DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS BabyAlpaca Silk yarn
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Timeless Beauty

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS BabyMerino með hringlaga berustykki, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 160-7

#timelessbeautysweater

DROPS Design: Mynstur nr bs-081
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 1306, púður

Eða notið:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
300-350-400-400-450-500 gr litur nr 44, púður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni, eða 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.9.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónið ofan frá og niður, í hring á hringprjóna. Byrjun umf = miðja að aftan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 120-128-144-148-148-164 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið MYNSTUR A.1, JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 18-20-30-32-32-34 l jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og í umf 11 er aukið út um 15-19-29-29-29-33 l jafnt yfir = 153-167-203-209-209-231 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í garðaprjóni og 10 prjónamerki sett í stykkið þannig:
Prjónið fyrstu 9-12-12-15-15-12 l, setjið eitt prjónamerki, setjið síðan prjónamerki með 15-16-20-20-20-23 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 9-11-11-14-14-12 l. Í næstu umf byrjar útaukning. Aukið er út til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin (= 10 útaukningar). Aukið út í annarri hverri umf 0-2-0-3-7-7 sinnum, í 4. hverri umf 10-10-9-9-8-8 sinnum og í 6. hverri umf 5-5-7-7-7-8 sinnum = 303-337-363-399-429-461 l. Í næstu umf er aukið út um 8-4-10-2-4-10 l jafnt yfir = 311-341-373-401-433-471 l. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 45-50-55-60-66-74 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið næstu 89-97-111-121-133-147 l (= framstykki), setjið næstu 66-72-76-80-84-88 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-10-12-12-12 l undir ermi, prjónið þær 45-50-55-60-66-74 l sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 199-217-241-265-289-319 l fyrir fram- og bakstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú þannig: A.2, A.3 þar til 6 l eru eftir, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með A.5 (í umf 7 eru prjónaðar síðustu l í umf slétt). Prjónið nú A.6, JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 204-216-240-264-288-324 l. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.7 1 sinni á hæðina. Prjónið nú A.8, aukið út um 4-8-8-8-8-4 l jafnt yfir í 1. umf = 208-224-248-272-296-328 l. Þegar allt A.X hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.X 0-0-0-0-1-1 sinni til viðbótar áður en haldið er áfram með afganginn af A.8. Haldið nú áfram með A.7. Prjónið nú þannig: A.2, A.3 þar til 6 l eru eftir í umf, JAFNFRAMT er aukið út um 3-5-5-5-5-3 l jafnt yfir í 1. umf (yfir A.3), A.4 = 211-229-253-277-301-331 l. Prjónið nú A.7 0-0-1-1-0-0 sinni á hæðina (í umf 5 er síðasta l í umf prjónuð slétt). Þegar allt mynstrið hefur verið prjónað eru prjónaðar 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 17-21-23-25-25-27 l jafnt yfir = 228-250-276-302-326-358 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið af til skiptis 1 l sl og 1 l br. Stykkið mælist nú ca 54-55-58-59-65-66 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð með GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, á hringprjóna. Nú eru 66-72-76-80-84-88 l fyrir hvora ermi. NÚ ER MÆLT HÉÐAN! Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 2,5 og fitjið upp 6-6-6-7-7-7 l lok 2 næstu umf = 78-84-88-94-98-102 l. Þegar ermin mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku með 1½-2-2½-3-3½-3½ cm millibili 7-6-5-4-3-3 sinnum til viðbótar = 62-70-76-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 19 cm í öllum stærðum er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.9 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

sl = sl
br = br
sláið uppá prjónin, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn = sláið uppá prjónin, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
útaukning: Aukið er út jafnt yfir - sjá útskýringu í uppskrift = útaukning: Aukið er út jafnt yfir - sjá útskýringu í uppskrift
Diagram for DROPS 160-7
Diagram for DROPS 160-7
Diagram for DROPS 160-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Deb skrifaði:

Buongiorno, vorrei lavorare questo modello con una alzata sul dietro, come posso procedere? grazie mille!

28.05.2019 - 16:11

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Deb. Dovrebbe lavorare qualche ferro accorciato sul dietro, nei primi giri. Può provare a vedere se c'è qualche altro modello simile che preveda già un'alzata (per esempio questo modello), oppure chiedere aiuto al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

28.05.2019 - 16:44

country flag Barbara skrifaði:

Salve sono arrivata al davanti e dietro con 241 maglie che non sono divisibili per 19 quindi devo lavorare i diagrammi A2A3 poi A2 A3 per tutto il giro e solamente nelle ultime maglie 7 e non 6 il diagramma A4 . Grazie per l a risposta

02.04.2019 - 07:05

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Barbara. Lavora il diagramma A2 (7 maglie), poi ripete il diagramma A3 38 volte (quindi sulle 38 x 6 = 228 maglie successive) e il diagramma A3 sulle ultime 6 maglie. In tutto 7 + 228 +6 = 241 maglie. Buon lavoro!

02.04.2019 - 08:32

country flag Ina skrifaði:

Would it mess up the sweater to do it in Stockinette? I am not a fan of garter stitch

08.01.2019 - 00:17

DROPS Design svaraði:

Dear Ina, the number of rows worked in stockinette is different than when worked in garter stitch, so that the garter stitch part in this pattern would have to be completely adjusted to stockinette. Happy knitting!

08.01.2019 - 09:26

Vicki skrifaði:

I am having problem to knit the row 3 with A.2, A.3. Could you please show me how with a tutorial video?

12.07.2018 - 04:45

DROPS Design svaraði:

Dear Vicky, this video below shows (from another pattern but stil same diagram) how to work A.2, A.3 and A.4. Happy knitting!

12.07.2018 - 09:15

country flag Annette Grosse skrifaði:

Hallo und herzliche Grüße, Kann ich die Ärmel auch in Runden stricken? Ich nähe nicht so gut, leider.

04.07.2018 - 14:08

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Grosse, die Ärmel sind hier in hin- und Rückreihen gestrickt, damit die Krausrippe einfacher zu stricken werden (= alle Reihen rechts). Gerne können Sie in die Runde stricken, aber nicht vergessen das Muster anzupassen (= 1 Rd re, 1 Rd li = 1 Krausrippe). Viel Spaß beim stricken!

04.07.2018 - 16:39

country flag Claudia Wolf skrifaði:

Liebes drops team! Vielen Dank für die rasche Antwort! Eine Frage hätte ich aber noch. Bei der Beschreibung für die Passe sind 209 Maschen angegeben nach den Zunahmen wobei dann zehn Markierer gesetzt werden sollen nach 15 jeweils 20 Maschen und zum Schluss 14 Maschen wenn ich das alles zusammen zähle und zehn Markierer gesetzt habe, sind es aber weniger als 209 Maschen nämlich nur 189 Maschen. wie werden die markiere dann gesetzt?

21.06.2018 - 18:54

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Wolf, der 1. Markierer wird nach den ersten 15 M eingesetzt, dann stricken Sie 20 M zwischen jeden den nächsten 9 Markierer, nach dm letzten Markierer sind es noch 14 M, so haben Sie: 15 M + (20 M x 9) + 14 M = 209 M. Viel Spaß beim stricken!

22.06.2018 - 08:02

country flag Claudia Wolf skrifaði:

Liebes Drops Team! ich habe ein anderes Garn und meine Maschenprobe hat für 10 cm 28 Maschen und 30 Reihen. Muss ich dann einfach die nächste Größe nehmen ? wie kann ich das umrechnen??? Liebe Grüße Claudia Wolf

21.06.2018 - 13:33

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Wolf, dieses Modell wurde für eine Maschenprobe von 24 M x 32 R geschrieben, wir können leider nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, aber gerne können Sie Hilfe von dem Laden bekommen, wo Sie Ihre Wolle bestellt haben. Oder Sie können auch ein Modell mit 28 M als Maschenprobe aussuchen. Viel Spaß beim stricken!

21.06.2018 - 15:42

country flag Paula skrifaði:

Diky Hanko, u vroubku je to jasny. Problem mam u vyraznejsich vzoru, jako treba 9.radek vzoru A1.

19.03.2018 - 19:59

country flag Paula skrifaði:

Dobrý den, muzete mi prosim poradit, jak ukoncovat kruhove rady, aby to na zadech nebylo videt? dekuji.

19.03.2018 - 14:13

DROPS Design svaraði:

Dobrý den, Paulo, kruhové řady nikjak neukončujete - pletete stále dál v kruho, resp. ve spirále. Podívejte se na naši video-ukázku

Jak plést vroubkový vzor v kruhových řadách na kruhové jehlici Hodně zdaru! Hana

19.03.2018 - 18:38

country flag Anne-Christine skrifaði:

Bonjour : pour le motif du bas des manches, comme celles-ci se tricotent en allers-retours, comment doit-on lire le diagramme 9 ? est ce que les points noirs (mailles à l'envers sur l'endroit quand on tricote en rond) doivent se tricoter de même??

25.02.2018 - 02:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Anne-Christine, les diagrammes présentent les diagrammes comme on les voit sur l'endroit, si vous tricotez A.9 en rond, il faudra alors tricoter à l'envers au 2ème tour (= points noirs) sur l'endroit (au lieu de tricoter à l'endroit sur l'envers). Bon tricot!

26.02.2018 - 09:15