Jose Janssen skrifaði:
Zeer mooi
02.06.2014 - 19:40
Corinne skrifaði:
Très joli modèle, beau tombé bien fluide
02.06.2014 - 19:02
Lidia skrifaði:
Stupendo!!
02.06.2014 - 18:30
BOUNOUS ALINE skrifaði:
Superbe j'adore le point ajouré.bravo bonne fin de journée
02.06.2014 - 17:53
Blue For You#blueforyoucardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með köðlum, gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1- A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið næstu 2 l slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermi): Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki, þar til br A.5a/A.5b við ermi mætir prjónamerki. Fækkið lykkjum síðan hvoru megin við kaðal og 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan. Fækkið lykkjum hverri umf frá réttu þannig: Fækkið um 1 l hvoru megin við laskalínu (þ.e.a.s. 8 l færri í umf): Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki og kaðal: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki, kaðal og 2 l br: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 2 l hvoru megin við laskalínu (þ.e.a.s. 16 l færri í umf): Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki og kaðal: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 3 l slétt saman = 2 l færri. Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki, kaðal og 2 l br: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 4, 14, 24, 34, 44, 53 og 62 cm. STÆRÐ M: 4, 14, 24, 34, 44, 54 og 64 cm. STÆRÐ L: 3, 12, 21, 30, 39, 48, 57 og 66 cm. STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 32, 41, 50, 59 og 68 cm. STÆRÐ XXL: 3, 13, 23, 33, 43, 52, 61 og 70 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 13, 23, 33, 43, 53, 63 og 72 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna áður en skipt er yfir á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 219-231-259-280-307-323 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í síðustu rönd með garðaprjón er aukið út um 11-11-11-14-15-15 l jafnt yfir = 230-242-270-294-322-338 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið mynstur þannig: S/M/L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5b, 7-10-17 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 7-10-17 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, A.1, A.5b, 7-10-17 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 7-10-17 l sléttprjón, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8-8-8 mynstureiningar A.1) XL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b 2 sinnum á breiddina, 11 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 11 l sléttprjón, A.5a 2 sinnum á breiddina, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b 2 sinnum á breiddina, 11 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 11 l sléttprjón, A.5a 2 sinnum á breiddina, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 mynstureiningar A.1). XXL/XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.1, A.5b, 9-13 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 9-13 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, A.1, A.5b, 9-13 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 9-13 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 12-12 mynstureiningar A.1). Haldið síðan áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka 3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.1 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 15 l í hverja A.1. Nú eru 8-8-8-8-12-12 mynstureiningar A.1). ATH: Í L og XL er fækkað um 2 l til viðbótar í hvorri hlið, þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við hvor prjónamerki, þegar stykkið mælist 10 cm – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 8 cm millibili alls 3 sinnum (= alls 12 l færri) JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá að neðan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.2 yfir A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar af A.2, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.2 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 13 l eftir í hvert A.2). Prjónið nú A.3 yfir A.2 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.3 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 11 l eftir í hverri A.3). Nú eru 182-194-210-234-250-266 l á prjóni. Prjónið nú A.4 yfir hverja mynstureiningu A.3 þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fram þar til 5 l eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, fellið af næstu 10 l, prjónið þar til 5 l eru eftir að næsta prjónamerki, fellið af næstu 10 l. Nú eru 162-174-190-214-230-246 l eftir. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-38-38-42-42-42 l á sokkaprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-14-14-14 l jafnt yfir = 48-48-48-56-56-56 l. Haldið síðan áfram með A.6 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 12 cm er haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 10-10-10-14-14-14 l jafnt yfir = 38-38-38-42-42-42 l. Nú byrjar útaukning á ermum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili 8-10-15-16-19-22 sinnum til viðbótar = 56-60-70-76-82-88 l. Aukið síðan út í annarri hverri umf 8 sinnum = 72-76-86-92-98-104 l. Í næstu umf eru felldar af 5 l hvoru megin við prjónamerki (= 10 l felldar af) = 62-66-76-82-88-94 l. Setjið þær l sem eftir eru á þráð og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka með mynstri eins og áður á hringprjóna nr 5. Nú eru sett 4 stykki í prjónamerki þannig (1. umf = rétta): Prjónið fyrstu 45-48-52-58-62-66 l á hægra framstykki, setjið 1. prjónamerki, prjónið 62-66-76-82-88-94 l frá ermi, setjið 2. prjónamerkið, prjónið 72-78-86-98-106-114 l yfir bakstykki, setjið 3. prjónamerki, prjónið 62-66-76-82-88-94 l inn frá ermi, setjið 4. prjónamerki, prjónið næstu 45-48-52-58-62-66 l á vinstra framstykki. Nú eru 286-306-342-378-406-434 l að laskalínu. Nú byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í hverri umf frá réttu þar til úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Endurtakið úrtöku með 1 l á hvoru megin við hvert prjónamerki 21-22-20-19-18-18 sinnum, síðan 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki 0-0-3-5-7-8 sinnum = 118-130-134-146-150-162 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til eftir eru 23-25-25-28-29-31 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 23-25-25-28-29-31 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 33-35-35-38-39-41 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 33-35-35-38-39-41 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 43-45-45-48-49-51 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 43-45-45-48-49-51 l, snúið við, prjónið út umf. Prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú 6 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu 2 umf frá réttu er fækkað um 16-20-20-24-24-28 l jafnt yfir (en ekki yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið) = 86-90-94-98-102-106 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueforyoucardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.