Marianne skrifaði:
Superbe châle! A faire absolument. So beautiful - will have to make this.
09.06.2015 - 14:38
Ellis skrifaði:
Now this is a sjawl, fits it all, need to buy the circular needles to be able to hold it, or make it whith laceyarn, beautyfull
08.06.2015 - 21:31
Lonni Høitbjerg skrifaði:
Meget flot sjal og en rigtig fin størrelse
02.06.2015 - 14:37
Christiane skrifaði:
Trop hâte de le réaliser
01.06.2015 - 15:56
Ingeborg Rixen skrifaði:
Sehr schön, gefällt mir sehr gut
29.05.2015 - 17:28
Merja skrifaði:
Ihana huivi, tarpeeksi isokin.
28.05.2015 - 10:43
Anna Maria Xerra skrifaði:
Semplicemente bellissimo!
28.05.2015 - 09:41
Mundt skrifaði:
Sehr schönes großes Tuch ( passend für große Frauen). Abwechslungsreiches und interessantes Muster. Da wird es nicht langweilig beim Stricken und das Ergebnis sieht hinterher auch noch super aus.
28.05.2015 - 06:51
Janneke Vd Ridder skrifaði:
Mooie kleur en mooi patroon
27.05.2015 - 23:09
Cornelia Sutter skrifaði:
Wunderschön! Werde ich stricken.
27.05.2015 - 20:32
Raspberry Wrap#raspberrywrapshawl |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og garðaprjóni
DROPS 165-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING-1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo það myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Notið e.t.v. tvo hringprjóna ef lykkjurnar verða of margar fyrir einn hringprjón. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.18. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður. SJAL: Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju. Prjónið síðan garðaprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 – þannig: Aukið út um 1 l innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki og 1 l hvoru megin við miðjulykkju. Aukið svona út þar til 57 l eru á prjóni (þ.e.a.s. það eru 28 l hvoru megin við miðjulykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 kantlykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni og miðjulykkja í sléttprjóni. Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 (= 2 l) endurtakið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 91 l á prjóni. Prjónið mynstur A.4-A.6 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 3 l, A.5 (= 6 l) endurtakið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.6 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.6 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 11. umf (= frá réttu) er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 135 l á prjóni. Stykkið mælist ca 22 cm, mælt meðfram miðjulykkju. Prjónið mynstur A.7-A.9 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 2 l, A.8 (= 12 l) endurtekið þar til 3 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.9 yfir 3 l, 1 l sléttprjón (= miðju-l), A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 5 l eru eftir, A.9 yfir 3 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 165 l á prjóni. Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 187 l á prjóni. Prjónið mynstur A.10-A.12 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.10 yfir 3 l, A.11 (= 12 l) er endurtekið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.12 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkj), A.10 yfir 3 l, A.11 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.12 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.10-A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 279 l á prjóni. Stykkið mælist ca 57 cm, mælt meðfram miðjulykkju. Prjónið A.13-A.15 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.13 yfir 8 l, A.14 er endurtekið þar til 9 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.15 yfir 9 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.13 yfir 8 l, A.14 er endurtekið þar til 11 l eru eftir, A.15 yfir 9 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.13-A.15 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 319 l á prjóni. Prjónið mynstur A.16-A.18 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.16 yfir 6 l, A.17 er endurtekið þar til 7 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.18 yfir 7 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.16 yfir 6 l, A.17 er endurtekið þar til 9 l eru eftir, A.18 yfir 7 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.16-A.18 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 403 l á prjóni – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Stykkið mælist ca 81 cm, mælt meðfram miðjulykkju. Prjónið mynstur A.4-A.6 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.6 yfir 4 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.4 yfir 3 l, A.5 er endurtekið þar til 6 l eru eftir, A.6 yfir 4 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT í 11. umf (= frá réttu) er aukið út um 12 l jafnt yfir. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 447 l á prjóni. Prjónið mynstur A.7-A.9 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 3 l eru eftir á undan miðjulykkju. A.9 yfir 3 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.7 yfir 2 l, A.8 er endurtekið þar til 5 l eru eftir, A.9 yfir 3 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.7-A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 477 l á prjóni. Prjónið mynstur A.1-A.3 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.3 yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkju), A.1 yfir 1 l, A.2 er endurtekið þar til 3 l eru eftir, A.3 yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.1-A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 499 l á prjóni. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út um 2 l innan við 2 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki og 2 l hvoru megin við miðjulykkju í hverri umf frá réttu (= 8 l fleiri). Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 100 cm, mælt meðfram miðjulykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raspberrywrapshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.