Patricia skrifaði:
Bonjour, je souhaite faire ce modèle en 6/9 mois et je suis un peux perdue dans les explications. Pouvez-vous m'éclairer La 1ère maille de chaque rang est elle tricotée ? Pour les devants, vous dites de monter 31 mailles (y compris 5 mailles de bordure devant). Dois-je comprendre que c'est 26 mailles + 5 mailles pour bordure ou bien faut-il 31 mailles + 5 mailles bordure ce qui ferait un total de 36 mailles ? Merci pour votre réponse.
09.05.2017 - 11:28DROPS Design svaraði:
Chere Patricia, 1. la 1ère maille de chaque rang est tricotée. 2-me question: 31 mailles montees = 26 mailles + 5 mailles de bordure devant. Bon tricot!
09.05.2017 - 11:47
Helle Flesjå skrifaði:
I oppskriften (og mange andre) står det "sett merke midt oppå skulderen", hva menes med midt oppå? Er det der hvor halsen begynner? Eller kanskje på skulderen rett opp fra der man begynner å legge opp til ermet?
06.12.2015 - 02:45DROPS Design svaraði:
Hej Helle, Når du er kommet til midt ovenpå skulderen, sætter du et mærke, fortsætter ned over rygstykket og måler arbejdet fra mærket og nedad. God fornøjelse!
07.12.2015 - 10:26
LINN skrifaði:
Hei, på knappe fellingen på str 1-3 mnd står d på den siste fellingen 14 cm men i oppskriften står det 15 cm. Hva er rett?
03.11.2015 - 13:13DROPS Design svaraði:
Hei Linn. Dette er fellingen for 1-3 mnd: 1/3 mnd: 7, 12, 18 og 24 cm for denne model?
05.11.2015 - 11:16
Thomasson skrifaði:
Bonjour, J'ai fait l'échantillon 24m X 48 rangs sur les aiguilles n°3. Au niveau de la hauteur tous va bien 10 cm par contre largeur (24m) ça me donne 7,5 cm? pouvez vous vérifier si les donnes sont corrects? Merci
13.05.2015 - 15:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Thomasson, 24 m de large pour 10 cm est un échantillon courant dans nos modèles en Baby Merino, mais la façon de tricoter de chacune joue sur la tension. Essayez avec des aiguilles plus grosses pour obtenir l'échantillon indiqué. Bon tricot!
13.05.2015 - 16:16
Tiina skrifaði:
Hei! En saa auki ollenkaan ohjekuvia/kaaviokuvia mitkä ovat virallisen ohjeen lopussa, yritin avata uudessa välilehdessäkin. Herjaa vain Page not found. Onkohan minulla vika, vai onko vika kaikilla?
12.05.2014 - 09:28DROPS Design svaraði:
Nyt ohjeen mittapiirros avautuu.
13.05.2014 - 16:32
First Impression#firstimpressiononesie |
||||
|
||||
Prjónuð samfella fyrir börn með garðaprjóni og hekluðum kanti úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar - 4 ára
DROPS Baby 25-26 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: (fyrirburar): 4, 10 og 16 cm. 0/1 mán: 6, 11, 16 og 20 cm. 1/3 mán: 7, 12, 18 og 24 cm. 6/9 mán: 8, 14, 20 og 25 cm. 12/18 mán: 10, 16, 22 og 28 cm. (2 ára): 10, 15, 20, 25 og 30 cm. (3/4 ára): 12, 17, 23, 28 og 34 cm. RENDUR: * 4 umf garðaprjón í litnum natur, 4 umf garðaprjón í litnum ljós mynta *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu, aukið er út fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Hitt framstykkið er prjónað á sama hátt, síðan eru stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er yfir bakstykki, fellt er af fyrir opi fyrir fætur, aukið aftur út og prjónað er yfir bleyjusvæði. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp (24) 27-29-31-34 (36-39) l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós mynta. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Þegar stykkið mælist (4) 6-7-8-10 (10-12) cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá skýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (12) 15-18-20-22 (24-27) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fitjið upp nýjar l í lok hverrar umf frá hlið fyrir ermi þannig: 2 l alls (5) 5-5-4-4 (4-5) sinnum, 4 l alls (2) 2-2-3-3 (4-5) sinnum og síðan (13) 22-30-33-40 (46-51) l 1 sinni = (55) 67-77-84-94 (106-120) l. Þegar stykkið mælist (17) 21-25-26-29 (31-35) cm fellið af síðustu 8 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l alls 2 sinnum og síðan 1 l alls (3) 3-3-3-4 (4-4) sinnum = (40) 52-62-69-78 (90-104) l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-33 (36-40) cm. Setjið 1 prjónamerki = miðja ofan á öxl – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok næstu umf við hálsmál = (42) 54-64-71-80 (92-106) l (síðasta umf = ranga). Setjið allar lykkjur á þráð / hjálparprjón. VINSTRA FRAMSTYKKI: ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á hægra framstykki, nema spegilmynd (þ.e.a.s. að fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu (í stað lok hverrar umf frá réttu). Að auki er prjónuð 1 umf slétt frá röngu í lok á framstykki eftir að fitjaðar hafa verið upp 2 l við hálsmál þannig að síðasta umf bæði á hægra og vinstra framstykki er prjónuð frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið inn vinstra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu), fitjið upp (16) 16-16-16-18 (18-18) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki á hringprjóna (= sl frá réttu) = (100) 124-144-158-178 (202-230) l á prjóni. MÆLIÐ NÚ STYKKIÐ FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM. Haldið nú áfram í garðaprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist (5) 6-7-7-8 (8-8) cm fellið af ermalykkjur í byrjun á hvorri hlið þannig: Fellið af (13) 22-30-33-40 (46-51) l 1 sinni, 4 l alls (2) 2-2-3-3 (4-5) sinnum og 2 l alls (5) 5-5-4-4 (4-5) sinnum = (38) 44-48-52-58 (62-68) l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca (20) 24-28-30-33 (36-40) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og athugið að framstykki og bakstykki eru jafn löng. Setjið 1 nýtt prjónamerki. STYKKIÐ ER NÚNA MÆLT FRÁ ÞESSU PRJÓNAMERKI. Haldið áfram í garðaprjóni JAFNFRAMT er fellt af fyrir opi fyrir fætur þannig: Fellið af 1 l í byrjun umf með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til (14) 14-14-14-16 (16-16) l eru eftir í umf (nú hafa verið felldar af (12) 15-17-19-21 (23-26) l í hvorri hlið og stykkið mælist nú ca (5) 6-7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki). Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónuð hefur verið 1 mynstureining með röndum (= 8 umf garðaprjón) byrjar útaukning við opi fyrir fætur (rendur halda áfram eins og áður) og nú er aukið út þannig: Fitjið upp 1 nýja l í lok hverrar umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til það eru (22) 28-32-36-42 (46-52) l á prjóni (= (4) 7-9-11-13 (15-18) útaukningar á hvorri hlið). Fitjið síðan upp 2 nýjar l í lok 8 næstu umf = (38) 44-48-52-58 (62-68) l á prjóni. LESTU NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Prjónið síðan án útaukninga þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón í litnum natur eftir 4 umf garðaprjón í litnum ljós mynta. Setjið 1 nýtt prjónamerki. Haldið áfram með rendur eins og áður JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er felld af 1 l yst í hvorri hlið fyrir bleyjusvæði með því að prjóna 2 síðustu l innan við 1 kantlykkju slétt saman. Endurtakið úrtöku lengst út í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), (4) 6-8-9-11 (11-14) sinnum til viðbótar (= alls (5) 7-9-10-12 (12-15) sinnum). Prjónið síðustu rönd til loka (þ.e.a.s. fyrirburar + 0/1 mán + 1/3 mán + 3/4 ára endar eftir 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós mynta og í stærð 6/9 mán + 12/18 mán + 2 ára endar eftir 4 umf garðaprjón í litnum natur). Prjónið nú garðaprjón í litnum natur í öllum stærðum JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fækkað um 1 l lengst út í hvorri hlið við bleyjusvæði eins og áður og fellt er af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir – það á að vera 1 hnappagat 2 cm inn frá hvorri hlið og 1 hnappagat fyrir miðju. Endurtakið úrtöku lengst út í hvorri hlið í 4. hverri umf 1 sinni til viðbótar. Eftir síðustu úrtöku efst á bleyjusvæði eru (24) 26-26-28-30 (34-34) l eftir á prjóni, nú hafa verið prjónað alls (8) 8-8-12-12 (12-8) umf garðaprjón efst með litnum natur og lok yfir bleyjusvæði mælist ca (6) 8-9-10-12 (12-14) cm frá síðasta prjónamerki. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma kant í kant yst í lykkjubogana. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 2,5 með litnum natur í kringum allt opið á fram- og bakstykki þannig (þ.e.a.s. meðfram neðri kanti á hægra framstykki, upp meðfram kanti að framan, í kringum hálsmál, niður meðfram hinum kanti að framan, meðfram kanti að neðan á vinstra framstykki og síðan meðfram opi fyrir fót, loki á bleyjusvæði og hinu opinu fyrir fót): UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í fyrstu ll, * 2 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda. Heklið alveg eins neðst í kringum báðar ermar. FRÁGANGUR: Brjótið loki á bleyjusvæði að réttu. Saumið tölur (miðju talan á loki er hneppt í gegnum bæði lok og framstykki). Saumið smá spor í hvora hlið þar sem op fyrir fætur mætist hlið á fram- og bakstykki svo að opið haldist á sínum stað (merkt með stjörnu í teikningu). |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firstimpressiononesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.