DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 161-4
DROPS Design: Mynstur nr ai-004
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-300-350-400-400-450 gr litur nr 10, þoka

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm eða 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 26-29-31-35-39-44 á hringprjóna nr 5,5 með Air og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-4-4 cm aukið út í byrjun á hverri umf frá réttu þannig: Aukið út um 1 l 2 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 2 l 2 sinnum = 32-35-37-41-45-50 l (= vinstri öxl). Setjið l á þráð. Fitjið upp og prjónið yfir hægri öxl alveg eins, en aukið er út í byrjun á hverri umf frá röngu = 32-35-37-42-45-50 l (næsta umf er prjónuð frá réttu). Prjónið 1 umf yfir allar l, fitjið upp 16-16-18-18-20-20 l fyrir hálsmáli í lok umf og prjónið 32-35-37-41-45-50 l af þræði = 80-86-92-100-110-120 l. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok næstu 2 umf = 84-90-94-104-114-124 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið).
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið fyrir frágang:
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fellt af þannig í 2. umf: Fækkið um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í annað hvert skipti í 4. hverri umf og í annarri hverri umf 17-17-18-18-19-19 sinnum til viðbótar = 48-54-56-66-74-84 l í umf. Prjónið 2 umf. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4,5 og prjónið 4 umf garðaprjón, fellið af. Stykkið mælist ca 50-51-53-54-57-58 cm.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 26-29-31-35-39-44 l á hringprjóna nr 5,5 með Air og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu = 27-30-32-36-40-45 l (= hægri öxl). Setjið l á 1 þráð. Fitjið upp og prjónið vinstri öxl alveg eins nema aukið er út í byrjun umf frá röngu (næsta umf er prjónuð frá réttu) = 27-30-32-36-40-45 l. Prjónið 1 umf yfir allar l, fitjið upp 26-26-28-28-30-30 l fyrir hálsmál í lok umf og prjónið 27-30-32-36-40-45 l af þræði = 80-86-92-100-110-120 l.
Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm fitjið upp 2 nýjar l í lok næstu 2 umf = 84-90-96-104-114-124 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið fyrir frágang. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið – JAFNFRAMT er aukið út í 2. umf þannig: Aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í annað hvert skipti í 4. hverri umf og í annarri hverri umf 17-17-18-18-19-19 sinnum til viðbótar = 120-126-134-142-154-164 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið fyrir frágang.
Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, prjónið 2 umf, fellið síðan af í næstu umf frá réttu þannig: Fellið af 1 l innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 7-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar = 104-110-116-124-134-144 l. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 4 umf garðaprjón, fellið af. Stykkið mælist ca 57-58-61-62-66-67 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 34-36-37-38-40-42 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið síðan í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 7-7-6-7-8-7 cm er aukið út innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili 10-11-12-13-14-14 sinnum til viðbótar = 56-60-63-66-70-72 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-45-44-43-41-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í – passið uppá að prjónamerkin mætist á fram- og bakstykki. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju.
Saumið saman hliðar þannig: Leggið fram- og bakstykki kant í kant. Saumið þær saman með því að sauma út krosssaum yfir 3 l á breiddina (þ.e.a.s. mitt í l innan við kantlykkju í hverjum st) og 3 l á hæðina. Saumið alveg niður að kanti til og með garðaprjóni á framstykki (passið að prjónamerkin mætist).

HÁLSMÁL:
Prjónið upp 67-83 l á stutta hringprjóna nr 4,5 með Air í kringum hálsmálið. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna) – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Corina Avram wrote:

Do I understand correctly that the front part measures 50cm and the back 57cm? Can these 2 parts be knitted at the same length? Thanks

31.01.2024 - 14:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, you are right, back piece is 7 cm longer than front piece, rather keep the length to get the result as on the picture, see the side seams for this jumper here. Happy knitting!

01.02.2024 - 08:01

country flag Hélène wrote:

Bonjour. Je tricote ce modèle en taille L. Il me semble qu’il y a une erreur dans l’explication du devant : ’” A 19 cm augmenter 2 m à la fin des deux rgs suivants ce qui fait 96 m et non 94” De même en fin de tricot il reste 58 m et non 56. Merci de me le confirmer. Cordialement.

30.08.2023 - 16:33

country flag Thérèse wrote:

Bij het minderen en meerderen aan de zijnaden van de panden, staat ‘minder/meerder’ 1 steek naast de kantsteek in ribbelsteek aan elke kant: betekent dit bij het minderen /meerderen :1 steek meerderen aan het begin en einde van de naald, of betekent het minderen/meerderen ná de kantsteek aan het begin en vóór de kantsteek aan het einde van de naald zodat de zijkant een rechtere lijn krijgt?

10.11.2020 - 14:18

DROPS Design answered:

Dag Thérèse,

Het betekent inderdaad het laatste: ná de kantsteek aan het begin van de naald en voor de kantsteek aan het eind van de naald.

18.11.2020 - 18:48

country flag Jytte Horn wrote:

Kan det passe at der skal være 164m på ryggen i str. xxxl, så bliver den jo næsten dobbelt så bred som forstykket Vh Jytte

22.10.2020 - 15:44

DROPS Design answered:

Hej Jytte, en del af rygstykket skal nå om til siderne på forstykket. Se gerne måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!

22.10.2020 - 15:52

country flag Vita Jurkeviciute wrote:

Hei, jeg vil gjerne vite hva det betyr "1 pinner" eller "1 p"? Hvis jeg strikke glatt rett og tilbake så "1 p" er når jeg strikker bare på rett siden, vrang siden eller det er bege sider? Hva er egentlig 1 pinne er når jeg strikke glatt rett og tilbake? Takk for svar. Jeg st

07.01.2020 - 14:21

DROPS Design answered:

Hej 1 p er bare på rett siden eller bare vrang siden, ikke begge. Lycka till!

31.01.2020 - 11:02

country flag Rit wrote:

Begrijp ik het patroon goed? Het achterpand is langer dan het voorpand. Na de markeerders heb je in het voorpand nog 2 naalden tot aan de ribbel en in het acherpand nog 18naalden (2 + 16 van de minderingen). Hoe kan je dat ooit mooi in elkaar naaien? Ik heb de video bekeken, de kruissteek voor de schuine kanten begrijp ik. Het gaat over het stukje tussen de markeerder en ribbel dit is een vershil van 16 naalden. Bedankt voor je antwoord.

04.12.2019 - 10:38

DROPS Design answered:

Dag Rit,

Het klopt inderdaad zoals het er staat. De zijnaad loopt vanaf de oksel schuin naar voren (zie ook de schematekening) en op het punt waar de zijnaad op het voorpand eindigt, loopt het achterpand weer schuin afm vandaar de 16 extra naalden.

05.12.2019 - 19:59

country flag Vekara wrote:

Hei! På bildet ser det ut at det er mange flere cm ned fra skulderen til halskant enn det blir hvis man følger oppskriften. Da står det jo at man skal øke etter 2cm i størrelse S og M. Halskanten går ganske langt ned på bildet. Jeg har strikket akkurat som det står og da er halskanten veldig tett på halsen. Jeg setter pris på en forklaring.

09.11.2019 - 22:31

DROPS Design answered:

Hej, Vekara, Det er lidt forskelligt i de forskellige størrelser. Men hvis du overholder strikkefastheden skal målene stemme ifølge måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!

21.11.2019 - 15:55

country flag Bodil wrote:

Har nettopp strikket ferdig genseren, den ble for kort både foran og bak.\r\nHva har jeg eventuelt gjort galt, har fulgt oppskriften steg for steg.

22.08.2019 - 22:15

country flag Bodil wrote:

Har satt en merketråd i hver side til montering. Skal felle 1 maske innenfor kantmaske-rille i hver side, på samme omgang? Det skal vekselsvis felles på hver 2. Og 4. Pinne. På retten eller vrangsiden?

16.06.2019 - 20:29

DROPS Design answered:

Hei Bodil. Ja, det felles 1 maske i hver side på samme pinne, fra retten. God fornøyelse

17.06.2019 - 08:18

country flag Isabelle wrote:

Je ne sais pas tricoter avec des aiguilles circulaires. Pouvez-vous traduire les explications avec des aiguilles non circulaires, s'il vous plait ?

21.10.2018 - 11:39

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, seul le col se tricote ici en rond, le pull se tricote en différentes parties assemblées entre elles, en allers et retours pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Retrouvez ici plus d'infos sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!

22.10.2018 - 09:11