Denise skrifaði:
Bonjour, Je viens de terminer la veste. Laine agréable à tricoter et Je suis ravie du résultat. Merci
08.03.2018 - 11:04
Elisabeth Gustafsson skrifaði:
Vid stickning av bakstycke ska det inte vars mönster A1,A2 istället för tvärtom?
25.03.2016 - 11:08DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth, Om du vill ha mönster som på framstycket skall du sticka A.2 først och sedan A.1. Lycka till!
30.03.2016 - 15:42
Angelika skrifaði:
Müsste im Schema mit dem Schrägmuster nicht schon in der siebten Reihe wieder ein neuer Schrägstreifen beginnen, also in der Mitte ein Punkt für eine linke Masche erscheinen? Oder beginnt der zweite Schrägstreifen auf der Rückseite?
16.08.2015 - 11:59DROPS Design svaraði:
Am besten orientieren Sie sich daran, dass immer 5 rechte Maschen zwischen den Linksmaschen liegen (von der Vorderseite aus betrachtet). Sie stricken die 1. R von A.1 ja nur ganz am Anfang, danach wird das Muster einfach folgerichtig fortgesetzt. Ihre Vermutung müsste richtig sein, der nächste Streifen müsste in einer Rück-R beginnen.
16.08.2015 - 17:16
BB skrifaði:
Le jeu des lignes est intéressant, mais ce gilet mériterait d'être plus près du corps. Il est un peu trop ample à mon avis.
07.06.2014 - 18:57Liz skrifaði:
Nice contrast of textures
03.06.2014 - 14:40
Lazy Sunday Afternoon Cardigan#lazysundayafternooncardigan |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Belle í garðaprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur tilfærslan áfram við br lykkjuna 1 l að vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg út að kantlykkju á vinstri hlið á stykki. JAFNFRAMT þegar byrjað er á 1 nýrri mynstureiningu á hæðina í 7. umf. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur tilfærslan áfram við br lykkjuna 1 l við hægri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg út að kantlykkju á hægri hlið á stykki. JAFNFRAMT er byrjað á 1 nýrri mynstureiningu á hæðina í 7. hverri umf. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1: sl frá röngu. UMFERÐ 2: sl frá réttu. UMFERÐ 3: br frá röngu. UMFERÐ 4: sl frá réttu. UMFERÐ 5: br frá röngu. UMFERÐ 6: sl frá réttu. Endurtakið umf 1-6. ÚRTAKA (á við um úrtöku við hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 2 l þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 2 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjóni þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 21, 28, 34, 40 og 46 cm. STÆRÐ M: 21, 28, 35, 42 og 48 cm. STÆRÐ L: 21, 28, 35, 42 og 49 cm. STÆRÐ XL: 21, 29, 37, 44 og 51 cm. STÆRÐ XXL: 21, 29, 37, 45 og 52 cm. STÆRÐ XXXL: 21, 30, 38, 46 og 54 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 106-114-122-132-144-156 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með Lima eða Belle. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 45-49-53-58-64-70 l sléttprjóni, A.2, A.1, 45-49-53-58-64-70 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram tilfærslunni á A.1/A.2 – LESIÐ MYNSTUR – þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, passið að næsta umf sé frá röngu. Prjónið nú mynstur-1, JAFNFRAMT er fækkað um 2 l hvoru megin á stykki í 2 næstu umf = 102-110-118-128-140-152 l. Haldið áfram með mynstur-1 til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir 32-32-34-34-36-36 miðju-l (= 35-39-42-47-52-58 l í hvorri hlið), hinar l eru prjónaðar eins og áður. Fellið nú af 28-28-30-30-32-32 miðju-l í garðaprjóni og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig (= 37-41-44-49-54-60 l á hvorri öxl). Þær 2 síðustu kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar áfram í garðaprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 59-63-67-72-78-84 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið á stykki og 6 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 l er eftir, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Kantlykkjur og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 21 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 7 l), sléttprjón þar til 1 l er eftir, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram tilfærslunni á A.1 þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, passið að næsta umf sé frá röngu. Prjónið nú frá röngu þannig: Fækkið um 2 fyrstu l fyrir handveg (1. l = kantlykkja), MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan – þar til 6 l eru eftir, endið á 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 57-61-65-70-76-82 l. Haldið áfram með mynstur-1 og garðaprjón til loka. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm fellið af 4 síðustu kantlykkjur að framan í hægri hlið = 53-57-61-66-72-78 l. Þær 2 kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar áfram í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l við hálsmál innan við 2 kantlykkjur – LESIÐ ÚRTAKA- endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 15-15-16-16-17-17 sinnum til viðbótar = 37-41-44-49-54-60 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – þ.e.a.s. prjónið A.2 í stað A.1. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-54-56 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með Lima eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili 6-7-8-9-11-12 sinnum til viðbótar = 62-66-70-74-78-82 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 36-35-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lazysundayafternooncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.