DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-3
DROPS Design: Mynstur nr u-062-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: fyrirburar 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál : 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50-50-100-100 (100-100) gr litur nr 66, ljós púðurbleikur

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PICOTKANTUR (prjónaður fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 4 l eru eftir, þessar lykkjur eru prjónaðar þannig: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í 2 síðustu l eru prjónaðar 2 l = 2 nýjar l á prjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Takið 1. l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl og dragið aftari l yfir á hægri prjón yfir fremstu l, nú hefur fækkað um 2 l – prjónið nú sl út umf.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt
Endurtakið umf 1 til 4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið upp 27-31-35-37 (41-43) l á prjóna nr 4 með Karisma.
Setjið 1 prjónamerki innan við 4 síðustu l í hægri hlið á stykki (séð frá réttu), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónaður PICOTKANTUR yfir 4 síðustu l á undan prjónamerki – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í hægri hlið á stykki (innan við picotkantinn) og fækkað um 1 l í vinstri hlið á stykki þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 l picotkantur, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 útaukning), prjónið þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl fram að prjónamerki (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) og endið á 4 l picotkanti.
Endurtakið þessar 2 umf þar til stykkið mælist 5-5½-6-6½ (7-8) cm.
Fækkið nú um 1 l í hægri hlið á stykki og aukið út um 1 l í vinstri hlið á stykki þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 l picotkantur, 1 l sl, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl fram að prjónamerki (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt) og endið á 4 l picotkanti.
Endurtakið þessar 2 umf þar til 1 umf er eftir frá röngu þar til stykkið mælist 10-11-12-13 (14-16) cm. Prjónið nú gataumferð frá röngu þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl og endið á 4 l picotkanti (uppslátturinn í gataumferð er prjónaður slétt, ekki snúinn slétt í næstu umf).
Aukið síðan út um 1 l í hægri hlið á stykki í 4. hverri umf og fækkið um 1 l í vinstri hlið á stykki í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 14½-15½-16½-17½ (18-19) cm frá uppfitjunarkanti.
Fækkið nú um 1 l í hægri hlið á stykki í 4. hverri umf og aukið út um 1 l í vinstri hlið á stykki í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 19-20-21-22 (22-22) cm.
Í næstu umf frá röngu er prjónuð gataumferð þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl og endið á 4 l picotkanti (uppslátturinn í gataumferð er prjónaður slétt, ekki snúinn slétt í næstu umf).
Aukið síðan út um 1 l í hægri hlið á stykki í annarri hverri umf og fækkið um 1 l í vinstri hlið á stykki í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 24-25½-27-28½ (29-30) cm. Fækkið nú um 1 l í hægri hlið í annarri hverri umf og aukið út um 1 l í vinstri hlið á stykki í annarri hverri umf til loka = 29-31-33-35 (36-38) cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Bakstykki á húfu = sú hlið á stykki sem hefur 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðja af 3 heilum hornum í gagnstæðri hlið á stykki gengur niður á enni að framan.
Saumið húfuna saman kant í kant með smáu spori þannig:
Saumið saman bakstykki með því að sauma fyrra hálfa hornið saman við fyrri helming af fyrra heila horninu. Saumið síðan seinni helming af fyrra heila horninu saman við fyrri helming af seinna heila horninu. Síðan seinni helming af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 150 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, þræðið snúruna í gegnum annað hornið framan á húfunni (frá röngu í gegnum gat í picotkanti) leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur snúran til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann. Gerið alveg eins snúru í hitt hornið framan á húfuna.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Martina wrote:

Ich würde gerne wissen wieviele Maschen man für den Picotrand anschlagen muss. Das steht nirgends in der Anleitung. Vielen Dank

28.08.2021 - 08:21

DROPS Design answered:

Liebe Martina, die Maschen für den Picorand gehören zu der angeschlagenen Maschenanzahl, - der Picorand wird über die 4 Maschen auf der rechten Seite der Arbeit (Anfang den Hinreihen) gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

30.08.2021 - 07:23

country flag Fourner Marie Louise wrote:

Je voudrai le modéle du bonnet aviateur. Pour 3 mois

30.06.2020 - 22:38

country flag Bibbi wrote:

Var kommer hålraden innanför picotkanten runt ansiktet ifrån om man hela tiden ska sticka omslagen vridet rätt för att det inte ska bli hål?

08.09.2019 - 21:59

DROPS Design answered:

Hej Bibbi, hålraden får du automatiskt när du stickar varv 2 i Picotkanten. Lycka till :)

12.09.2019 - 15:47

Sumaira wrote:

Hi is there any complete video for this hat pattern.

15.02.2017 - 17:38

DROPS Design answered:

Dear Sumeira, there is no video showing how to work the full hat, but you can find (under tab "Videos" on the right side of "Materials) some videos showing the techniques used in that pattern such as the picot edge and how to assembly the hat tog. Happy knitting!

16.02.2017 - 09:29

Sumaira wrote:

After eyelet holesfrom WS pattern says"then increase 1st in every 4rows and dec 1. St in left side of piece every other row..I am not understanding this.every 4rows mean both right and wrong side...?

14.02.2017 - 14:04

DROPS Design answered:

Dear Sumaira, you inc 1 st every 4th row = every other row worked from RS, and dec 1 st every other row = every row from RS. Happy knitting!

14.02.2017 - 15:02

Jinky wrote:

Thanks for this beautiful pattern, love making it, was wondering if you have an adult size for this one?

09.12.2015 - 01:51

DROPS Design answered:

Dear Jinky, what about this one - just add a picot edge as in the baby pattern. Happy knitting!

09.12.2015 - 09:54

Ranveig wrote:

Thank you so much for your video on how to assemble the hat. I will use this pattern many times.

24.09.2015 - 19:09

Ranveig wrote:

Do you have a picture of what the Lullaby hat should look like after completing the knitting and before sewing it together? I think I have the points uneven. Would like to see a diagram of what it should look like.

23.09.2015 - 15:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ranveig, the video below shows how to assembly the hat, the one shown in the video is not worked sideways, but final result is the same with points an half points sewn tog. Happy knitting!

24.09.2015 - 10:07

country flag Selam wrote:

How do I adujust the tension and size?is there some instructions please???

05.08.2015 - 09:57

DROPS Design answered:

Hej Selam, for at få færre m på 10 cm prøver du med en tykkere pind. for at få flere m på 10 cm prøver du med en tyndere pind. God fornøjelse!

07.08.2015 - 08:14

country flag Selam wrote:

Hi, how can I knit this hat for a child 6-9 years of Age?please help

05.08.2015 - 09:12

DROPS Design answered:

Dear Selam, this hat is for a head circumference to 50/52 cm, you can then adjust with your tension and the size of the child. Happy knitting!

05.08.2015 - 09:49