Regine skrifaði:
Sehr apparte Farbe. Dazu noch das Jäckchen bs-078 ist ja wohl klar.
06.01.2015 - 20:44
Elisabet skrifaði:
Underbar tröja - denna måste ni ha med!
06.01.2015 - 09:57
Cosmao skrifaði:
Ce modèle est mon coup de cœur, j'ai envie de le réaliser tout de suite. L'encolure est parfaite, les emmanchures comme j'aime et le motif dentelle très féminin me donne envie de faire des prouesses au tricot.
04.01.2015 - 16:01
Katrin skrifaði:
Diese Anleitung brauche ich ganz schnell, denn das Garn habe ich schon zu Hause liegen!
01.01.2015 - 19:41
Odile skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle avec un bas en dentelle et un joli col bateau.
22.12.2014 - 21:39
Corinne skrifaði:
Modèle féminin et raffiné! J'adore!
20.12.2014 - 11:01
Kauer B. skrifaði:
Ein wunderschönes Modell. Freue mich schon auf die Anleitung.
18.12.2014 - 18:14
Yvonne skrifaði:
Elégant modèle aux détails raffinés : raglan ajouré et dentelle. A avoir absolument dans sa garde robe !
14.12.2014 - 18:34
Daniela Massari skrifaði:
Raffinato
11.12.2014 - 23:24
Josette skrifaði:
Belle collection, enfin des pulls à emmanchures raglan, c'est super
11.12.2014 - 22:17
Juliana#julianasweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7 með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-22 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Passið uppá að mynstrið komið yfir hvert annað eins og í A.1. ÚTAUKNING: Prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn að framan) til að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA: Fækkið um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki. FÆKKIÐ LYKKJUM Í 4. HVERRI UMFERÐ ÞANNIG: Einungis er lykkjum fækkað í 1. umf en til þess að gatamynstrið haldi áfram þá eru útskýrðar allar 4 umferðirnar. UMFERÐ 1: Byrjið á 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3: Byrjið 4 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 ls l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2. FELLIÐ AF Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ ÞANNIG: UMFERÐ 1: Byrjið 5 l á undan hverju prjónamerki og prjónið þannig: 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin slétt, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 1 l snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l snúnar slétt saman. UMFERÐ 2: Prjónið br yfir allar l, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1: Prjónið br. UMFERÐ 2: Prjónið sl. UMFERÐ 3: Prjónið sl. UMFERÐ 4: Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp, í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-252-266-294-322-350 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar l. Prjónið A.1 (= 14 l) alls 16-18-19-21-23-25 sinnum á breiddina. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 192-216-228-252-276-300 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf er fækkað um 16-16-12-12-12-12 jafnt yfir = 176-200-216-240-264-288 l. Stykkið mælist nú ca 21-21-21-21-24-24 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, síðan 1 prjónamerki eftir 88-100-108-120-132-144 l. Nú eru 88-100-108-120-132-144 l á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-28-28 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 1-2-1-1-1-1 cm millibili 4-2-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 196-212-236-260-284-308 l. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 6 l, prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki á hlið, fellið af næstu 12 l, prjónið þar til 6 l eru eftir, fellið af síðustu 6 l. Klippið frá og festið enda. Nú eru 86-94-106-118-130-142 l á bakstykki og framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-46-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað sl og aukið út um 2-2-6-4-4-2 l jafnt yfir = 48-48-56-56-60-60 l. Prjónið nú A.4 (= 12-12-14-14-12-12 l) alls 4-4-4-4-5-5 sinnum á breiddina. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 7-6-8-8-8-7 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= miðja undir ermi). Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili 13-16-14-17-17-19 sinnum til viðbótar = 76-82-86-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-47-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 12 l undir ermi = 64-70-74-80-84-88 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 300-328-360-396-428-460 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan þannig: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 7-5-3-0-0-0 sinnum, síðan í annarri hverri umf 8-14-20-27-29-30 sinnum. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 180-176-176-180-196-220 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br, 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 36-32-28-32-44-68 l jafnt yfir = 144-144-148-148-152-152 l. Prjónið nú MYNSTUR -1 – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið síðan laust af allar l. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #julianasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.