Kristina Ek skrifaði:
Hej, hur stickar man tröjan tvetydigt hur man gör stickas både fram-o bakstycket i ett stycke o runt och hamnar skarven i sidan?, för när man stickar oket så står det att man börjar varvet mitt bak på fram-o bakstycket, det är ju mitt i stickningen?
30.05.2025 - 09:50DROPS Design svaraði:
Hei Kristina. Etter du har satt bolen og ermene sammen (uten at det strikkes), klipp tråden og start midt bak. mvh DROPS Design
02.06.2025 - 11:07
Una skrifaði:
Hi Is there a button hole row needed at back of jumper to secure the button? I don't see any mention of this in the pattern?
11.04.2025 - 01:36DROPS Design svaraði:
Dear Ana, there is no button hole, the button is sewn in both layers on back piece. Happy knitting!
11.04.2025 - 09:20
Sigrun Dale skrifaði:
Oppskrift på kanin, genser, sløyfe, men hvor er oppskrift på buksen?
07.04.2025 - 18:21DROPS Design svaraði:
Hei Sigrun, Buksa er strikket som en del av beina (de er ikke løse). God fornøyelse!
08.04.2025 - 06:58
Vitaline skrifaði:
Bonjour,\r\nC’est le 1er ouvrage DROPS que je fais. Il a fallu que je me familiarise avec les explications. Le petit lapin est trop mighon. Je suis contente du résultat. Pour un 1er essai je l’ai fait avec une laine différente. Maintenant, je vais en faire un autre bien plus facilement avec la laine DROPS BABY MERINO que j’ai commandée. Merci beaucoup pour ce modèle adorable que j’ai eu envie de réussir et que j’ai réussi.👌❤️😘😘😘😘
06.04.2023 - 13:17
Vitaline skrifaði:
Bonjour, Quand vous dites « 1 m lis au point mousse de chaque côté », cela veut dire : tricoter une maille endroit au début du rang et une maille endroit à la fin du rang ?
04.04.2023 - 07:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Vitaline, cela veut dire - tricoter une maille endroit au début du rang et une maille endroit à la fin du rang, sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!
04.04.2023 - 07:44
Vitaline skrifaði:
Bonjour, JAMBE : RANG 1 (= sur l’endroit) 1 m lis au POINT MOUSSE. RANG 2 (= sur l’envers)) 1 m lis au POINT MOUSSE. Vous dites - voir ci-dessus - (où ?). Je ne comprends pas comme faire ces mailles lisières .
31.03.2023 - 15:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Vitaline, pour tricoter au point mousse, on doit tricoter les mailles à l'endroit, autrement dit, sur l'endroit on tricote toutes les mailles à l'endroit, mais sur l'envers la 1ère et la dernière maille se tricotent à l'endroit (et les mailles jersey à l'envers). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter en jersey avec 1 maille lisière au point mousse de chaque côté. Bon tricot!
11.04.2023 - 10:02
Vitaline skrifaði:
Bonsoir,\r\nJe suis finalement arrivée à tricoter la tête. J’ai compris le montage avec les 6 premières mailles.\r\nPar contre, je trouve qu’au niveau des augmentations (jetés) mon travail n’est pas très net, il y a comme un petit trou. Pourtant je tricote bien la maille torse.\r\nJe vais recommencer.
27.03.2023 - 01:10
Vitaline skrifaði:
Bonjour, Le rond magique se fait au crochet avec 6 premières mailles qui sont reprises aux aiguilles circulaires ? Merci pour votre réponse.
25.03.2023 - 06:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Vitaline, non, les mailles sont bien montées aux aiguilles, cette vidéo devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!
27.03.2023 - 09:04
Zuzana skrifaði:
Geniálny návod, do detailu prepracovaný.
23.12.2022 - 21:09
Janne Jacobsen skrifaði:
Jeg har købt garn og printet opskrift til Mr Bunny fra Ritos hjemmeside, men jeg synes der mangler opskrift på bukserne.
28.02.2022 - 07:33DROPS Design svaraði:
Hej Janne, jo bukserne starter på benet, der hvor du skifter til lys gul :)
02.03.2022 - 11:57
Mr. Bunny#dropsmrbunny |
|
![]() |
![]() |
Prjónað leikfang, kanína / héri í buxum, peysu og með slaufu úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 25-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað með þessari aðferð: Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingur. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið inn prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu l sem gerð var) *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru á prjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er í mynstri – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum svo að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 4 umferðir í litnum ljós mynta, 4 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KANÍNA / HÉRI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kanínan er prjónuð í stykkjum og saumuð saman. HÖFUÐ: Stykkið er prjónað í hring á sokkprjóna frá nefi og aftur fyrir. Gerið GALDRAHRINGUR með litnum ljós beige – sjá útskýringu að ofan = 6 l á prjóni. Skiptið l á 3 sokkaprjóna nr 3 (prjónið með fjórða prjóninum) og prjónið í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. UMFERÐ 3: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 l. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 9: Prjónið slétt. UMFERÐ 10: * 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 11-12: Prjónið slétt = 36 l. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 l í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir næstu 6 l. Aukið síðan út um 1 l innan við 2 prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 útaukningar í hvorri hlið) = 42 l. UMFERÐ 18-19: Prjónið slétt = 42 l. UMFERÐ 20: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 21: Prjónið slétt. UMFERÐ 22: * 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l. UMFERÐ 23: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l (án þess að draga saman). Saumið út augu, munn og nef með litnum svartur, fyllið höfuðið með vatti, herðið að og festið enda (= miðja aftan á höfði). EYRA: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Fitjið upp 8 l með litnum ljós beige og skiptið l niður á 2 sokkaprjóna (prjónið með þriðja prjóninum). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l á prjóni. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l á prjóni. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 20 l á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 5½ cm. Fækkið lykkjum síðan þannig: UMFERÐ 1: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram að fella af í annarri hverri umf þar til 4 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku eru prjónaðar 2 l færri á milli úrtöku í hvorri hlið). Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l, herðið að og festið. Brjótið uppá hvora hlið neðst niðri á eyranu inn við miðju svo að það myndist smá brot mitt í eyranu. Saumið saman neðst niðri með nokkrum sporum og saumið eyrað fast á höfuðið. Prjónið hitt eyrað á sama hátt og saumið niður. BÚKUR: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fitjið upp 16 l með litnum ljós beige og skiptið niður á 4 sokkaprjóna (prjónið með þeim fimmta). UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). UMFERÐ 5: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l. Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5½ cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur og prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið síðan 8 umf sléttprjón. Fellið nú af þannig: UMFERÐ 1: * 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 l. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l á prjóni (án þess að draga saman). Fyllið búkinn með vatti, dragið þráðinn saman og festið vel. Saumið höfuðið við búkinn (ljós gula stykkið á að snúa niður (= buxur). FÓTUR: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3 cm. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 10 l sl, prjónið 8 næstu l slétt saman 2 og 2, 10 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 26 l. UMERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5 l br, fellið af næstu 14 l, 5 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 6 l eftir í hvorri hlið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 fyrstu l á prjóni og síðan 6 næstu l á prjóni (þær 14 l br l mynda nú "gat" í miðju stykki). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir 12 l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fæturnir mætast ca 8 cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur, prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið þú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 23 l. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br en kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 34 l. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til fóturinn mælist ca 12 cm, fellið af. Saumið saman op við miðju ofan á fæti með lykkjuspori. Saumið saman fótinn við miðju undir og haldið áfram upp við miðju að aftan – saumið yst í lykkjubogann. Fyllið fótinn með vatti. Þræðið þráð upp og niður í gegnum affellingarkantinn efst á fæti (á því gula). Herðið að svo affellingarkanturinn verði aðeins pokalaga. Prjónið hinn fótinn á sama hátt og saumið báða fæturna við búkinn. Heklið blúndukant með heklunál nr 3 með litnum ljós gulur neðst niðri á buxum á hvorum fæti þannig (heklað er í br lykkjuna): 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu br l á buxum *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. HENDI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 10 l með litnum ljós beige og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til hendin mælist 9 cm. Klippið frá (klippið niður nægilega langt til þess að geta saumað hendina saman), þræðið þráðinn í gegnum allar l á prjóni (= neðst niðri á hendi), herðið að og saumið síðan saman hendina yst í lykkjubogann. Fyllið hendina með vatti og saumið niður efst uppi á búk við háls (neðan við höfuð). Prjónið hina höndina á sama hátt og saumið niður í gagnstæða hlið. ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp við handveg síðan er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 60 l með litnum ljós mynta. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 9 cm – passið að síðasta umf er rönd með litnum ljós mynta verði eftir, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 24 l, fellið af næstu 6 l fyrir handveg og prjónið síðustu 24 l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l með litnum ljós mynta. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR í hring. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umf með röndum (þ.e.a.s. að síðasta umf með rönd með litnum ljós mynta er eftir), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið næstu 14 l. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (án þess að prjóna l) = 76 l á prjóni. Byrjið umf frá réttu við miðju að aftan á fram- og bakstykki og haldið áfram með rendur þannig (1. umf = natur): UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l sl saman, 2 l snúnar slétt saman, 20 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 9 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 68 l. Prjónið síðan stykki fram og til baka frá miðju að aftan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 8 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 18 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60 l. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós mynta og prjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni, 7 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 16 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 7 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 52 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni. UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 14 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44 l. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu. Klippið frá og festið enda. SLAUFA: Fitjið upp 5 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós gulur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm, fellið af. Saumið saman skammhliðar yst í lykkjubogann svo að það myndist hringur. Klippið frá og festið enda. Takið annan þráð, snúið honum nokkrum sinnum utan um slaufuna og festið slaufuna við hálsinn á peysunni. Klæðið kanínuna / hérann í peysuna og saumið peysuna fasta við búkinn í gegnum bæði stykkin upp við hálsinn að aftan. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsmrbunny eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.