Loretta skrifaði:
Modello particolare elegante mi piace molto loretta
12.01.2014 - 09:08
Carole skrifaði:
Tres jolie modele pour cette année je vous felicite carole
11.01.2014 - 20:04
Bridie skrifaði:
I wish there was the option for long sleeves for those chilly evenings....
10.01.2014 - 14:36
Jocelyne Eid skrifaði:
Modèle très élégant. Ses jours raglan sont très originaux.
10.01.2014 - 14:06
Silke skrifaði:
Ein sehr schönes tragbares Modell. Ich werde es bestimmt stricken. Danke ;-)
07.01.2014 - 12:55
Marie-Louise skrifaði:
Freue mich jetzt schon dieses Modell zu stricken, danke schön!
05.01.2014 - 09:31
Marie-Louise skrifaði:
Wonderful
05.01.2014 - 09:27
Elsa Fediuc skrifaði:
Es gefällt mir sehr schön
05.01.2014 - 06:42Lidia skrifaði:
Elegante, bellissimo!!
03.01.2014 - 09:55
Ann Dewitte skrifaði:
Skyfall
01.01.2014 - 12:51
Cassidy#cassidycadigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá miðju að framan. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm STÆRÐ M: 14, 22, 30, 38, 46 og 54 cm STÆRÐ L: 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm STÆRÐ XL: 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm STÆRÐ XXL: 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm STÆRÐ XXXL: 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-72-78-88-96-104 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 l í garðaprjóni (= kantlykkja), A.1 (= 5 l), 54-60-66-76-84-92 l í sléttprjóni, A.2 (= 5 l), endið á 1 l í garðaprjóni (= kantlykkja). ATH: Mynstur A.1/A.2 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu. Haldið áfram með mynstur þannig: Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fitjið upp l fyrir ermi í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf þannig: Fitjið upp 4 l 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan 3 l 0-1-1-1-1-0 sinnum, síðan 2 l 0-0-1-1-1-2 sinnum = 82-86-88-98-106-112 l á prjóni. Þær 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið síðan A.1/A.2, garðaprjón og sléttprjón JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af miðju 22-22-24-24-26-26 l fyrir hálsmáli (= 30-32-32-37-40-43 l eftir í hvorri hlið). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1/A.2, garðaprjón og sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l frá hálsi = 29-31-31-36-39-42 l eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 74-79-82-89-95-101 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón (= kantlykkjur) og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru, endið á 1 l garðaprjón (= kantlykkja). Kantlykkjur að framan og kantlykkja eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stillið af að næsta umf sé frá röngu) fellið af fyrstu 38-40-40-42-44-46 l frá röngu = 36-39-42-47-51-55 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni og sléttprjóni þar til 1 l er eftir, endið á 1 l garðaprjóni (= kantlykkja). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm (stillið af að næsta umf sé umf frá réttu) prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón (= kantlykkja að framan), 27-30-33-38-42-46 l sléttprjón, A.2 (= 5 l), endið á 1 kantlykkju með garðaprjóni (= kantlykkja). ATH: Mynstur A.2 færist til um 1 l við miðju að framan í hverri umf frá réttu. Haldið áfram með mynstur svona. Munið eftir HNAPPAGATI! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) fitjið upp l fyrir ermi í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í lok næstu umf frá réttu þannig: Fitjið upp 4 l 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan 3 l 0-1-1-1-1-0 sinnum, síðan 2 l 0-0-1-1-1-2 sinnum = 44-46-47-52-56-59 l á prjóni. Síðustu 3 l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið síðan garðaprjón, sléttprjón og A.2 JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-56-58-59-61 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 13-13-14-14-15-15 l = 31-33-33-38-41-44 l eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón, garðaprjón og mynstur eins og áður yfir þær l sem eftir eru. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l frá hálsmáli, endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar í næstu umf frá réttu = 29-31-31-36-39-42 l eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Prjónið A.1 (= 5 l) í stað A.2. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma þannig: A (= affellingarkantur á framstykki) saumað við B (= hlið á bakstykki) – sjá teikningu. ATH: Stillið af sauminn þannig að affellingakanturinn á hvoru framstykki sé saumaður upp að prjónamerki á bakstykki, haldið síðan áfram með hliðarsaum eins og áður og saumið ermasauma í eitt. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HÁLSMÁL: Takið upp 60-70 l í hálsmáli á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cassidycadigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.