Lise skrifaði:
Kuleste hjemmelagede sokker noensinde :-)
07.06.2013 - 21:19
Claudia skrifaði:
Tolle farbkombi!!
07.06.2013 - 12:28
Kaye Vick skrifaði:
Can't wait for the pattern!
05.06.2013 - 16:35
Ruth skrifaði:
Super witzig ... ja bitte Anleitung ins Netz stellen!
04.06.2013 - 18:45
Assuntaaa skrifaði:
Bellissime!
02.06.2013 - 21:08
Rosemarie skrifaði:
Sehen super aus, so eine richtige Reste-Socke, so gerne würde ich meine Reste-Kiste verwerten. Schnell her mit der Anleitung ;0))
02.06.2013 - 19:28
Taina Madol skrifaði:
Hauskat sukat, vaikka "jämälangoista"!
02.06.2013 - 10:50
Enza skrifaði:
Stra stra stra belle
01.06.2013 - 23:39
Petitelou skrifaði:
Super modèle et original en plus bravo toujours difficile de choisir parmi tous ces modèles
01.06.2013 - 18:37
Haria skrifaði:
Artistic Fantastic
01.06.2013 - 09:49
Colour play#colourplaysocks |
|
|
|
Prjónaðir sokkar með snúningi úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 149-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SNÚNINGUR: Allar umf eru prjónaðar með 4 mismunandi litum sem færast til og snúast eins og spírall utan um sokkinn. Til þess að sleppa við að þurfa að klippa frá í hverri umf er önnur hver umf prjónuð frá röngu. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið allar l frá sokkaprjóni 1 slétt með lit nr 912, prjónið allar lykkjur frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 677. Snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 4 með lit nr 677, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 3 með lit nr 911, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 1 með lit nr 912, prjónið upp 1 l í síðustu l frá sokkaprjóni 4 frá fyrri umf, setjið hana á sokkaprjón 1. Snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l slétt saman, prjónið þær l sem eftir eru frá sokkaprjóni 1 + fyrstu l frá sokkaprjóni 2 slétt með lit nr 912, prjónið allar l frá sokkaprjóni 2 + fyrstu l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 + fyrstu l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 + fyrstu l frá sokkaprjóni 1 slétt með lit nr 677. Snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 4 með lit nr 677, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 3 með lit nr 911, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 1 með lit nr 912, prjónið upp 1 l í síðustu l frá sokkaprjóni 4 frá fyrri umf, setjið hana á sokkaprjón 1. Snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l slétt saman, prjónið þær l sem eftir eru frá prjónið 1 slétt með lit nr 912, prjónið allar l frá sokkaprjóni 2 slétt með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 677. Snúið við. Endurtakið umf 2-5. Litarendurnar færast til um 1 l til vinstri í fjórðu hverri umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hæl): Prjónið fram þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-76-80 l á sokkaprjóna nr 2,5 með lit nr 912. Prjónið 2 umf slétt í hring. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 8 l jafnt yfir = 64-68-72 l. Skiptið lykkjum á 4 sokkaprjóna = 16-17-18 l á hverjum prjóni. Prjónið nú sléttprjón og SNÚNINGUR - lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hverri rönd frá réttu – fækkið með því að prjóna 2 síðustu l á hverjum sokkaprjóni sléttar saman (= 4 l færri í 1 umf). Passið uppá að úrtaka sé gerð í umf 3 eða 5 í mynstri. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15 og 20 cm = 52-56-60 l (= 13-14-15 l á hverjum sokkaprjóni). Þegar stykkið mælist 23-24-25 cm er prjónaður inn laus þráður yfir fyrstu 26-28-30 l, l hvoru megin við þennan þráð eru notaðar síðar þegar hællinn er prjónaður. Í næstu umf er haldið áfram með mynstur eins og áður (klippið frá á 2 fyrstu sokkaprjónunum). Haldið áfram með snúning þar til stykkið mælist 12-13-15½ cm frá lausa þræðinum (= ca 5 cm eftir). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 l ofan á fæti og 26-28-30 l undir fæti – passið uppá að táin passi við þráðinn við hæl. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l og í kringum prjón með lit nr 912, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan 1 l sl og prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 7 sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum = 12-16-20 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆLL: Dragið út lausa þráðinn og skiptið lykkjum hvoru megin við þráðinn á sokkaprjóna nr 2,5 = 52-56-60 l. Byrjið í hlið og prjónið með lit nr 912 (súkkulaði): Prjónið yfir 26-28-30 l undir hæl, prjónið upp 2 nýjar l í hlið, prjónið yfir 26-28-30 l aftan við hæl og prjónið upp 2 nýjar l í hlið = 56-60-64 l. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 nýrra lykkja í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið – Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! – í annarri hverri umf alls 9-10-11 sinnum = 20 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l. Fellið af. Saumið saman hælinn með lykkjuspori, l á móti l við affellingarkantinn. Hællinn mælist 5-6-6½ cm í hvorri hlið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #colourplaysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.