Gabriele skrifaði:
Super!!!!
06.01.2015 - 14:04
Gabriele skrifaði:
Gefällt mir sehr - bleibt zu hoffen,dass die Anleitung erscheint! Eure Gabriele
06.01.2015 - 13:56
Corrine skrifaði:
Wat apart, deze wil ik echt maken
05.01.2015 - 13:08
Beurre skrifaði:
Très belle allure jeudes reayures devant originale j'adore
03.01.2015 - 15:57
Helle Christensen skrifaði:
Superflot model den kunne blive min yndlingstrøje til sommer
19.12.2014 - 22:15
Bettina skrifaði:
Wow - mal was anderes !
18.12.2014 - 13:12
Nonnachiara skrifaði:
Bel modello che valorizza le sfumature del filato
13.12.2014 - 20:59
Nonnachiara skrifaði:
Bel modello che valorizza il filato con le sue sfumature
13.12.2014 - 20:53
Sylvia skrifaði:
Läcker!
12.12.2014 - 12:59
Marion skrifaði:
I love the unusual construction of this jacket. Perfect for stripy yarns such as Delight as it show the different directions of knitting perfectly.
12.12.2014 - 11:17
Deep Sea#deepseacardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Delight í garðaprjóni og fjöláttaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-26 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út með því að prjóna 2 l í fyrstu l, en þegar aukið er út við x er aukið út þannig: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat= fellið af fjórðu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá neðri brún í kanti að framan): Stærð S: 20, 27, 34, 41 og 48 cm. Stærð M: 20, 27, 35, 42 og 50 cm. Stærð L: 20, 27, 35, 42 og 50 cm. Stærð XL: 20, 26, 33, 39, 46 og 52 cm. Stærð XXL: 20, 26, 33, 39, 46 og 52 cm. Stærð XXXL: 20, 27, 34, 41, 48 og 54 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í stykkjum og í mismunandi áttir. Örvar í mynsturteikningu sýna prjónstefnu. Öll peysan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. BAKSTYKKI: Bakstykkið er prjónað í 2 stykkjum og saumað saman við miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki héðan. VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með Delight. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! AUKIÐ ÚT í hverri umf í hvorri hlið Á STYKKI JAFNFRAMT ER LYKKJUM FÆKKAÐ. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf frá réttu (= y- sjá mynsturteikningu) og í byrjun hverrar umf frá röngu (= x) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu við miðju að aftan (= y) þar til stykkið mælist 38 cm í öllum stærðum (mælt meðfram y). Endurtakið útaukningu í kanti að neðan (= x) þar til stykkið mælist 26-28-30-32½-35½-38½ cm mælt meðfram x. ATH! Í stærð XXXL er útaukning við miðju að aftan (= y) lokið á undan útaukningu á kanti að neðan (= x). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚRTAKA Í HLIÐ: Þegar útaukningu í kanti að neðan (= x) er lokið er lykkjum fækkað í hlið (= z) þannig: Fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA – í byrjun á hverri umf frá röngu. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá röngu til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm meðfram z – er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá röngu innan við 4 l (eftir úrtöku). Endurtakið úrtöku með 3½ cm millibili alls 10 sinnum. ÚRTAKA VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN: Þegar útaukning við miðju að aftan (= y) er lokið er fækkað um 1 l í byrjun á næstu umf frá réttu. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf frá réttu þar til 3 l eru eftir. Fellið af. HÆGRA BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. öll úrtaka/útaukning er útskýrð í byrjun umf frá réttu er nú gerð í byrjun umf frá röngu og öfugt. FRÁGANGUR Á BAKSTYKKI: Saumið saman vinstra og hægra bakstykki við miðju að aftan yst í lykkjubogann. BERUSTYKKI AÐ AFTAN: Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni til loka. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverri rönd í garðaprjóni á bakstykki – sjá strikaða línu í mynsturteikningu (eins og á framstykki). Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 96-106-116-128-142-156 l. Fitjið upp 1 l í lok næstu 2 umf (= kantlykkja) = 98-108-118-130-144-158 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti. Fitjið upp 6-2-11-7-13-9 nýjar l í hvorri hlið á ermi. Fitjið nú upp í hvorri hlið í annarri hverri umf: 5 l 7-7-5-5-3-3 sinnum og 12 l 1 sinnum = 204-206-214-218-224-230 l. Þegar stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af miðju 36-38-40-40-42-46 l fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 83-83-86-88-90-91 l á hvorri öxl/ermi. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Handvegurinn mælist nú ca 14-15-17-18-20-21 cm – fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað á ská (eins og hægra bakstykki + kantur að framan), þ.e.a.s. prjónað er þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 3 l + 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið eins og HÆGRA BAKSTYKKI, en aukið út innan við síðustu 7-7-7-7-8-8 l frá röngu (= kantur að framan). ATH! Þegar úrtaka frá réttu byrjar eru þessar 7-7-7-7-8-8 kantlykkjur að framan felldar af. BERUSTYKKI (VINSTRA FRAMSTYKKI): Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Prjónið upp (frá réttu) 1 l í hverja rönd í garðaprjóni og 1 l í hverri kantlykkju að framan í miðju – sjá strikaða línu í mynsturteikningu. Í næstu umf er lykkjufjöldinn jafnaður til 55-61-65-71-79-86 l. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l í hlið (= kantlykkja) = 56-62-66-72-80-87 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 3-4-5-6-7-8 cm frá uppfitjunarkanti. Fitjið upp 6-2-11-7-13-9 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi. Fitjið síðan upp frá hlið í annarri hverri umf: 5 l 7-7-5-5-3-3 sinnum og 12 l 1 sinni = 109-111-114-116-120-123 l. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 11-13-13-15-15-17 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af 18-18-18-18-20-22 l við miðju framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í annarri hverri umf við hálsmál 2 l 4-5-5-5-5-5 sinnum = 83-83-86-88-90-91 l eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af eftir bakstykki. Fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað á ská (eins og vinstra bakstykki + kantur að framan), þ.e.a.s. prjónað er þannig: Fitjið upp 10-10-10-10-11-11 l (= 7-7-7-7-8-8 kantur að framan + 3 l) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið eins og VINSTRA BAKSTYKKI – ATH! Útaukningin er nú eftir fyrstu 7-7-7-7-8-8 l frá réttu (= kantur að framan). Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, á kanti að framan. BERUSTYKKI (HÆGRA FRAMSTYKKI): Prjónið á sama hátt og VINSTRA FRAMSTYKKI, nema spegilmynd – þ.e.a.s. fitjið upp l fyrir ermi í lok umf frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum/saum ofan á ermum, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hliðarsaum og saum undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti á vinstri kant að framan. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu, ca 106-129 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka og fellið síðan laust af með sl frá röngu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deepseacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.