Claudia skrifaði:
Hallo, die Maschenprobe soll ja im Patentmuster gemacht werden. Zählen denn die "Doppelmaschen", also der Umschlag + abgehobene Masche als eine Masche oder als zwei Maschen. Habe jetzt 81 Maschen angeschlagen und das scheint mir sehr viel zu groß zu werden. Oder muss ich da für das Zusammennähen noch ein wenig Rand einrechnen? Und falls ja, wieviel cm etwa? Danke für die Auskunft :)
07.10.2013 - 15:16DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, man hat die 81 M damit der Anschlag nicht zu eng wird. Schon in der 2. R wird auf 55 M abgenommen. Die Naht wird knappkantig geschlossen, dafür muss man keine Zugabe rechnen. Ich habe die Mütze gerade nachgestrickt und sie passt ausgezeichnet. Gutes Gelingen!
08.10.2013 - 07:33
Urszula skrifaði:
W jaki sposób dołączyć do robótki drugi kolor włóczki?
30.09.2013 - 10:02DROPS Design svaraði:
Odpowiedź znajdzie Pani we WSKAZÓWCE 1. Pozdrawiamy
01.10.2013 - 19:59
Sabrina skrifaði:
Le spiegazioni non credo siano corrette i colori non vengono così distinti a coste potete aiutarmi?
17.09.2013 - 21:22DROPS Design svaraði:
Buonasera Sabrina, le istruzioni del modello sono corrette, può essere più esplicita e descriverci esattamente qual è il suo problema? ha seguito alla lettera le spiegazioni usando i colori corretti? Può anche mandare una mail con una foto a italy@garnstudio.com e spiegare meglio il problema. Buon lavoro!!
17.09.2013 - 23:14
Sabrina skrifaði:
Che delusione ho la vs bella lana in questi bei colori ma non riesco a fare le righe così è possibile che le spiegazioni non siano esatte?
17.09.2013 - 21:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Sabrina, le spiegazioni del modello sono corrette, ha seguito attentamente le istruzioni e i colori da usare per i diversi ferri? Può mandare una mail con una foto del suo lavoro a italy@garnstudio.com. Buon lavoro!
17.09.2013 - 23:12
Franziska skrifaði:
Wieviel Wolle benötige ich für die Mütze S/M und für den Schal? Verstehe die Angabe nicht ganz.
17.09.2013 - 09:50DROPS Design svaraði:
Liebe Franziska, vielen Dank für den Hinweis. Es war ein Fehler in der Angabe, den wir nun korrigiert haben. Man braucht (je) für die Mütze und für den Kragen in beiden Grössen pro Farbe 100 g ( je 1 Knäuel).
17.09.2013 - 10:27
Roxana Veron skrifaði:
Se puede tejer este gorro con dos agujas ( no circulares ) ?
08.07.2013 - 01:54DROPS Design svaraði:
Hola Roxana! Este modelo puedes trabajarlo con ag rectas.
09.07.2013 - 08:56
Dea skrifaði:
Il ounto briosce :)
02.07.2013 - 17:41
Lærke skrifaði:
Den er godt nok fin! Må man ikke få opskriften?
01.07.2013 - 20:04
Ammetz skrifaði:
Wow! Can't wait to make this one.
28.06.2013 - 13:31Judy skrifaði:
Heavenly!
27.06.2013 - 16:02
Phoenix#phoenixset |
|
|
|
Prjónuð húfa og hálsskjól í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Big Delight.
DROPS 151-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf . TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI : UMFERÐ 1(= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l garðaprjón. Færið lykkjurnar til baka á hringprjóninn þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit (lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með litnum rósargarður. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinnum uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, 1 l garðaprjóni. Færið til baka l á hringprjónin þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með litnum rósargarður. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið og 1 l garðaprjón. Snúið við. Endurtakið umf 2- 5. LEIÐBEININGAR-1: Til að það myndist röndótt klukkuprjón er prjónað fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið umf 1 og 2 eins og útskýrt er frá að ofan. Færið til allar l á annan endann á hringprjóninum þannig að næsta umf er prjónuð með nýjum lit en frá sömu hlið og umf 2. Snúið síðan við og næstu 2 umf eru prjónaðar frá hinni hliðinni alveg eins og umf 2 og 3. Það þýðir að prjónuð er 1 umf með hvorum lit frá sömu hlið áður en snúið er við. LEIÐBEININGAR-2: Ef þú er ekki alveg viss getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður með í fyrri umf á litunum í kantinum. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------ HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 72-81 l á hringprjóna nr 5 með litnum grár og prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið á 1 l br og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN = 49-55 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24 cm – passið uppá að enda á eftir umf 5 og prjónið næstu umf með litnum grár þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman og 1 l garðaprjón. Snúið við og haldið áfram með stroff 1 l sl og 1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum grár þar til stroffið mælist ca 3 cm. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman. Stykkið mælist nú ca 27-28 cm. Þræðið þráðinn í gegnum síðustu l efst uppi og saumið húfuna saman við miðju að aftan, garðaprjón við garðaprjón. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 93-99 l á hringprjóna nr 5 með litnum grár og prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l bl, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið á 1 l br og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN = 63-67 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 12-14 cm – passið uppá að enda á eftir umf 2. Klippið frá, snúið ekki við, færið lykkjurnar á hinn endann á hringprjóninn og prjónið næstu umf frá réttu með litnum rósargarður þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og óprjónuðu l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið 1 l sl og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið nú sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist ca 14-16 cm. Þegar stykkið hefur verið prjónað verður réttan að röngu, þannig að lykkjur með litnum rósargarður (V-ið) sem prjónaðar eru í klukkuprjóni sjást frá réttunni á stykkinu. Fellið laust af. Klippið frá og saumið hálsskjólið saman með smáu spori, saumið yst í lykkjubogann og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #phoenixset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.