Marika skrifaði:
Hallo, Muss ich etwas beachten wenn ich die Decke größer machen will? Die Decke soll ca. 140x140 cm groß werden. Vielen Dank und liebe Grüße Marika
20.01.2015 - 21:35DROPS Design svaraði:
Sie können die Decke vergrößern, indem Sie die Zunahmen länger arbeiten und dann entsprechend mehr M auf der Nadel haben. Damit am Ende der Rand passt, müssen Sie die M-Zahl in 20er-Schritten vergrößern (A.2 geht über 20 M), also z.B. 175 M auf der Nadel haben oder 195 M oder 215 M etc. Bei der von Ihnen gewünschten Größe müssen Sie dann etwa die dreifache Garnmenge einrechnen oder etwas mehr. Der Rand misst ca. 30 cm.
27.01.2015 - 22:19
Kirsten Hansen skrifaði:
Er kantmønstret ikke det, man kalder "PÅFUGLEMØNSTER" ? Ligner meget. Som jeg strikker påfuglemønster, er det ikke så kompliceret som beskrevet her. Men måske tager jeg fejl? - For at få rigtig pæne hjørner ( så det følges ad ), skal man så strikke HELE vejen rundt på rundpind på en gang?
05.01.2015 - 01:40DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, Jo, det er stort set det samme som et paafuglemönster, men er tilpasset her pga hjörnerne. Her har vi saa valgt at bruge 4 rundpinde fordi du faar saa mange masker paa pinden (620). Du strikker saa rundt paa de 4 rundpinde og A.1 og A.3 bliver hjörnerne.
08.01.2015 - 15:57
Elin skrifaði:
Kan man strikke alle de fire sidene hver for seg for så å sy sammen kantene?
31.12.2014 - 03:39DROPS Design svaraði:
Hei Elin. Det tror jeg godt du kan, men du faar saa sömmene i siderne.
14.01.2015 - 14:54
Jeanette Orderud skrifaði:
Jeg elsker denne oppskriften, men nå har jeg kommet til siste runde av mønsteret og jeg forstår ikke hvordan jeg kan strikke mønster -med kast og alt- og felle SAMTIDIG. Kan noen være så snill å forklare dette for meg så blir jeg veldig glad.
07.11.2014 - 19:10DROPS Design svaraði:
Hej Jeanette, jo samtidig som du følger mønsteret i diagrammet, så lukker du af efterhånden som du har strikket maskerne. Dvs har du et kast/omslag så lukkes det også af som en maske. God fornøjelse!
17.11.2014 - 15:33
Lene Fuglesang skrifaði:
Hei! Hvor mange masker skal man egentlig begynne med her? Det står skrevet 3, men på tegninga er det 8. Hva stemmer?
09.10.2014 - 23:25DROPS Design svaraði:
Teppet begynnes med 3 masker som skrevet. Motivet forklarer bølgekanten og der er det 8 masker
16.10.2014 - 17:46
Angelika skrifaði:
Hallo, liebes Drops-Team, Ist die Baby Merino-Wolle auch für die Strickmaschine geeignet (Feinstricker)?
04.09.2014 - 21:58DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, wir fertigen ausschliesslich Handstrick, aber eigentlich müsste es von der Struktur des Fadens her geeignet sein.
02.10.2014 - 13:17
Emma skrifaði:
Feil i mønsteret, diagram A3 åttende siste og fjerde siste runde skal ha en vrang maske i slutten av omgangen, ikke rett slik som mønsteret viser. I hvertfall om det skal bli symmetrisk.
14.08.2014 - 19:28DROPS Design svaraði:
Tak for info, vi skal få rettet A.3.
03.09.2014 - 12:18
Anna skrifaði:
7 ovillos (350 g X 50)
13.08.2014 - 18:31
Jennyfer skrifaði:
Hola, muchas gracias por el patron, cuantos ovillos necesitaria ?
13.08.2014 - 09:50
Fred skrifaði:
J'adore ; cette couverture est magnifique !
30.05.2014 - 23:14
Baby Bliss#babyblissblanket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað barnateppi í garðaprjóni með kanti með öldumynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 25-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRPJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjón): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Teppið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Prjónað er á ská frá horni að horni, síðan er kanturinn prjónaður með öldumynstri í hring á hringprjón – ATH: Vegna lykkjufjölda er notaður 1 hringprjón í hverja og eina af 4 hliðum á teppinu. TEPPI: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón nr 4 með Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út í byrjun hverrar umferðar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju og prjónið slétt út umferðina, snúið við. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 152 umferðir í garðaprjóni (= 155 lykkjur á prjóni) mælist teppið 52 cm meðfram 2 hliðum. Fækkið nú lykkjum í byrjun á hverri umferð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið slétt út umferðina, snúið við. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni. Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Klippið frá, þræði þráðinn í gegnum lykkjuna og festið vel. Teppið mælist 52 cm meðfram hverri af 4 hliðum. KANTUR OG ÖLDUMYNSTUR: Byrjið fyrir miðju í einu horninu á teppinu og prjónið upp frá réttu á hringprjón nr 4 með Baby Merino þannig: * Prjónið upp 1 lykkju í horni, prjónið upp 1 lykkju yst í hverri rönd í garðaprjóni og sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli hverra lykkja fram að næsta horni, prjónið upp 1 lykkju í horni * = 155 lykkjur meðfram annarri hlið á teppinu. Byrjið með næsta hringprjón og endurtakið frá *-* meðfram næstu hlið á teppinu – ATH: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur þá koma til með að vera 2 lykkjur í hverju horni. Endurtakið alveg eins meðfram 2 næstu hliðum á teppinu = 620 lykkjur skipt niður á 4 hringprjóna. Prjónið 1 umferð sl (= 1. umferð í mynstri). Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.1 (= 8 lykkjur), endurtakið A.2 yfir næstu 140 lykkjur og prjónið A.3 (= 7 lykkjur) *, endurtakið frá *-* meðfram öllum 4 hliðunum. Haldið svona áfram með mynstur. Í næst síðastu umferð í A.1, A.2 og A.3 mælist kanturinn ca 13 cm. Prjónið síðustu umferð í A.1, A.2 og A.3 JAFNFRAMT er fellt LAUST af – ytri kanturinn kemur þá til með að verða "bylgjulaga" eftir mynstri. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin í kringum allt teppið með heklunál nr 4 með litnum natur þannig: Heklið 1 fastalykkju í lykkju á undan 2 lykkjum í einu horninu, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur í horninu, 1 fastalykkja í næstu lykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið, passið uppá að kanturinn verði "bylgjulaga" í hverju horni, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babyblissblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.