Susana skrifaði:
Este patrón no debería faltar, es muy bonito
08.01.2015 - 09:35
Dáša skrifaði:
Moc pěkný delší svetřík. Už se těším na návod.
05.01.2015 - 14:29
REVERDY Fabienne skrifaði:
Exactement le modéle que je cherche depuis des années !!! Vivement les explications....
05.01.2015 - 11:01
Simona skrifaði:
Molto bello! uno dei prossimi modelli che farò
03.01.2015 - 12:20
A Refsnes skrifaði:
Denne er stilren og nydelig, synes jeg!
30.12.2014 - 00:44
Janina skrifaði:
Piękny , elegancki , dostojny wzór
28.12.2014 - 14:41
Anette Larsen skrifaði:
Utrolig flot jakke med et smukt mønster
17.12.2014 - 21:18
Karin skrifaði:
Bardzo ciekawe połączenie elegancji i sportowego designu
16.12.2014 - 21:46
Celeste skrifaði:
Je l'adore! original sans être importable, longueur idéale. Je le veux!
15.12.2014 - 13:04
Lillmari Gustafsson skrifaði:
Koftan är den jag gillar mest men där är många modeller som jag kan tänka mig Hela collektionen är jättefin
15.12.2014 - 08:26
Weekend Love#weekendlovejacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með köðlum, gatamynstri og kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-2 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fjórðu og fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 30, 38, 46 og 54 cm. STÆRÐ M: 32, 40, 48 og 56 cm. STÆRÐ L: 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XL: 34, 43, 52 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 35, 44, 53 og 62 cm. STÆRÐ XXXL: 36, 45, 54 og 64 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 198-212-224-246-260-274 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað PERLUPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan! Prjónið perluprjón í 8-8-9-9-9-9 cm, í næstu umf frá réttu er prjónað sléttprjón (10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í perluprjóni til loka), JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-12-12-12 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir lykkjur í kanti að framan) = 208-222-234-258-272-286 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan þannig: 10 kantlykkjur að framan í perluprjóni, 6-6-7-7-7-8 l sléttprjón, A.3 yfir 12 l, A.2 yfir 20 l, A.1 yfir 6-6-6-12-12-12 l, 5-8-10-11-14-16 l sléttprjón, setjið prjónamerki (= hlið), 23-27-30-35-39-43 l sléttprjón, A.3 yfir 12 l, A.2 yfir 20 l, A.1 yfir 12 l, 23-27-30-35-39-43 l sléttprjón, setjið prjónamerki (= hlið), 5-8-10-11-14-16 l sléttprjón, A.3 yfir 6-6-6-12-12-12 l, A.2 yfir 20 l, A.1 yfir 12 l, 6-6-7-7-7-8 l sléttprjón og 10 kantlykkjur að framan. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.4 prjónað yfir A.2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 9-9-9-7-7-7 cm millibili 3-3-3-5-5-5 sinnum til viðbótar (alls 4-4-4-6-6-6 sinnum). ATH! Byrjið að fella af fyrir hnappagötum í hægra framstykki þegar stykkið mælist 30-32-34-34-35-36 cm – sjá HNAPPAGAT að ofan! Þegar A.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina og úrtaka í hliðum er lokið eru 168-182-194-210-224-238 l á prjóni. Prjónið nú A.5 yfir l í A.4. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 68-76-82-88-96-104 l. Haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er fellt af fyrir hnappagötum í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 l 1-2-3-5-6-7 sinnum og 1 l 2-3-3-4-5-5 sinnum = 60-62-64-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 18-20-20-16-18-20 l af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig, í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 20-20-21-21-21-22 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 44-47-50-55-58-61 l. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 40-40-41-41-41-42 l. Lykkjur sem ekki ganga inn í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm eru 10 l fyrir miðju að framan settar á þráð, síðan er fellt af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 4 sinnum. Eftir úrtöku eru 20-20-21-21-21-22 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra stykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 42-44-46-48-50-52 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 10 umf garðaprjón, skiptið síðan yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið þannig: 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón, A.3 yfir 6 l, A.5 yfir 12 l, A.1 yfir 6 l, 9-10-11-12-13-14 l sléttprjón. Haldi áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-12-13-15-16 sinnum = 62-66-70-74-80-84 l. Þegar stykkið mælist 47-46-46-44-44-43 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla – fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum, 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-56-56-57-57 cm, fellið af 3 l á hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 56-56-57-57-58-58 cm. FRÁGANGUR: Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. KRAGI: Prjónið upp 88-109 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan perluprjón. Fellið af með sl yfir br og br yfir sl þegar kraginn mælist 8 cm. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #weekendlovejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.