Marja Karlsson wrote:
Ljunghed eller fiskbensmössa och krage
25.06.2013 - 20:23Izabela wrote:
Świetny efekt kolorystyczny. Zapewne z dwóch kolorów Big Delight. Wonderful colour effect. I'm sure it was knitted of two different colours of Big Delight.
22.06.2013 - 19:52Sil wrote:
Wow, möchte ich unbedingt nachstricken!
22.06.2013 - 18:03Petra wrote:
Tolles Farbenspiel interessantes Muster
21.06.2013 - 19:50Anita wrote:
Leuk setje. Weinig moeite veel effect.
20.06.2013 - 10:39Kristina Grünewald wrote:
Klasse! Sieht nich schwierig aus, aber die Wirkung ist enorm. Schöner Farbverlauf.
19.06.2013 - 13:26Meinie Wardenier wrote:
Wow!
18.06.2013 - 23:21Iris Heltne wrote:
Gleder meg til mønsteret!
18.06.2013 - 23:10Andrea wrote:
Sehr schick!
15.06.2013 - 14:03
Phoenix |
|
|
|
Prjónuð húfa og hálsskjól í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Big Delight.
DROPS 151-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf . TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI : UMFERÐ 1(= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l garðaprjón. Færið lykkjurnar til baka á hringprjóninn þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit (lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með litnum rósargarður. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinnum uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, 1 l garðaprjóni. Færið til baka l á hringprjónin þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með litnum rósargarður. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið og 1 l garðaprjón. Snúið við. Endurtakið umf 2-5. LEIÐBEININGAR-1: Til að það myndist röndótt klukkuprjón er prjónað fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið umf 1 og 2 eins og útskýrt er frá að ofan. Færið til allar l á annan endann á hringprjóninum þannig að næsta umf er prjónuð með nýjum lit en frá sömu hlið og umf 2. Snúið síðan við og næstu 2 umf eru prjónaðar frá hinni hliðinni alveg eins og umf 2 og 3. Það þýðir að prjónuð er 1 umf með hvorum lit frá sömu hlið áður en snúið er við. LEIÐBEININGAR-2: Ef þú er ekki alveg viss getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður með í fyrri umf á litunum í kantinum. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------ HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 72-81 l á hringprjóna nr 5 með litnum grár og prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið á 1 l br og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN = 49-55 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24 cm – passið uppá að enda á eftir umf 5 og prjónið næstu umf með litnum grár þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman og 1 l garðaprjón. Snúið við og haldið áfram með stroff 1 l sl og 1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum grár þar til stroffið mælist ca 3 cm. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman. Stykkið mælist nú ca 27-28 cm. Þræðið þráðinn í gegnum síðustu l efst uppi og saumið húfuna saman við miðju að aftan, garðaprjón við garðaprjón. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 93-99 l á hringprjóna nr 5 með litnum grár og prjónið fram og til baka á hringprjóna. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l bl, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið á 1 l br og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN = 63-67 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 12-14 cm – passið uppá að enda á eftir umf 2. Klippið frá, snúið ekki við, færið lykkjurnar á hinn endann á hringprjóninn og prjónið næstu umf frá réttu með litnum rósargarður þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og óprjónuðu l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið 1 l sl og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið nú sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist ca 14-16 cm. Þegar stykkið hefur verið prjónað verður réttan að röngu, þannig að lykkjur með litnum rósargarður (V-ið) sem prjónaðar eru í klukkuprjóni sjást frá réttunni á stykkinu. Fellið laust af. Klippið frá og saumið hálsskjólið saman með smáu spori, saumið yst í lykkjubogann og festið enda. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Karin wrote:
Wow, cooles Modell! Möchte ich unbedingt nachstricken!
26.06.2013 - 13:13