Demény Lídia skrifaði:
Ez a leírás nem megfelelő, én az elöl gombolós pulóverhez vettem meg a fonalat, a leírás pedig szerintem egy belebújós pulóverre vonatkozik. Amikor 3 felé vesszük a sort, eleje, háta, eleje, a háta leírás jó, de az eleje nem. Kellene a jó leírás. Köszönöm. Lídia
19.12.2015 - 12:20
Therese skrifaði:
Jeg har vist glemt at tage ind ved armgabet 2 1x og 1 4x (det fremgår ikke af forstykkeopskrifter). Så passer det med antal masker.👍🏻
20.07.2015 - 17:12
Virpi skrifaði:
Suomenkielisen ohjeen etukappaleista puuttuu jotain. Olka jää leveämmäksi kuin takakappaleessa. Onko tähän tulossa korjausta?
19.07.2015 - 17:20DROPS Design svaraði:
Ohje on nyt korjattu.
22.09.2015 - 16:24
Thèrese skrifaði:
Jeg har 6m til ærmehuller og masker passer indtil efter halsindtagningerne :-)
13.07.2015 - 22:05
Ulla skrifaði:
Du har glömt ärmhålet! 40-6-3-4=27
12.07.2015 - 07:18
Thèrese skrifaði:
Højreforstk. Jeg har 40 m - 3 m ind + 4 m ind = 33 m men jeg skal have 27 m (19+8) ? Synes jeg mangler nogle oplysninger her :-)
11.07.2015 - 22:24DROPS Design svaraði:
Hej Therese, Husk også at lukke af til ærmegab som du gjorde på rygstykket, samtidig som du tager de 3 m ind og tager de 4 m ind mod halsen. God fornøjelse!
30.07.2015 - 14:48
Annika skrifaði:
Kommer ni att skriva någon rättelse eller måste jag sy ihop så gott jag kan? Axelavmaskningarna stämmer ju inte.
01.06.2015 - 22:03DROPS Design svaraði:
Hej Annika. Rättelsen er lavet d. 4/5, se mönstret selv og under RÄTTELSER.
03.06.2015 - 14:02
Loredana skrifaði:
Buona sera! Ho capito che le diminuzioni vanno fatte dopo/prima delle 8 m del bordo,sottolineavo il fatto che si cade in errore facilmente leggendo la spiegazione così descritta. Grazie
21.05.2015 - 19:46
Loredana skrifaði:
Grazie! Ma scrivere diminuire 1m all'interno delle 8m del bordo significa fare 1 diminuzione dentro le maglie del bordo!
21.05.2015 - 11:26DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana, le diminuzioni vanno fatte prima/dopo le 8 m del bordo, che rimangono costanti. Buon lavoro!
21.05.2015 - 13:39
Loredana skrifaði:
Buongiorno,vorrei scusarmi per l'insistenza ma non capisco...diminuire 1 m per lo scollo all’interno delle 8 m del bordo (quindi le maglie del bordo diventano 7); diminuire ogni 4 ferri in tutto 3-4-4-5-4-5 volte – aggiustare il motivo man mano che si procede con il lavoro. Lavorare ora le 8 m per il bordo davanti a punto legaccio e a ferri accorciati. Questo non mi e' chiaro....se diminuisco 1m all'interno delle 8m del bordo come fanno ad essere sempre 8! Grazie Loredana.
21.05.2015 - 10:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Le m del bordo restano sempre 8. Quindi lavora le 8 m del bordo e poi diminuisce 1 m; ogni volta che diminuisce, ci sarà 1 m in meno nel diagramma, ma sempre 8 m sul bordo. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
21.05.2015 - 10:52
Maja#majacardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 160-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca 22, 32 og 42 cm í öllum stærðum. Gerið hnappagötin með því að prjóna 4. og 5. l slétt saman frá réttu og sláið síðan uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 177-193-209-225-241-257 l (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Air. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1 þannig: 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 er endurtekið þar til 9 l eru eftir, 1 l sléttprjón og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 137-149-161-173-185-197 l. Prjónið nú eftir mynstri A.2 yfir A.1. Þegar mynstrið hefur verið prjónað alls 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 4 umf garðaprjón JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 2 l jafnt yfir í umf = 139-151-163-175-187-199 l. Prjónið nú eftir mynstri A.3 og A.4 þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 er endurtekið þar til 11 l eru eftir, prjónið A.4 og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.3 og A.4 alls 2 sinnum á hæðina. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.5-A.7 þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5 yfir 4 l, A.6 er endurtekið þar til 13 l eru eftir, A.7 yfir 5 l og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH! Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, í hægri kanti að framan. Prjónið mynstur 1 sinni á hæðina. Prjónið 4 umf garðaprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l jafnt yfir í umf = 137-149-161-173-185-197 l. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.2 þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 er endurtekið þar til 9 l eru eftir, 1 l sléttprjón og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið mynstur alls 3 sinnum á hæðina. Prjónið 4 umf garðaprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 4-10-4-10-4-10 l jafnt yfir í umf = 133-139-157-163--181-187 l. Prjónið síðan A.3-A.4 eins og áður – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-52-53-55-57-60 cm skiptist stykkið þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið eftir mynstri yfir 26-28-32-34-38-40 l, fellið af næstu 6 l, prjónið eftir mynstri yfir 53-55-65-67-77-79 l, fellið af 6 l og prjónið eftir mynstri yfir 26-28-32-34-38-40 l og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið nú hvert stykki til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 53-55-65-67-77-79 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 2 l 0-1-1-2-4-4 sinnum og 1 l 3-2-4-3-4-4 sinnum = 47-47-53-53-53-55 l – ATH: l sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-62-66-68 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina, prjónið 4 umf slétt. Prjónið síðan A.5-A.7 1 sinni á hæðina. Eftir A.5-A.7 er prjónað sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 68-70-72-75-78-81 cm fellið af miðju 11-11-13-13-13-13 l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 l í næstu umf við hálsmál = 17-17-19-19-19-20 l eftir á hvorri öxl. Þegar stykkið mælist 69-71-73-76-79-82 cm prjónið 2 umf garðaprjón áður en fellt er af. Stykkið mælist 70-72-74-77-80-83 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 34-36-40-42-46-50 l. Prjónið og fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Prjónið áfram eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 58-60-62-62-66-68 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu af A.3-A.4 á hæðina. Prjónið 4 umf slétt JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 3 l jafnt yfir. Prjónið áfram eftir A.5-A.7 – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l fyrir hálsmál innan við 8 kantlykkjur, fækkið um 4 l alls 3-4-4-5-4-5 sinnum – stillið af við mynstur að neðan. Þegar A.5-A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni til loka. Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umf og á bakstykki = 25-25-27-27-27-28 l. Þegar stykkið mælist 69-71-73-76-79-82 cm er prjónuð 1 umf yfir allar l. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 17-17-19-19-19-20 l við öxl og prjónuð út umf. Prjónið nú garðaprjón yfir 8 kantlykkjur að framan með stuttum umferðum með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið sl yfir 4 l, snúið við og prjónið sl til baka. Prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið sl til baka. * Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá öxl (mælt frá stuttu hliðinni í kanti að framan) og fellið síðan laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34-36-40-42-46-50 l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt – ATH: Passið upp á að mynstrið verði eins í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 69-71-73-76-79-82 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 17-17-19-19-19-20 l, prjónið út umf og prjónið síðan stuttar umf með byrjun frá röngu þannig: * Prjónið sl yfir 4 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið til baka. * Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá öxl (mælt frá stuttu hliðinni á kanti að framan) og fellið laust af. ERMI: Fitjið laust upp 26-26-29-29-32-32 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Air. Prjónið 4 umf garðaprjón (1. umf = rétta). Prjónið nú A.3 þannig: 1 kantlykkja, A.3 yfir 24-24-27-27-30-30 l og 1 kantlykkja. Haldið áfram með mynstur svona þar til stykkið mælist ca 17 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Prjónið 4 umf garðaprjón (1. umf = rétta). Prjónið síðan A.5-A.7 þannig: 1 kantlykkja, 2-2-0-0-2-2 l sléttprjón, A.5 yfir 4 l, A.6 er endurtekið 2-2-3-3-3-3 sinnum, A.7 yfir 5 l, 1-1-0-0-1-1 l sléttprjón og 1 kantlykkja JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-11-13-13-14 sinnum = 46-48-51-55-58-60 l (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri). Þegar A.5-A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað eftir mynstri A.2 alls 4 sinnum á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón til loka. Þegar stykkið mælist 49-47-47-45-44-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 2-1-1-1-1 sinnum og 1 l 2-6-5-6-7-8 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-57-56-56-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið síðan ermasauma. Saumið tölur í. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan og saumið síðan niður kant við hálsmál að aftan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #majacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.