DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6380.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lady Grey

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með röndum, garðaprjóni og dominoferningum. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-25
DROPS Design: Mynstur nr fa-288
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-300-350-400-400-450 gr litur nr 604, yfir hafið
200-200-250-250-250-300 gr litur nr 100, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf garðaprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 522: 5-5-5-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6380.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Prjónið RENDUR þannig:
2 umferðir GARÐAPRJÓN með litnum yfir hafið – sjá útskýringu að ofan - (fyrsta umferð = rétta).
2 umferðir GARÐAPRJÓN með litnum natur – sjá útskýringu að ofan - (fyrsta umferð = rétta)

DOMINOFERNINGUR:
1. UMFERÐ (= ranga): Prjónið slétt.
2. UMFERÐ (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkur fram að lykkju með 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur að 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). ATH: Passið uppá að uppslátturinn verði nægilega laus.
3. UMFERÐ: Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaðar snúinn slétt, það eiga að myndast göt.
4. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 2.
5. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 3.
6. UMFERÐ: Prjónið sléttar lykkjur að 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur að 1 lykkju á undan lykkju með 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur að 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 6 lykkjur fleiri).
7. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 3.
8. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 2.
9. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 3.
10. UMFERÐ: Prjónið eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 10.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VINSTRA FRAMSTYKKI OG VINSTRA BAKSTYKKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Vinstra framstykki og vinstra bakstykki er prjónað í eitt = Stykki-1 í mynsturteikningu, er prjónað fram og til baka í kringum handveg og stykkið vex niður og að miðju að framan og að miðju að aftan eins og örvar í mynsturteikningu sýna – miðja í umferð er hlið á peysu og einnig í miðjum Dominoferningi – axlasaumurinn er saumaður saman í lokin.

BYRJUN Á STYKKI 1:
Fitjið upp 87-91-91-95-99-99 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan – byrjið að prjóna 1. umferð JAFNFRAMT eru sett 3 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Prjónið 42-44-44-46-48-48 sléttar lykkjur og setjið 1. prjónamerki (á milli lykkja), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki mitt í næstu lykkju (þetta verður síðan hlið á peysu), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. prjónamerki (á milli lykkja), prjónið 42-44-44-46-48-48 lykkjur slétt. Prjónamerkin eiga að fylgja með í stykkinu.
Prjónið DOMINOFERNINGUR og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATH: Fyrsta umferðin í dominoferningi er prjónuð með litnum natur (= ranga). Dominoferningurinn er mitt á hlið á peysu og býr til aflíðandi línurnar sem ganga frá ermi og við miðju að framan og við miðju að aftan – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 13-15-17-20-23-27 cm (mælt meðfram öxl inn að hálsmáli) haldið síðan áfram að auka út alveg eins JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir hálsmáli í báðum hliðum á stykki þannig:
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli að framstykki. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af 6 fyrstu lykkjur fyrir hálsmáli að bakstykki. Síðan er lykkjum fækkað við háls að framstykki í byrjun hverrar umferðar frá réttu með því að prjóna fyrstu 2 lykkjur snúnar slétt saman, þessi úrtaka er endurtekin þar til stykkið mælist 18-20-22-24-27-29 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá handveg/uppfitjunarkanti og lárétt að miðju að aftan/framan) – passið uppá að síðasta röndin sé prjónuð með litnum yfir hafið og síðasta umferðin er frá röngu.
Nú skiptist stykkið upp í 4 hluta – prjónið með litnum yfir hafið frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að 1. prjónamerki og setjið þessar lykkjur á þráð (= lykkjur við miðju að framan – héðan kemur kantur að framan í lokin), prjónið sléttar lykkjur fram að 2. prjónamerki og setjið lykkjur á annan þráð (= aflíðandi lykkjur niður að hlið), prjónið sléttar lykkjur fram að 3. prjónamerki og setjið þær á þriðja þráðinn (= aflíðandi lykkjur frá hlið að miðju að aftan), prjónið út umferðina – nú eru lykkjurnar á 3 þráðum og þær lykkjur sem eftir eru, eru á prjóni.
Prjónið síðan áfram rendur yfir þær lykkjur sem eftir eru frá 3. prjónamerki og upp að öxl á bakstykki þar til stykkið mælist 22-24-26-30-33-37 cm frá uppfitjunarkanti (mælt frá handveg/uppfitjunarkanti og lárétt að miðju að aftan), passið uppá að enda með 1 rönd með litnum yfir hafið. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra stykki = Stykki-2 í mynsturteikningu.

FRÁGANGUR:
Saumið saum við miðju að aftan í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki þykkur.

NEÐRI KANTUR Á PEYSU PRJÓNAÐUR SAMAN:
Sjá Stykki-3 í mynsturteikningu – þessi neðri kantur er prjónaður frá hlið frá hægra framstykki yfir bakstykki og í kringum vinstra framstykki jafnframt er það prjónað saman við fram- og bakstykki.
Fitjið upp 52-54-60-66-72-82 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað saman við lykkjur af þræði á milli 3. og 2. prjónamerkis, þ.e.a.s. frá miðju að framan og niður að horni á dominoferningi.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð því það eiga að myndast göt, setjið til baka 2 fyrstu lykkjurnar af þræði á framstykki á prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt saman.
Skiptið yfir í litinn yfir hafið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umferð 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, setjið til baka 2 fyrstu lykkjurnar af þræði á prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt saman.
Skiptið yfir í natur.
Endurtakið umferð 1-8 þar til allar lykkjur af þræði niður að horni eru prjónaðar.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Prjónið síðan stykkið saman við lykkjur frá hægra bakstykki (lykkjur á milli 2. og 1. prjónamerkis, þ.e.a.s. frá horni á dominoferningi og upp).
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 1 lykkja fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 lykkjurnar af þræði á prjóninn og prjónið 3 lykkjur slétt saman.
Skiptið yfir í litinn yfir hafið.
UMFERÐ 3 (= rétta): prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 lykkjurnar frá þræði á prjóninn og prjónið 3 lykkjur slétt saman.
Skiptið yfir í litinn natur.
Endurtakið umferð 1-8 þar til allar lykkjur af þræði og upp að horni hafa verið prjónaðar. Setjið 1 prjónamerki í stykki og HÉÐAN ERN NÚ MÆLT!
Haldið nú áfram að prjóna stuttar umferðir þannig: ATH: Stillið litina af eftir röndum!
Skiptið yfir í litinn yfir hafið.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið slétt.
Skiptið yfir í litinn natur.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umferð 1-8 þar til stykkið mælist 8-8-8-12-12-16 cm þar sem það er styst, stillið málið og rendurnar við miðju aftan á domonoferningnum (þar sem lykkjur voru felldar af), það á síðar að sauma saman við miðju að aftan.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Prjónið síðan stykkið saman með lykkjum af þræði á milli 3. og 2. prjónamerkis, þ.e.a.s. frá miðju að aftan og niður að horni á dominoferningi. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki (neðri kantur).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið síðan stykkið saman með lykkjum frá vinstra framstykki (lykkjur á milli 2. og 1. prjónamerkis, þ.e.a.s. frá horni á dominoferningi og upp). Prjónið eins og hægra bakstykki (neðri kantur).

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Sjá Stykki - 5 í teikningu. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar allar lykkjur á dominoferningnum hafa verið prjónaðar upp eru lykkjur settar af þræði á vinstra framstykki til baka á prjóninn og stykkið er nú prjónað áfram með litnum yfir hafið fyrir kant að framan þannig:
Prjónað er mismunandi eftir stærðum.
STÆRÐ S-M-L:
Peysan á mynd sýnir stærð XL. Nú er stykkið tilbúið til að prjóna kant að framan, prjónið garðaprjón með litnum yfir hafið þar til stykkið mælist 4 cm. Fellið laust af.
STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Peysan á mynd sýnir stærð XL. Haldið áfram að prjóna garðaprjón og rendur á framstykki þar til stykkið er tilbúið til að prjóna kant að framan þannig: Prjónið JAFNFRAMT er haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá réttu með því að prjóna fyrstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku þar til stykkið mælist 4-6-7 cm. Prjónið 4 cm garðaprjón þar fyrir kant að framan með yfir hafið, stykkið mælist alls 8-10-11 cm. Fellið laust af.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Sjá Stykki-4 í mynsturteikningu. Prjónið þetta stykki eins og Vinstri kantur að framan, en nú er fellt af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist 2-2-2-6-8-9 cm. Fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir – eitt HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið (að hálsi) á að vera ca ½ cm frá toppi, síðan er fellt af fyrir hnappagötum með ca 8-8-8-9-9-9 cm millibili. Fellið laust af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Fitjið upp 54-54-56-56-58-58 lykkjur á hringprjóna nr 4 með litnum yfir hafið (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki). Þegar stykkið mælist 6-5-6-8-6-6 cm er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist göt. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili 15-17-16-18-19-19 sinnum til viðbótar = 86-90-90-94-98-98 l. Prjónið þar til stykkið mælist 34-33-32-30-28-27 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), stillið af að síðasta röndin sé með litnum natur. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman neðri kant við vinstra/hægra bakstykki við miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Takið upp 160-180 lykkjur á hringprjóna nr 4 með litnum yfir hafið. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.06.2017
Uppskriftin hefur verið endurskrifuð.

Mynstur

symbols = byrjið hér á neðri kant
symbols = prjónstefna
symbols = þetta er ca mál, málin fara eftir því hversu margar lykkjur hafa verið auknar út á dominoferningnum
symbols = hluti1-11 - sjá uppskrift
symbols = prjónamerki er sett í fyrstu umferð í hluta-1 og hluti-3 merkir útaukningar í dominoferningnum
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (157)

country flag Birgitta Mattsson wrote:

Vad är det för svar?? Läs mönstret? Självklart har jag gjort det, men det blir fel! Jag får inte den ökning av antalet maskor över dominorutan som vare sig bilden eller skissen visar! 48 maskor före dominorutan rakt över alla varv ger inte den diagonala överkanten på dominorutan!

07.12.2020 - 15:42

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, beklager! jeg læste dit spørgsmål som at du var usikker på vinklen og mange ser ikke at vi har en skitse nederst i opskriften. Men jeg kan se på Facebook at du har fundet ud af opskriften. Rigtig god fornøjelse!

08.12.2020 - 08:00

country flag Birgitta wrote:

Jag tycker att det känns som att mönstret är fel. Jag föl jer XXL och har markören efter 48 m, stickar ökningar för dominorutan och sedan de resterande 48 m. Bilden visar en ruta vars överkant går diagonat nedåt och det ser ut som att antalet maskor från axeln ner till rutan hela tiden ökar. Följer jag mönstret får jag inte denna effekt eftersom det alltid är 48m innan/efter rutan. På mitt arbete blir överkanten i 90 grader mot mitt fram/bak??

28.11.2020 - 18:59

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, du ser i skitsen nederst i mönstret hvordan de forskellige stykker skal strikkes og du ser alle vinklerne. God fornøjelse!

07.12.2020 - 11:58

country flag Caroline Pyne wrote:

Thank you for your response, but I don't understand how I incorporate the stitches remaining on the yarn. Are these the stitches I cast on at the beginning? Is there another, more detailed, source I can go to?

26.08.2020 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pyne, cast on the new stitches for edge (= 52 to 82 sts see size), and work part-5 over these stitches + at the end of the 2nd row knit together the last st of edge (on left needle) with the first 2 stitches from domino (on the thread) = K3 tog = 2 sts from domino are now decreased/attached to 1 st of the bottom edge. Work row 3 to 7 (with short rows to make the bottom edge larger at the bottom) and repeat row 2 on row 8 so that the next 2 sts on thread/domino are worked together with the last stitch on bottom edge. Continue like this until all sts to the tip has been worked together with the last stitch on the edge. Happy knitting!

27.08.2020 - 10:06

country flag Caroline Pyne wrote:

I am ready to do the jacket edge. I am completely Confused, after cast on. I know i am supposed to start incorporating the stitches on the yarn at this point, but i do not understand at all. Is there a video or written instructions you can point me to that i will make it easier? I consider myself an advanced knitter And in no way would i class this pattern as "intermediate". But as soon as i get help i will carry on. I love this pattern.

26.08.2020 - 04:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pyne, the bottom edge is worked sideways - see A.1 (from part 5 to 9), this means on part 5 you will repeat the 8 rows until you reach the tip of the domino, then work part-6 repeating the 8 rows of this part until mid back, then work part-7 repeating the 8 rows for 8-16 cm (mid back), then work part-8 etc... at the same time, you will either decrease or increase stitches (depending on the side of domino you are working) and working stitches from the domino together with the sts of the edge to attach the edge. Hope this will help, happy knitting!

26.08.2020 - 08:30

country flag Lena Lindberg wrote:

Jag har precis börjat, och stickat ett antal varv, kanske fem cm på vänster framstycke, när jag inser att jag kanske SAMTIDIGT skulle sticka dominorutan? Eller? Med vilka stickor då? Först har jag trott att jag skall sticka 20cm (XL) med ränder och hålla på med framstycket i lugn och ro, men jag ser inte när dominorutan kommer in . Hur är det tänkt?

13.01.2020 - 19:18

DROPS Design answered:

Hei Lena. Ja, du skal strikke DOMINORUTE samtidig (1. pinne fra vrangen). Les under DEL-1 og DOMINORUTE 1.-10. pinne. Du bruker samme pinner. God Fornøyelse!

10.02.2020 - 10:50

country flag Åsa wrote:

Hej igen! Jag har fuktat, blockat, provat olika stickor med 0.25 millimeters skillnad i storlek men får ändå inte till den kombination av mask- och varvantal som det står i mönstret. Har också låtit några vänner sticka provlappar. Resultatet blir för oss alla att 21 maskor ger 44-45 varv för 10 x 10 cm. Hur kan det bli så stor skillnad från vad som anges i mönstret och är det någon idé att försöka sticka efter det här mönstret då?

22.11.2019 - 21:14

DROPS Design answered:

Hej Åsa, ja du skall följa antal cm i mönstret, så om du får 21 m på 10 cm i bredden , så vill det fungera. Lycka till :)

03.12.2019 - 13:55

country flag Åsa wrote:

För mig blir 10x10 cm 21 maskor men 44 varv och inte 40 som det ska vara enligt beskrivningen. Ändrar jag storlek på stickorna för att få rätt antal varv så blir maskantalet fel. Eftersom man stickar dominorutor är det kanske extra viktigt att både maskantal och varv stämmer. Hur ska jag tänka?

19.11.2019 - 19:10

DROPS Design answered:

Hei Åsa! Har du dampet prøvelappen din? Strikkefastheten kan forandre seg etter man damper arbeidet, om ikke det hjelper kan det hjelpe å stramme tråden mindre mens man strikker. Lykke til!

20.11.2019 - 14:27

country flag Annelie Paulsson wrote:

Hej kan ni förklara i dominorutan. ska omslagen vara före markören eller efter??

30.09.2019 - 20:38

DROPS Design answered:

Hej Annelie, markören sitter mellan maskorna och omslaget skall göras mellan maskorna, det är kanske enklast om du gör dom efter markören....

01.10.2019 - 15:12

country flag Anne-Mette Olsen wrote:

Hej. Jeg forstår ikke at højre forstykke skal strikkes som venstre. Skal indtagninger ikke være spejlvendte? Mvh Anne-Mette

23.06.2019 - 16:55

DROPS Design answered:

Hei Anne-Mette. Du strikker som venstre forstykke til arbeidet måler 13-15-17-20-23-27 cm på det korteste. Du har ikke begynt med fellinger enda. Fellingene til hals er forklart under hvert stykke for seg. God fornøyelse

26.06.2019 - 07:39

country flag Birgit Peters wrote:

Hallo! Ich möchte diese Jacke anfangen, kann mir aber noch nicht vorstellen, wo die Löcher in der Mitte hingehören. Auf den Fotos sind die nirgendwo zu erkennen.

31.05.2019 - 08:42

DROPS Design answered:

Liebe Frau Peters, die Löcher bei dem Domino sind: vor dem Domino (Vorderteil), in der Mitte = Seite und nach dem Domino (Rückenteil). Viel Spaß beim stricken!

31.05.2019 - 10:10