Ann Lauridsen skrifaði:
Forstår ikke de sorte pletter i a6 med flere. De står der bliver -1, i mit bliver der +1
25.12.2014 - 20:23DROPS Design svaraði:
Hei Ann. Hvad mener du med -1? Jeg kan ikke forstaa dit spörgsmaal?
15.01.2015 - 16:47
Joan Steensen skrifaði:
Jeg har skrevet til jer med et spørgsmål og kan altså ikke komme videre vil i ikke være søde og svare
19.11.2014 - 10:24DROPS Design svaraði:
Hej Joan. Vi skal svare saa hurtigt vi kan. I travle perioder kan det desvaerre vare lidt laengere, saa hvis du ikke kan vente, kan du ogsaa spörge i din DROPS butik.
19.11.2014 - 10:49
Joan Steensen skrifaði:
Jeg har et spørgsmål til ryggen jeg har lavet den første sæt af A1og skal nu igang med anden Der står 3m glat A5, 1 r og A 1 videre som før til 7 tilbage så er det jeg ikke forstår 2 p ret 1 r,A2 3m glat det kan jeg ikke få til at passe hjælp tak
17.11.2014 - 09:56DROPS Design svaraði:
Hej Joan. Du skal slutte af med (de 7 masker) 1 m i retstrik (dvs, den skal strikkes ret paa alle pinde), 1 r (bliver vrang paa vrangen = glatstrik), A.2 og 3 masker glat = 7 masker. Jeg skal sörge for at faa det rettet til.
19.11.2014 - 15:09
Petra Coy skrifaði:
Which way are u reading the patterns, in my case the A1 pattern. Bottom to top, left to right etc? Pls let me know. Pls include RSVP and WS. Txs so much
05.10.2014 - 00:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Coy, you will find here all information to how to read diagrams. Happy knitting!
06.10.2014 - 09:10
Petra Coy skrifaði:
Hello! I am so excited to knit this piece though I got stuck right at beginning. How do I read the A1 pattern? On RS from right to left side and also from bottom to top? What about WS? Please let me know.....
04.10.2014 - 19:16
Lorella skrifaði:
E' molto bella! Ha quando le spiegazioni?
10.07.2014 - 19:35Lisete Hartmann skrifaði:
Lindíssimo! A-do-rei!
25.06.2014 - 18:10
Gabriele skrifaði:
Diese Jacke ist wunderschön. Eine erste Vorfreude auf den kommenden Winter!
20.06.2014 - 23:09
Gisela skrifaði:
Tramhaftejacke,werdeichnacharbeiten
19.06.2014 - 17:06
Serpin skrifaði:
J'adore! Ca donne envie de tricoter tout de suite!
18.06.2014 - 11:26
Ripple Tide#rippletidecardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með gatamynstri, garðaprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-40 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.10. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.3 og A.6 passar ekki yfir sjálfa sig á hæðina þegar hún er endurtekin, en gataumferðir halda áfram á ská upp úr eins og áður. MYNSTURTEIKNING A.1: Mynsturteikning A.1 er endurtekin misjafnlega oft á hæðina. Þegar það eru 2 l á milli fyrsta uppsláttar (að A.3/A.6) og í A.1 og A.3/A.6 endar endurtekningin á A.1 á hæðina. Þ.e.a.s. séð frá réttu er A.1 endurtekin við miðju að framan og miðju að aftan alls 6 sinnum á hæðina. Miðju mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 4 sinnum á hæðina. A.1 frá hlið er endurtekin alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað þannig: Þegar A.1 gengur ekki upp í lykkjufjölda þ.e.a.s. á eftir endurtekningum eins og útskýrt er að ofan, prjónið A.9 yfir A.1 á hægra framstykki og hægri hlið á bakstykki (= 3 l mynstureiningar á A.1) og A.10 yfir A.1 á vinstra framstykki og vinstri hlið á bakstykki (= 3 mynstureiningar á A.1). MYNSTUR-1: UMFERÐ 1: sl frá réttu. UMFERÐ 2: br frá röngu Endurtakið umf 1 og 2 4 sinnum til viðbótar (= 10 umf). UMFERÐ 11: sl frá réttu. UMFERÐ 12: sl frá röngu. UMFERÐ 13: sl frá réttu. UMFERÐ 14: br frá röngu. UMFERÐ 15. br frá réttu. UMFERÐ 16: br frá röngu. Endurtakið umf 1 til 16. HNAPPAGAT: Fellið af frá réttu fyrir 6 hnappagötum i hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið 3 l frá miðju að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 10, 18, 30, 38, 50 og 58 cm. STÆRÐ L/XL: 12, 20, 32, 40, 52 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 14, 22, 35, 43, 56 og 64 cm. STÆRÐ XXXL: 13, 22, 35, 44, 57 og 66 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: : Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-103-115-127 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: 3 l sléttprjón, A.1 (= 14-16-18-20 l) alls 6 sinnum – LESIÐ MYNSTUR, 1 l garðaprjón, 3 l sléttprjón. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 97-109-121-133 l. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚTAUKNING ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf á A.1, síðan er prjónað frá réttu þannig: 3 l slétt, A.5, 1 l sl og A.1 síðan eins og áður þar til 7 l eru eftir, 1 l garðaprjón, 1 l sl, A.2, 3 l sléttprjón. Mynsturteikning A.2/A.5 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu, þ.e.a.s. prjónuð er 1 l sem færist til með A.3 og A.6. Snúni uppslátturinn í A.3/A.6 er prjónaður jafnóðum inn í MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón þannig: Aukið út um 1 l í 4. hverri umf 6-9-13-16 sinnum, síðan 1 l í annarri hverri umf 19-13-6-0 sinnum = 147-153-159-165 l. Útauknar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur-1. Þegar útaukningu er lokið eru fitjaðar upp 4 nýjar l í hvorri hlið á stykki fyrir ermi í lok næstu 2 umf = 155-161-167-173 l. Stykkið mælist ca 39-40-42-43 cm. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚRTAKA ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS. MYNSTUR: Þegar 1 l er eftir á milli gataumferðar A.3 og A.6 er prjónað A.8 yfir A.3, A.6 og einsöm l á milli þeirra. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 57-64-70-77 cm. Stykkið er nú prjónað áfram með mynstur-1. ÚRTAKA: Þegar stykkið mælist 61-63-67-69 cm prjónið nú yfir þær 4 l garðaprjón, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf, endurtakið í næstu umf = 147-153-159-165 l. Setjið nú l á þráð fyrir afllíðandi öxl þannig: Prjónið yfir 4 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hvorri hlið á stykki í hverri umf 6-5-4-4 sinnum til viðbótar, prjónið nú yfir 2 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hvorri hlið á stykki í hverri umf 7-9-12-13 sinnum til viðbótar = 48-48-50-52 l af þræði fyrir hvora öxl og 59-65-67-69 l á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 74-77-83-85 cm fellið af miðju 17-17-19-19 l og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l fyrir hálsmáli. Þegar öll úrtaka er lokið eru 20-23-23-24 l eftir á prjóni fyrir hvora öxl. Stykkið mælist ca 76-79-85-88 cm. Klippið frá. ÖXL/ERMI: Setjið til baka allar l frá þræði á prjóninn = 68-71-73-76 l. Svo að öxlin verði ekki of stíf er aukið út frá réttu þannig: Prjónið 20-23-25-28 l sl, * sláið uppá prjóninn, 6 l sl *, endurtakið frá *-* út umf = 76-79-81-84 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 52-58-64-70 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 3 sinnum, 1 l garðaprjón, 3 l sléttprjón. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hlið á stykki í lok umf frá réttu innan við 3 l sléttprjón. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 55-61-67-73 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚTAUKNING ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS. MYNSTUR: Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf á A.1, prjónið síðan frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 eins og áður þar til 7 l eru eftir, 1 l garðaprjón, 1 l sl, A.2, 3 l sléttprjón. Mynsturteikning A.2 færist til um 1 l við miðju að framan í hverri umf frá réttu, þ.e.a.s. prjónuð er 1 l færri af A.1 í annarri hverri umf – sjá MYNSTURTEIKNING A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tilfærslu með A.3. Snúni uppslátturinn í A.3 er prjónaður jafnóðum inn í mynstur-1. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 l frá hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón þannig: Aukið út um 1 l í 4. hverri umf 6-9-13-16 sinnum, síðan 1 l í annarri hverri umf 19-13-6-0 sinnum = 80-83-86-89 l. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur-1. Þegar útaukningu er lokið eru fitjaðar upp 4 nýjar l í hlið fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu = 84-87-90-93 l. Stykkið mælist ca 39-40-42-43 cm. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚRTAKA ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS. MYNSTUR: Þegar stykkið mælist 61-63-67-69 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið yfir 4 l garðaprjón í hlið, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf = 80-83-86-89 l. Í næstu umf frá röngu eru settar nýjar l á þráð fyrir aflíðandi öxl þannig: Prjónið yfir 4 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hverri umf frá röngu 6-5-4-4 sinnum til viðbótar, prjónið síðan yfir 2 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónnið út umf. Endurtakið í hverri umf frá röngu 7-9-12-13 sinnum til viðbótar = 48-48-50-52 l á bandi og 36-39-40-41 l á prjóni. Klippið frá. ÖXL/ERMI: Setjið til baka allar l af þræði á prjóninn = 84-87-90-93 l. Svo að öxlin verði ekki of stíf aukið nú frá réttu þannig: Prjónið 36-39-42-45 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl *, endurtakið frá *-* út umf. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 92-95-98-101 l. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið síðan af 76-79-81-84 l frá hlið laust af = 16-16-17-17 l eftir fyrir sjalkraga. SJALKRAGI: Prjónið frá miðju að framan: * 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir fyrstu 12-12-13-13 l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-8-9-9 cm mælt næst öxl. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Prjónið A.5-A.7 í stað A.2-A.4. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum. Fitjið upp 4 l í lok umf frá röngu. Öxl/ermi er prjónuð frá réttu þannig: * 6 l sl, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 36-39-42-45 l eru eftir, endið á 36-39-42-45 l sl. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann upp að og með 4 útauknu l í garðaprjóni. Saumið axlasauma yst í lykkjubogann frá og með 4 útauknu lykkjum í garðaprjóni upp að sjalkraga. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan, saumið hann við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rippletidecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.