureiningu A.2! Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin á hverri mynstureiningu A.2 í 5. hverri umf 4 sinnum til viðbótar = 224-256-272-368 l. Þegar stykkið mælist alls 16 cm og prjónaðar hafa verið 7 mynstureiningar A.2 á hæðina eru prjónaðar fyrstu 112-128-136-184 l í umf eins og áður. Setjið þessar l á þráð. Klippið þráðinn frá sem prjónað er með. Prjónið síðan stykkið fram og til baka í stykkjum.

STYKKI 1:
Héðan er nú mælt!
Prjónið nú fram og til baka þannig: Fitjið upp 2 l á hringprjóna nr 4, haldið áfram yfir næstu 112-128-136-184 l á stykki, fitjið upp 1 l í lok umf = 115-131-139-187 l, snúið við og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l sl (= br frá réttu) haldið áfram með mynstur þar til 2 l eru eftir, 1 l sl (= br frá réttu), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-10-10 cm og prjónaðar hafa verið 4-4-5-5 mynstureiningar A.2 á hæðina eru fitjaðar upp 18-18-26-26 l í lok næstu 2 umf = 151-167-191-239 l. Haldið áfram með mynstur þannig: 3 l garðaprjón, 1 l br, * A.2, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, 3 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka 6-7-8-9 sinnum á hæðina frá þeim nýju l sem fitjaðar voru upp og stykkið mælist alls 36-38-42-44 cm, prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

STYKKI 2.
Fitjið upp 1 l á hringprjóna nr 4, prjónið mynstur eins og áður yfir 112-128-136-184 l af þræði (= ranga), og fitjið upp 2 l í lok umf = 115-131-139-187 l. Haldið síðan áfram eins og á fyrra stykki.

FRÁGANGUR:
Saumið affellingarkantinn á stykki 1 og stykki 2 með lykkjuspori.
Saumið sauma undir ermum, þ.e.a.s. saumið saum A á stykki 1 og stykki 2 saman og saumið saum B á stykki 1 og stykki 2 saman.
Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Brigitte wrote:

Je crois avoir respecté les consignes mais je ne vois comment il faut faire pour coudre les manches et la partie des côtes à l'endroit

20.03.2024 - 19:43

country flag Brigitte wrote:

Je crois avoir respecté les consignes mais je ne vois comment il faut faire pour coudre les manches et la partie des côtes à l'endroit

20.03.2024 - 18:34

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, pliez votre boléro en double pour qu'il se présente devant vous, à plat, comme dans le schéma des mesures, avec la bordure en bas, face à vous et en haut, l'ouvrage plié en double. notez les parties A et B et faites la couture des côtés en suivant les pointillés du schéma, les 12-14-16-18 + 1 cm correspondent à l'ouverture des manches. Bon tricot!

21.03.2024 - 08:45

country flag Heidi Andersen wrote:

Hej ☺️ Jeg forstår ikke indtagningerne efter man er begyndt på diagram 2. Der står gentag indtagningen på skiftevis højre og venstre side af hver rapport på hver femte omgang 4 gange .. Hvordan skal jeg helt præcis gøre ? 🤔

03.06.2020 - 21:47

DROPS Design answered:

Hej Heidi, første tager du ind på højre side af alle vrangmaskerne, strikker 4 omgange og tager ind på næste omgang i venstre side af alle vrangmaskerne, således gør du på hver 5.omgang skiftevis i højre og venstre side. God fornøjelse!

05.06.2020 - 12:01

country flag Della wrote:

Can this be knitted on straight needles?

25.02.2019 - 10:05

DROPS Design answered:

Dear Della, please find informations about adapting a pattern onto straight needles here. Happy knitting!

25.02.2019 - 11:37

country flag Annette Bentzen wrote:

Jeg er næsten færdig med opskriften. Strikkefastheden er overholdt, garnmængden er købt på nettet i henhold til opskriften. 7 nøgler. Nu er jeg løbet tør for garn og mangler 4 mønster-serier. Dette bør ikke kunne ske😠.

27.01.2017 - 10:34

country flag Birgit wrote:

KNn ich das Modell au h mit Belle stricken oder legt es sich dann weniger gut an. Oder leiert aus? Danke für Antwort Birgit

11.07.2016 - 18:07

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, ich denke Belle eigent sich gut für eine sommerliche Variante dieses Boleros.

12.07.2016 - 14:00

country flag Mikky wrote:

Hallo, ik brei al enige tijd geregeld iets van drops. Maar zou het niet handig zijn om de vragen in een keer te vertalen? Ik ben nederlandstalig, begrijp wel engels en frans maar de breitermen zijn vaak te moeilijk. Spaans/zweeds/noors etc, tja dat gaat mijn petje helemaal te boven. Door alles te vertalen (op de site kan je ook talen selecteren) voorkom je 20keer dezelfde vraag te moeten beantwoorden. grt Mikky

28.02.2016 - 16:18

DROPS Design answered:

Beste Mikky. Wij hebben niet de ressources om reacties, opmerkingen en vragen in tot 17 talen op bijna 7000 patronen te vertalen. Heb je een vraag die je denkt al eerder is gesteld, dan kan je altijd zelf proberen met Google Translate.

29.02.2016 - 10:34

country flag Amandine wrote:

Pouvez-vous me donner des directives pour continuer la suite, car je ne comprends pas les explications? J'ai demandé à des personnes et même aller à la boutique, mais on n'est pas en mesure de me répondre. Je commence vraiment à désespérer... Merci...

06.02.2016 - 18:51

DROPS Design answered:

Bonjour Amandine, le rang de montage et la partie tricotée jusqu'aux points A et B du schéma = ouverture du boléro (col, devants et bas du dos), les côtés A et B (pointillés) sont les coutures des manches (cf Assemblage), les mailles montées de chaque côté = manches et les mailles rabattues des parties 1 et 2 s'assemblent entre elles (couture dos, voir aussi sur la photo de dos). Bon tricot!

08.02.2016 - 11:41

country flag Amandine wrote:

Mais je ne sais plus comment prendre mon ouvrage en lisant vos instructions dans la partie 1, car si je regarde votre schéma, au milieu, il n'y a pas de "fente" comme il y en a dans mon ouvrage et si j'essaye de voir comment se porte mon ouvrage, je ne sais pas non plus.

06.02.2016 - 18:51

DROPS Design answered:

Bonjour Amandine, dans le schéma, la partie du bas en trapèze est tricoté en rond, puis à partir des points A & B, on tricote chaque des parties séparément d'abord droit sur 8-10 cm puis en montant les mailles des 2 manches (= de chaque côté). Les parties en pointillés dans le schéma correspondent aux coutures des manches. Bon tricot!

08.02.2016 - 11:36

country flag Amandine wrote:

Bonjour, J'ai beau retourner le problème dans tous les sens, mais je ne comprends pas comment faire. J'ai ceci: h t t p ://hpics.li/090d58b (svp regardez le lien sans les espaces entre les 1ères lettres et le ":") Comme vous pouvez le voir, j'ai la partie droit avec manche, puis une autre partie.

06.02.2016 - 18:49

DROPS Design answered:

Bonjour Amandine, quand on tricote la partie 1 séparément, on doit monter les mailles des manches des 2 côtés (= à la fin de 2 rangs suivant = sur l'endroit et sur l'envers) - voir aussi schéma en bas de page (après A et B). Bon tricot!

08.02.2016 - 11:34