Karin Dekkers skrifaði:
I love this one and certainly making this one.
11.01.2014 - 18:39
Marleen skrifaði:
Geweldige kleur, mooie boothals, ga ik zeker maken
10.01.2014 - 20:54
Unni skrifaði:
Ja denne kunne jeg tenkt meg å strikke til meg selv
02.01.2014 - 00:02
Helga skrifaði:
Gefallt mir sehr gut
27.12.2013 - 22:39
Marianne skrifaði:
Fin med ovandelen i olika spetsmönster.
27.12.2013 - 10:35
Gehrig skrifaði:
Gefällt mir sehr gut
26.12.2013 - 22:01
Götz, Karin skrifaði:
Super modell gefällt mir sehr gut
25.12.2013 - 14:40Nelly skrifaði:
Tricot léger, très beau. Nelly Canada (Québec)
19.12.2013 - 20:18Maryam skrifaði:
Thank you very nice
17.12.2013 - 12:40
Jose Janssen skrifaði:
Super mooi
13.12.2013 - 12:27
Cheryl Cardigan#cherylcardigan |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 154-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 6, 16, 26, 36, 46 og 56 cm STÆRÐ L/XL: 6, 15, 24, 33, 42, 51 og 60 cm STÆRÐ XXL: 6, 16, 26, 35, 44, 53 og 62 cm STÆRÐ XXXL: 6, 14, 23, 32, 41, 50, 58 og 66 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 240-272-304-336 l á hringprjóna nr 5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan frá miðju að framan þannig: Prjónið 6 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan, stroff 4 ls l, 4 l br, endið á 4 l sl og 6 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm eru allar br prjónaðar saman 2 og 2 frá réttu = 184-208-232-256 l. Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem fækkað er um 3 l jafnt yfir (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) = 181-205-229-253 l. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 48-54-60-66 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 85-97-109-121 l). Prjónið síðan sléttprjón með 6 kantlykkjur í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 165-189-213-237 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 3. hverjum cm, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 181-205-229-253 l. Þegar stykkið mælist 35-39-41-45 cm (í einni umf frá röngu) fellið af 14-16-18-20 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 71-81-91-101 l eftir á bakstykki og 41-46-51-56 l eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-56-60 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af Alpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun á umf (= miðja undir ermi). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 5-3-2½-2 cm millibili, 3-5-7-9 sinnum til viðbótar (= alls 4-6-8-10 útaukningar) = 56-64-72-80 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27 cm fellið af 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerkin) = 42-48-54-60 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 237-269-301-333 l. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu * A.1 (= 14 l), A.2 (= 18 l)*, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón með rönguna út og 6 kantlykkjur í garðaprjóni (= 7-8-9-10 mynstureiningar af A.1 og A.2 á breiddina). MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað eru 125-141-157-173 l á prjóni (A.1 = 10 l, A.2 = 6 l). Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 41-53-55-67 l jafnt yfir (ca önnur hvor og 3 hver l er prjónuð saman) = 84-88-102-106 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki í miðju l (= miðja að aftan): Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að framan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. Berustykkið mælist ca 23 cm (fyrir miðju að framan) og öll peysan ca 58-62-64-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherylcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.