DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 159-28
DROPS Design: Mynstur nr r-670
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 07, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni eða 24 l og 28 umf með mynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkað er um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 8, 15, 22, 29, 36 og 44 cm.
STÆRÐ M: 8, 15, 22, 30, 38 og 46 cm.
STÆRÐ L: 8, 16, 24, 32, 40 og 48 cm.
STÆRÐ XL: 8, 16, 24, 32, 41 og 50 cm.
STÆRÐ XXL: 8, 16, 25, 34, 43 og 52 cm.
STÆRÐ XXXL: 9,18, 27, 36, 45 og 54 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 194-210-226-250-274-298 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 51-55-59-65-71-77 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 92-100-108-120-132-144 l). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 7-7-8-8-9-9 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 178-194-210-234-258-282 l. Þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 76-84-92-104-116-128 l á bakstykki og 43-47-51-57-63-69 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú þannig: 5-6-7-8-9-10 l br, A.1 (=21 l) 2 sinnum, prjónið 4 fyrstu l í A.1, 5-6-7-8-9-10 l br. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út um 3-2 ½-2½-2-2-2 cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 86-90-94-98-102-106 l. Útauknu l eru prjónaðar brugðið. Þegar stykkið mælist 52-52-51-51-50-50 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkin = 78-82-86-90-94-98 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 318-342-366-398-430-462 l. Setjið inn 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynsturs og br eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-21-22-22-23-24 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 3-4-5-7-8-9 sinnum, síðasta skiptið sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu er fækkað um 8 l jafnt yfir í A.1 á hvorri ermi. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 118-126-134-150-166-182 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á stuttan hringprjón nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-14-18-28-40-52 l jafnt yfir = 100-112-116-122-126-130 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.09.2016
PEYSA:..Þegar stykkið mælist 6 cm er felld af 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 7-7-8-8-9-9 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 178-194-210-234-258-282 l.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 3 l slétt saman
symbols = 3 l snúnar slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Patty Walk wrote:

I am still working on the sleeve to the Angela Cardigan. I am doing the increases every 7/8 inches and am working my way up to 90 stitches. As the purled stitches increase, more of the under side of the sleeve is becoming purled. It looks as though about half of the sleeve is being purled. I'm concerned that too much of the total sleeve will be purled by the time I get to 90 stitches. Is it going to look alright?

28.04.2023 - 18:41

DROPS Design answered:

Dear Patty, it's correct; out of the 90 stitches in the sleeve only 42+4 = 46 are worked according to A.1; the rest are purled, according to the reverse stocking stitch, which makes the lace pattern more visible and pretty. Happy knitting!

30.04.2023 - 19:46

country flag Patty Walk wrote:

I am working on the sleeves of this beautiful sweater and have a question. I am doing the sleeve in the round. It appears that the round begins with 6 purl stitches and ends with 6 purl stitches. This puts 12 purl stitches together on an otherwise busy pattern from the diagram. Am I doing this correctly?

19.04.2023 - 10:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Walk, yes that's correct, the sleeves are worked in reversed stocking stitch (purling all rounds) with A.1 mid on upper sleeve. The new stitches increased on mid under sleeve should also be purled. Happy knitting!

19.04.2023 - 13:04

country flag Patty Walk wrote:

How do you knit 3 twisted together? The video that is suggested to watch says "this video does not exist". Please help!

18.04.2023 - 09:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Walk, weird, it should work, please check this video here - time code approx. 0:40 for the K3 twisted together. Happy knitting!

18.04.2023 - 10:14

country flag Annette Van Helvoirt wrote:

Graag zou ik willen weten of dit truitje/vestje te breien is op gewone naalden met knop. Ivm een beperking aan mijn linker arm lukt het me niet meer om met rondbreinaalden/,breinaalden zonder knop te breien. Zo, ja, hoe kan ik dat dan doen als ik de voor en achterpanden apart breien de mouwen later dicht naai? Ik brei met 1 naald in een breiblok. En maak dan maat m.

01.11.2021 - 15:34

DROPS Design answered:

Dag Annette,

De reden dat er op de rondbreinaald gebreid wordt is omdat je anders op een gegeven moment heel veel steken op de naald hebt staan en dat wordt nogal proppen. Als je de mouwen en het lijf samen op de naald hebt staan heb je namelijk 318-342-366-398-430-462 steken. Dat past gewoon niet op rechte naalden.

02.11.2021 - 17:28

country flag Natasia wrote:

Hvordan skal indtagning til raglan foregå? (Jeg strikker S, så 318m til 118m) Skal der tages ind hver 2.p 21 gange i alt, derefter hver p 3 gange, og så 8m jævnt over begge ærmer (4m hver)? Eller er det hver 2.p 20 gange i alt, efterfulgt af hver p 3 gange og så 8m jævnt fordelt ind på hvert ærme (2×8)?

29.08.2020 - 16:34

DROPS Design answered:

Hej Natasia, Det stemmer du tager ind på hver 2.p 21 gange, på hver p 3 gange + 8 masker jævnt fordelt = ialt 200 indtagninger. God fornøjelse!

02.09.2020 - 14:26

country flag Angela wrote:

Hi. How does one knit 3 twisted together? I can't find a video that demonstrates how to do so.

22.05.2020 - 08:50

DROPS Design answered:

Dear Angela, this video shows how to knit 3 sts together/twisted together - find more videos related to this pattern here. Happy knitting!

22.05.2020 - 10:09

country flag Riitta Hyvärinen wrote:

Ajattelin neuloa ko. takin baby merino -langasta. Olen kokoa 38.Miten huomioin koon ja langan määrän? yst. terv. RiittaH

09.07.2018 - 10:12

DROPS Design answered:

Hei, Baby Merino -lanka on Muskat-lankaa ohuempi lanka, joten neuletiheys ei ole sama. Suosittelemme, että käytät tähän malliin lankaryhmään B kuuluvaa lankaa, jotta saisit siistin lopputuloksen. Kun korvaat tietyn langan toisella langalla on tärkeää, että lasket lankojen metrimäärän, jotta saat kerralla ostettua oikean määrän lankaa.

09.07.2018 - 17:45

country flag Carolina wrote:

Hej! Tack för ett fint mönster! Jag är nu på oket när man sätter i ärmarna på samma sticka som fram-och bakstycke, men förstår inte hur jag ska kunna fortsätta med mönstret över ärmarna då ena varvet blir avigt eftersom koftan stickas fram och tillbaka på stickan. Ska jag sticka mönstret från det aviga varvet och hur löser jag det? Tacksam för svar!

06.09.2017 - 00:13

DROPS Design answered:

Hej Carolina, nej du måste se till at sätta ihop arbetet så du stickar mönservarvet på rätsidan och diagrammet stickas då X=rm från avigsidan och tom ruta = am från avigsidan. Lycka till!

07.09.2017 - 09:05

country flag Nicole wrote:

Bojour Pour le raglan Vous dites de diminuer trois. Maille avant donc ont commence les diminution à la 6em maille sinon ça me fait un trous entre les marqueur meci de vos aides

23.01.2017 - 15:42

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, on commence à diminuer 3 m avant le marqueur comme expliqué ci-dessous et dans la vidéo, on va avoir: 1 diminution, 1 m, le marqueur, 1 m, 1 diminution. et ce, à chaque raglan. Bon tricot!

23.01.2017 - 15:45

country flag Nicole wrote:

, Bonjour je ne comprends pas les explications du raglan pouvez-vous m'aider sinon vous explication y a-t-il des 3 mailles tricoter de chaque côté du marqueur il faut t-il faire les diminutions avant Ces3 maile, merci de votre aide

23.01.2017 - 15:35

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, on diminue pour le raglan de chaque côté des 2 m du raglan (le marqueur se trouve entre ces 2 m), commencez 3 m avant le marqueur et tricotez 2 m ens à l'end, tricotez les 2 m end suivantes (le marqueur sera entre ces 2 m) et diminuez ensuite 1 m (1 m glissée, 1 m tricotée, maille glissée par-dessus la m tricotée) = vous avez diminué ainsi 1 m de chaque côté de chaque raglan = 2 m au raglan - cf également vidéo. Bon tricot!

23.01.2017 - 15:43