Christine skrifaði:
J'adore !
24.02.2014 - 20:25
Eva skrifaði:
Underbar! Väntar på mönstret!
30.01.2014 - 16:29
Malin skrifaði:
Enkel och vacker !
26.01.2014 - 17:24
BOURZAT skrifaði:
This one is so nice, very feminine and seems comfortable;I think I will do it!!
04.01.2014 - 14:24
Lisa Henningsohn skrifaði:
Vilken vacker kofta!
29.12.2013 - 08:00
Liisa skrifaði:
Very feminine!
27.12.2013 - 22:31Sue Dack skrifaði:
Simple but beautiful love the shaping detail.
16.12.2013 - 19:51Bettina skrifaði:
Slow like a cloud, I love it!
12.12.2013 - 21:22
Aino skrifaði:
Lovely!
12.12.2013 - 13:01
Linda Cardigan#lindacardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 154-22 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 - A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 4. lykkju frá miðju að framan. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný lykkja yfir þá lykkju sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm STÆRÐ M: 11, 17, 23, 29, 35 og 41 cm STÆRÐ L: 7, 14, 21, 28, 35 og 42 cm STÆRÐ XL: 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm STÆRÐ XXL: 9, 15, 21, 27, 33, 39 og 45 cm STÆRÐ XXXL: 5, 12, 19, 26, 33, 40 og 47 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-124-136-148-160-176 l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 10 l), 96-104-116-128-140-156 l sl, endið á A.2 (= 10 l). Í næstu umf (= ranga) er prjónað þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 10 l, 96-104-116-128-140-156 l br, A.1 yfir síðustu 10 l. Endurtakið þessar 2 umf. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm (stykkið af að næsta umf er frá réttu) setjið 2 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT er prjónað frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 10 l eins og áður, sléttprjón yfir næstu 15-17-20-23-26-30 l, A.3 (= 5 l), 1 l sléttprjón (= hægra framstykki), setjið1 prjónamerki (= miðja undir ermi), 1 l sléttprjón, A.4 (= 5 l), sléttprjón yfir næstu 42-46-52-58-64-72 l, A.3 (= 5 l), 1 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki (= miðja undir ermi), 1 l sléttprjón, A.4 (= 5 l), sléttprjón yfir næstu 15-17-20-23-26-30 l, endið á A.2 yfir síðustu 10 l eins og áður (= vinstra framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATH: A.3 og A.4 færast til um 1 l við miðju að framan og við miðju að aftan í hverri umf frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm er hvor hluti prjónaður til loka fyrir sig. Stykkinu er nú skipt við hvort prjónamerki. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 31-33-36-39-42-46 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Haldið áfram að prjóna A.1, sléttprjón og A.3 eins og áður JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-42-43-45-46-48 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af fyrir hálsmáli frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 13-13-13-14-14-14 l, prjónið eins og áður yfir þær l sem eftir eru. Síðan í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l frá hálsi, endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum) = 16-18-21-23-26-30 l eftir á prjóni. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. Prjónið A.2 og A.4 í stað A.1 og A.3. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á umf frá röngu. BAKSTYKKI: = 54-58-64-70-76-84 l. Prjónið A.3/A.4 og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af fyrir hálsmáli frá réttu þannig: Prjónið 17-19-22-24-27-31 l eins og áður, fellið af næstu 20-20-20-22-22-22 l, prjónið 17-19-22-24-27-31 l eins og áður. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 16-18-21-23-26-30 l. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-26-28-28-30-31 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 12-7-7-11-10-10 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, endurtakið útaukningu í hvorri hlið á stykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með 4-4-4-3-3-2½ cm millibili 8-9-9-10-10-11 sinnum til viðbótar (= alls 9-10-10-11-11-12 sinnum) = 43-46-48-50-52-55 l á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 48½-48-46½-45-43½-41 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermi í. Saumið tölur í vinstra kant á framstykki. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 60-70 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 8 með Alpaca Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lindacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.