DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Muskat yarn
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 159-29

#angelasweater

DROPS Design: Mynstur nr r-669
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 07, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni eða 24 l og 28 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 184-200-216-240-264-288 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun umf og eitt eftir 92-100-108-120-132-144 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 7-7-8-8-9-9 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm fellið af 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= 8 l í hvorri hlið). Nú eru 76-84-92-104-116-128 l á bakstykki og á framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú þannig: 5-6-7-8-9-10 l br, A.1 (=21 l) 2 sinnum, prjónið 4 fyrstu l í A.1, 5-6-7-8-9-10 l br. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út um 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 86-90-94-98-102-106 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Þegar stykkið mælist 52-52-51-51-50-50 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkin = 78-82-86-90-94-98 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 308-332-356-388-420-452 l. Setjið inn 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynstur og br eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-21-22-22-23-24 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 3-4-5-7-8-9 sinnum, síðasta skiptið sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu er fækkað um 8 l jafnt yfir í A.1 á hvorri ermi. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 108-116-124-140-156-172 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á stuttan hringprjón nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-14-18-28-40-52 l jafnt yfir = 100-102-106-112-116-120 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

sl = sl
br = br
3 l slétt saman = 3 l slétt saman
3 l snúnar slétt saman = 3 l snúnar slétt saman
sláið uppá prjóninn á milli 2 l = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
Diagram for DROPS 159-29
Diagram for DROPS 159-29

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag A De Groot-Posset skrifaði:

Het patroon klopt hoor. Zelf een reken fout gemaakt. Vriendelijke groet Atty

23.09.2016 - 20:33

country flag A De Groot-Posset skrifaði:

Hallo, ik brei momenteel de pas van deze trui. Heb 388 steken op de pen. Lees 23 keer minderen om de naald = 92 steken daarna elke naald 7 × minderen = 28 steken. Elke mouw 8 steken minderen = 16. Ik hou nu 252 steken over, maar op het patroon staat dat ik nog 140 steken over heb. Er staat minder 2 steken in elke overgang tussen lijf en mouwen maar met het voorbeeld minderen doe ik maar 1 steek. Wat doe ik verkeerd? Vriendelijke groet Atty

22.09.2016 - 13:12

DROPS Design svaraði:

Hoi Atty. Je begint met 388 st. Je mindert 23 keer 8 steken (184) en 7 keer 8 steken (56) = 240 in totaal. Daarbij minder je in de laatste nld ook 8 st gelijkmatig (248): 388-248 = 140 st over

28.09.2016 - 14:24

country flag Schleicher, Ines skrifaði:

Hallo, ich stricke gerade die Ärmel von den Pullover. So ist alles gut, aber wie nehme ich 2 Maschen hintereinander zu ohne das ein Loch entsteht? Verschränkt aus dem Querfaden und da schaut mich ein Loch an. 😢 MfG I. Schleicher

11.07.2016 - 13:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Schleicher, Sie nehmen die Maschen nicht aus dem gleichen Querfaden auf, sondern Sie können die 1. M aus der Masche vor dem Markierer zunehmen und die 2. Masche aus der Masche nach dem Markierer.

11.07.2016 - 16:37

Vicki skrifaði:

The materials required is off. My gauge is good and I'm making the smallest size. The measurements match but I've used 4 balls to knit the body to the underarms and just over 2 balls for a sleeve. After I do the 2nd sleeve I will have used more than 8 balls which leaves less than 1 ball to do the yoke. Plus the distributor where I puchased the muskat yarn has no stock and they say it's hard to get and they don't know when they will get more. What do you suggest?

17.03.2016 - 22:24

DROPS Design svaraði:

Dear Vicki, please click here for the list of DROPS retailers shipping worldwide - or choose your country at the top left of this page. Happy knitting!

21.03.2016 - 08:20

country flag Suzanne Jacobs skrifaði:

Ik brei deze trui niet met een rondnaald. Kun je mij helpen met het aantal minderingen voor de raglan aan voor en achtkant? hoeveel steken dienen afgezet te worden aan de bovenkant van de mouw en aan de voor- en achterkant? Hoe moet de mindering aan de hals- en nek gebeuren, en vanaf welke hoogte. Hiervan vind ik niet direct iets terug in uw beschrijving.

18.01.2016 - 11:20

DROPS Design svaraði:

Hoi Suzanne. In het patroon staat alle afmetingen (voor de trui: Kant bij een hoogte van 31-32-33-34-35-36 cm 4 st af aan elke kant van elke markeerder voor de armsgaten (= 8 st aan elke zijkant). Er zijn 76-84-92-104-116-128 st op het achterpand en voorpand.) voor de mouw: Kant bij een hoogte van 52-52-51-51-50-50 cm (LET OP! Minder cm voor de grotere maten, want deze hebben bredere schouders) 4 st af aan elke kant van de markeerder = 78-82-86-90-94-98 st. Laat het werk rusten en brei nog een mouw. En onder PAS staat hoeveel en hoe vaak je moet minderen voor de raglan.

19.01.2016 - 14:59

country flag Uta skrifaði:

Ein sehr schönes Modell. Größenangaben/Maschenzahl usw. stimmen. Die Ärmel habe ich allerdings nur mit einem Mustersatz und nicht mit dem Nadelspiel gestrickt. Die wenigen Maschen und dann noch das Muster war mir zu umständlich, dann lieber eine Naht. Beim Muster sollte man sich notieren, an welcher Stelle des Mustersatzes man die Arbeit abends aus der Hand legt, um am Morgen noch zu wissen, wo es weiter geht. Aber es lohnt sich.

10.11.2015 - 13:01

DROPS Design skrifaði:

There is now a video showing how to work diagram A.1. Happy knitting!

06.11.2015 - 12:51

country flag Cynthia Nagle skrifaði:

Any chance you have the diagram written out

15.10.2015 - 03:27

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Nagle, please find here some informations about how to read diagram, for any individual assistance you are welcome to request help from your DROPS store.

15.10.2015 - 09:01

country flag Leisibach Theres skrifaði:

Mustereinteilung beim Ärmel. Anschlag 60M. 7M links 2xMuster A =42 M, Plus 2x7 links am Anfang und Ende das sind 56M. Was mache ich mit den verbliebenen 4 M?

03.05.2015 - 16:02

DROPS Design svaraði:

Sie stricken nach den 2x A.1 noch einmal die ersten 4 M von A.1, wie in der Anleitung beschrieben, für Ihre Größe also: 7 M li, Muster A.1 (= 21 M) 2 x, die ersten 4 M von A.1, 7 M li = 60 M.

04.05.2015 - 22:01

country flag D. skrifaði:

Habe diesen pullover in schwarz gestrickt und er ist sehr toll geworden, ganz edel. die probleme mit den ärmeln hatte ich nicht, sie passen genau.

27.04.2015 - 19:28